þjóðmálin og þjóðarsálin

Margt hefur gerst síðustu daga í þjóðlífinu og sér ekki fyrir endann á. Ég ætla kannski að tjá mig sem minnst um það, en líma hérna eitt komment eftir óþekktan sem ég sá einhversstaðar.

Sjálfstæðisflokkurinn er ríki í ríkinu enda hafa þeir komið sér þar alls staðar fyrir og sleppa þar ALDREI sjálfviljugir þeim tökum sem þeir hafa á innviðum kerfisins sem þeir byggðu upp handa sér og sínum.
Ég tel mikilvægast af öllu nú að almenningur í landinu sjái í eitt skipti fyrir öll í gegnum þann skaða sem flokkurinn hefur ollið þjóðinni.
Þeir sem kjósa flokkinn, sem hefur verið stærstur allra flokka hér á landi, almenningur, hljóta að refsa flokknum harkalega. Ef fólk er heilbrigt hér, sem er reyndar mikið vafaatriði, þá kýs það ekki flokkinn aftur í áratug eða svo á meðan verið er að hreinsa til bæði innan flokks sem og samfélagið allt og innviði þess.
Mun það gerast, þ.e.a..s að menn hætti að kjósa flokkinn sinn næst árin?
Reynslan hefur sýnt að hollusta kjósenda Sjálfstæðisflokksins er slík að hún er ekki einu sinni bundin velferð viðkomandi kjósanda, heldur hefur það verið svona sjálfsvirðingaratriði að GETA kosið flokkinn, hafa haft EFNI á því, þó að augljóst sé að sú hollusta sé ekki endurgoldin í betri lífskjörum fyrir viðkomandi almenna kjósanda.
Ég held, því miður, að Sjálfstæðisflokkurinn muni áfram má miklu meira fylgi en hann hefur unnið fyrir sökum fyrrnefndrar hollustu kjósanda hans þrátt fyrir að engar rökrænar skýringar búi þar að baki. Þetta er tilfinningalegt (miskilið) sjálfsvirðingaratriði hjá fólki og skortur á SJÁLFSTÆÐRI hugsun.

Föstudagur 30. janúar 2009 kl. 18:22 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 0

bólan sem hleypur um allt!

Um leið og Danni hristi af sér hlaupabóluna kom hún í ljós á Emil litla. Hlaupabóla er sennilega réttnefni. Ég eyði því flestum dögum í að mála barnið með Kalamin áburði og set hann í matarsóda bað. Hann er ekkert sérstaklega illa haldinn, þó hann sé með mikið af útbrotum, en hann sefur samt svolítið stopult því ég hef ekkert verið að setja hann út í vagn. En svona er lífið, það lítur út fyrir að hann fái mótefni fyrir lífstíð fyrst þetta birtist svona kröftuglega, sagði hjúkkan við mig í símann áðan. Það er þá bót í máli.

Föstudagur 23. janúar 2009 kl. 16:42 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 0

Lausnin!

Góð lesning, gefur manni von.

Miðvikudagur 21. janúar 2009 kl. 15:30 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem samfélag / 0

að lifna við

Ég hef verið þögul á blogginu upp á síðkastið. Ástæðan er sú að Danni lagðist í hlaupabóluna í byrjun janúar og er að stíga upp úr henni þessa dagana. Í dag var fyrsti heili dagurinn í leikskólanum. Ég hef því lítið náð að eða viljað opna tölvuna nema til að kíkja á facebook og fyrirsagnirnar, nóg er að lesa allavega. En ég er búin að spila, kubba, lita, perla og lesa þeim mun meira. Það er hressandi.


En byltingin liggur í loftinu, þetta er búinn að vera ótrúlegur dagur. Ég hef aðeins náð að fylgjast með mótmælunum í dag en það var merkilegast að hlusta á Alþingi undir dúndrandi trumbuslættinum. Það er erfitt að þola þannig aðstæður og kveikiþráðurinn var stuttur hjá þeim sem töluðu. Sem er gott. Hann Emil minn orðar hlutina nefnilega miklu betur en ráðherrar í dag.


Svör forsætisráðherra, flutt af Emil from daia reykjalin on Vimeo.


