Svona á að hjálpa námsmönnum erlendis!

Það á að hjálpa þeim á næsta ári! Passa örugglega að enginn fái neitt nema viðkomandi nái prófunum!
Heimska skriffinnsku fólk! Djöfull er maður að verða pirraður.


Miðvikudagur 12. nóvember 2008 kl. 15:58
Flokkað sem samfélag. Þar eru 71 færslur.

/ Álit

Valdís:

Þetta er ótrúlegt! Ekkert fyrr en eftir dúk og disk. Þetta lið hefur greinilega aldrei þurft að lifa sjálft af námslánum, það er alveg ljóst.

12.11.08 17:43


Guðrún Björk:

Nei Gunnar Birgisson er hreint ekki rétti maðurinn til að stýra Lánasjóðnum, svo nokkuð er víst. En svo ég bæti nú við hversu ömurleg þetta lánstilboð er útfært, þá þurfa þeir sem telja sig vera í sárri neyð til að sækja um að fá neyðarlán að rökstyðja neyð sína og senda með umsókninni gögn rökstuðiningnum til sönnunar. Eins og ástandið og gengislækkun síðustu mánaða, a.m.k. frá því í marsmánuði séu ekki nóg sönnun þess að fólk hafi orðið fyrir verulegri framfærsluskerðingu.

14.11.08 11:28