Árið 2009

Árið 2009 verður ár íslenskrar hönnunar, handverks, matargerðar, framleiðslu og þjónustu. Íslenskt er frábært, þó fyrr hefði verið. Ódýr innflutningur er að verða liðin tíð en hann hefur nánast gengið að íslenskri framleiðslu dauðri. Ég horfði á sögu Sambandsins um daginn á meðan ég hengdi upp þvottinn (multitasking sko) þar sem Akureyri kemur ekki lítið við sögu. Hugsjónin var göfug en þegar menn hættu að trúa á hana (eða menn sem tóku við höfðu ekki þessa tengingu) og vinna eftir henni fór allt á hliðina. Ótrúlegt að allar þessar verksmiðjur séu horfnar, klæðagerðir, skinnaiðnaður og ullarverksmiðjur. Um tíma unnu 800 manns í verksmiðjum Sambandsins. Mikið yrði ég glöð ef þetta lifnar við og þá ekki endilega undir gömlum merkjum heldur á nýjum forsendum. Hönnuðir þurfa á léttum iðnaði að halda til að þróa vörur og ég er handviss um að við getum gert svo ótrúlega margt nýtt. Sem dæmi á Emil nokkrar flíkur frá Janus, sem eru norsk ullarföt. Hvar eru þessi íslensku? Jú 66N eru með flíkur úr ullarflís en bæði þeir og Cintamani eru að framleiða erlendis. Væri ekki hægt að vera með ullar og prjónaverksmiðju sem prjónaði bara efni sem væri hægt að sauma úr?


Sjálf er ég að fletta bókinni "lærið að prjóna" frá 1992, og prjóniprjón bókin er á leiðinni og ætla að fara að prjóna buxur á Emil. Ég búin að fitja upp og komin með nokkrar umferðir. Þær verða brúnar úr blönduðu ullargarni og akrýl. Skal setja inn mynd eftir því sem líður á. Ef þetta tekst þá langar mig í ullarvesti og prjóna svo kannski ullarbleiubuxur á stráksa. Þá verður líka örugglega komið aftur nýtt ár.


Seinna: Danni kom að mér þegar ég sat við prjónana og spurði: "Ertu að prjóna skip?"
hehe, góð hugmynd!


Laugardagur 03. janúar 2009 kl. 14:07
Flokkað sem heimilið. Þar eru 62 færslur. / samfélag. Þar eru 63 færslur. / uppeldi. Þar eru 47 færslur.

/ Álit

baddy systir:

Saga Sambandsins...hvar finnuru þetta??!! eflaust mjög áhugavert samt sem áður. Já ég styð handavinnu og íslenska hönnun. ég er búin að prjóna eina lopahúfu á gunnar úr íslenskum léttlopa og hver veit nema ég skelli annarri húfu á prónana. Núna er ég farin að vinna í jólahugmyndum fyrir næsta ár. Keypti mér íslenskar (þýddar reyndar) bækur um jólaföndur og haust og vetrar skreytingar, mér finnst þetta alveg rosalega spennandi og gaman! mig vantar bara heimilið til að skreyta! verst að við erum ekki staddar á sama landshluta, þá gætum við haft hitting og rætt hönnunarhugmyndir! - er svo málið að fara í kolaportið og selja þar hehehe!

12.01.09 07:02


Dagný:

selja á nedinu maður!

12.01.09 22:36


Inga Hrund:

Það er sér handavinnuflokkur á taubleiuspjallinu með fullt af prjónavangaveltum. Ég er bara ekki "there yet"...

16.01.09 17:04