að lifna við

Ég hef verið þögul á blogginu upp á síðkastið. Ástæðan er sú að Danni lagðist í hlaupabóluna í byrjun janúar og er að stíga upp úr henni þessa dagana. Í dag var fyrsti heili dagurinn í leikskólanum. Ég hef því lítið náð að eða viljað opna tölvuna nema til að kíkja á facebook og fyrirsagnirnar, nóg er að lesa allavega. En ég er búin að spila, kubba, lita, perla og lesa þeim mun meira. Það er hressandi.


En byltingin liggur í loftinu, þetta er búinn að vera ótrúlegur dagur. Ég hef aðeins náð að fylgjast með mótmælunum í dag en það var merkilegast að hlusta á Alþingi undir dúndrandi trumbuslættinum. Það er erfitt að þola þannig aðstæður og kveikiþráðurinn var stuttur hjá þeim sem töluðu. Sem er gott. Hann Emil minn orðar hlutina nefnilega miklu betur en ráðherrar í dag.


Svör forsætisráðherra, flutt af Emil from daia reykjalin on Vimeo.


Á netinu gengu listar yfir netföng þingmanna á norska og sænska stórþinginu, það seinna var einmitt að fjalla um lán til Íslands, og hvatning um að senda þingmönnum póst. Ég þurfti að hugsa mig lengi um áður en ég tæki þátt í því, af því ég er frekar á móti óumbeðum tölvupóstum/spammi, en að lokum ákvað ég að senda bréf en láta þar við sitja og breiða ekki út listann. En ég fékk nokkur svör.
Og þeir virðast hafa fengið fleiri bréf því þetta kom á einn facebook hópinn áðan:

Svör eru nú að berast úr öllum áttum, það berast svör frá Noregi og Danmörku, eins Svíþjóð. RÚV vill núna fylgja okkur eftir og fjalla um skriflegu mótmælin í Kastljósinu, menn eru að taka heldur betur við sér.
Björg Eva blaðamaður, var boðuð til Noregs í hvelli, í viðtalsþátt á morgun í norska ríkissjónvarpinu. Þar sem hún verður spurð út í skriflegu mótmælin sem þykja víst einstakt afrek og marka mikil tímamót í þessari baráttu, segir hún. Hún vill meina að þau hafi gert útslagið og að norðurlöndin og heimurinn hafi loksins áttað sig á alvöunni hérna og vaknað til vitundar um ástandið hérna sem er skelfilegra en þeim hefði nokkurn tíma geta grunað.
Íris Erlingsdóttir skrifar um Ísland á forsíðu Huffington Post í Bandaríkjunum, hana er að finna hér á facebook og hún biður alla þá sem vilja tjá sig eða hafa eittvað að segja henni að hafa samband, hún þiggur einnig ljósmyndir ef einhverjir geta hjálpað henni með það.
Svíar eru enn og aftur búnir að fresta afgreiðslu tillögunnar um IMF lánið, frá 23 til 29. janúar vegna viðræðna við hin Norðurlöndin.


Hvað kemur út úr þessu er erfitt að spá. Það virðist vera nokkuð breið samstaða um tillögur sem Njörður P. Njarðvík setti fram, um nýtt lýðræði og endurbætta stjórnarskrá, jafnvel undir forystu Páls Skúlasonar fv. rektors HÍ, fram að kosningum.


Þriðjudagur 20. janúar 2009 kl. 23:35
Flokkað sem