Á netinu gengu listar yfir netföng þingmanna á norska og sænska stórþinginu, það seinna var einmitt að fjalla um lán til Íslands, og hvatning um að senda þingmönnum póst. Ég þurfti að hugsa mig lengi um áður en ég tæki þátt í því, af því ég er frekar á móti óumbeðum tölvupóstum/spammi, en að lokum ákvað ég að senda bréf en láta þar við sitja og breiða ekki út listann. En ég fékk nokkur svör.
Og þeir virðast hafa fengið fleiri bréf því þetta kom á einn facebook hópinn áðan:

Svör eru nú að berast úr öllum áttum, það berast svör frá Noregi og Danmörku, eins Svíþjóð. RÚV vill núna fylgja okkur eftir og fjalla um skriflegu mótmælin í Kastljósinu, menn eru að taka heldur betur við sér.
Björg Eva blaðamaður, var boðuð til Noregs í hvelli, í viðtalsþátt á morgun í norska ríkissjónvarpinu. Þar sem hún verður spurð út í skriflegu mótmælin sem þykja víst einstakt afrek og marka mikil tímamót í þessari baráttu, segir hún. Hún vill meina að þau hafi gert útslagið og að norðurlöndin og heimurinn hafi loksins áttað sig á alvöunni hérna og vaknað til vitundar um ástandið hérna sem er skelfilegra en þeim hefði nokkurn tíma geta grunað.
Íris Erlingsdóttir skrifar um Ísland á forsíðu Huffington Post í Bandaríkjunum, hana er að finna hér á facebook og hún biður alla þá sem vilja tjá sig eða hafa eittvað að segja henni að hafa samband, hún þiggur einnig ljósmyndir ef einhverjir geta hjálpað henni með það.
Svíar eru enn og aftur búnir að fresta afgreiðslu tillögunnar um IMF lánið, frá 23 til 29. janúar vegna viðræðna við hin Norðurlöndin.


Hvað kemur út úr þessu er erfitt að spá. Það virðist vera nokkuð breið samstaða um tillögur sem Njörður P. Njarðvík setti fram, um nýtt lýðræði og endurbætta stjórnarskrá, jafnvel undir forystu Páls Skúlasonar fv. rektors HÍ, fram að kosningum.

Þriðjudagur 20. janúar 2009 kl. 23:35 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem 0

Árið 2009

Árið 2009 verður ár íslenskrar hönnunar, handverks, matargerðar, framleiðslu og þjónustu. Íslenskt er frábært, þó fyrr hefði verið. Ódýr innflutningur er að verða liðin tíð en hann hefur nánast gengið að íslenskri framleiðslu dauðri. Ég horfði á sögu Sambandsins um daginn á meðan ég hengdi upp þvottinn (multitasking sko) þar sem Akureyri kemur ekki lítið við sögu. Hugsjónin var göfug en þegar menn hættu að trúa á hana (eða menn sem tóku við höfðu ekki þessa tengingu) og vinna eftir henni fór allt á hliðina. Ótrúlegt að allar þessar verksmiðjur séu horfnar, klæðagerðir, skinnaiðnaður og ullarverksmiðjur. Um tíma unnu 800 manns í verksmiðjum Sambandsins. Mikið yrði ég glöð ef þetta lifnar við og þá ekki endilega undir gömlum merkjum heldur á nýjum forsendum. Hönnuðir þurfa á léttum iðnaði að halda til að þróa vörur og ég er handviss um að við getum gert svo ótrúlega margt nýtt. Sem dæmi á Emil nokkrar flíkur frá Janus, sem eru norsk ullarföt. Hvar eru þessi íslensku? Jú 66N eru með flíkur úr ullarflís en bæði þeir og Cintamani eru að framleiða erlendis. Væri ekki hægt að vera með ullar og prjónaverksmiðju sem prjónaði bara efni sem væri hægt að sauma úr?


Sjálf er ég að fletta bókinni "lærið að prjóna" frá 1992, og prjóniprjón bókin er á leiðinni og ætla að fara að prjóna buxur á Emil. Ég búin að fitja upp og komin með nokkrar umferðir. Þær verða brúnar úr blönduðu ullargarni og akrýl. Skal setja inn mynd eftir því sem líður á. Ef þetta tekst þá langar mig í ullarvesti og prjóna svo kannski ullarbleiubuxur á stráksa. Þá verður líka örugglega komið aftur nýtt ár.


Seinna: Danni kom að mér þegar ég sat við prjónana og spurði: "Ertu að prjóna skip?"
hehe, góð hugmynd!

Laugardagur 03. janúar 2009 kl. 14:07 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem heimilið / samfélag / uppeldi / 3