Árið 2008

Mér finnst gamlársdagur alltaf jafn merkilegur. Að horfa út um gluggann og hugsa sér að þetta ár komi aldrei aftur. En svo virðist sem það sé ekki margt sem breytist nema í huganum.


Það er samt ýmislegt búið að breytast þegar maður lítur til baka. Um síðustu áramót áttum við heima í Danmörku, vorum bæði að byrja á síðustu önn í skólanum og lítill bumbubúi búinn að hreiðra um sig, sennilega ekki nema nokkrir millimetrar að stærð á þessum tíma í fyrra en samt svo merkilegur.
Þetta ár, 2008, er búið að vera mjög gott fyrir okkur persónulega þó svo að þjóðhagslega hafi það verið skelfilegt. Þið vitið öll allt um það, þess vegna ætla ég aðallega að telja upp það sem snýr að okkur:


Í janúar og febrúar var ég nánast frá af ógleði, sem betur fer var engin kennsla í skólanum, bara verkefni sem við unnum hvar sem við vildum. Ég hélt mig heima, inni á baði. Það féll yfir okkur hreiðurgerðartilfinning á þessum tíma og við gerðum tilboð í hús á Akureyri, en sem betur fer núna náðum við að bakka út úr því og fundum okkur íbúð til að leigja.


Í dymbilvikunni í mars stendur það uppúr að krónan féll þannig að danska krónan fór úr rúmlega 11 yfir í 14. Það hafði bein áhrif á okkur sem bjuggum úti en ef við hefðum vitað hvað væri framundan hefðum við sennilega gripið tækifærið og fært meiri pening út, við biðum alltaf eftir því að krónan færi í 12 aftur, en það á sennilega ekki eftir að gerast aftur.
Í apríl "fagnaði" ég því að vera komin á fertugsaldurinn.. glúbb, það er svolítið erfitt ennþá að segja það. En 30 ára í lok apríl var staðreynd sem var ekki hægt að flýja.
Í maí klárði ég verkefnin í skólanum og útskrifaðist í júní með AP diplómu í Multimedia Design and Communication. Þá byrjuðum við að undirbúa flutninga, m.a. með því að byrgja okkur af H&M fötum á allt heimilisfólkið sem og jóla- og afmælisgjöfum áður en við kæmum í íslenska verðbólgubálið. Við byrjuðum líka að pakka niður í kassa til að flytja heim og Óli flaug heim í atvinnuviðtöl og var svo ráðinn hjá hugbúnaðarfyrirtækinu Theriak á Akureyri.


Í byrjun júlí skilaði Óli inn mastersritgerðinni sinni og gámurinn kom 8. júlí. Við flugum svo frá dásamlegu Danmörk þann 11. júlí, ég komin 7,5 mánuð á leið og Danni búinn að kveðja sinn besta vin. Við fengum íbúðina strax en fluttum ekki inn fyrr en 26. júlí þegar gámurinn kom. Við höfðum gerst svo heiðarleg að gefa upp carlsberg kassann sem var keyptur í Bilka áður en lagt var í hann svo það kostaði gáminn nokkurra daga töf og andvirði kassans í áfengisgjald.
Við vorum snögg að koma okkur fyrir í Heiðarlundi og það verður erfitt að fara þaðan aftur, hvenær sem það verður.


Í ágúst biðum við eftir bumbubúanum en þó bara í 4 daga því hann kom aðfaranótt sunnudagsins 31. ágúst eftir 7 tíma verki. Emil Ragnar var svo skírður núna á aðventunni.

Það er búið að vera nóg að gera síðustu vikur með svona lítinn gutta, þó hann sé ósköp auðveldur og ljúfur strákur.

Ég er þess vegna búin að vera í svolítilli bloggpásu hérna megin, en ætla mér að ná svolítið meiri virkni í bloggið á nýju ári en kannski með nýjum áherslum. Auk þess sem ég ætla að fara í meiri handavinnu og hugmyndavinnu og þróun á ýmsu sem ég er með á prjónunum. Markmiðið hefur yfirleitt verið að láta sem flest af því sem maður er að hugsa rætast og þessvegna er áramótaheitið mitt yfirleitt að vera duglegri og markvissari í því sem maður er að gera, vinna hratt á todo listunum og klára það sem maður byrjar á. Ég verð í fæðingarorlofi fram á vor og eitthvað lengur heima að vinna við ýmis verkefni sem alltaf detta inn. Ég hef ekki áhyggjur af framtíðinni fyrir okkur persónulega, en kannski maður geti lagt eitthvað að mörkum samfélagslega.


Takk fyrir lesturinn og gleðilegt ár!


Miðvikudagur 31. desember 2008 kl. 17:39
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.