Hugsandi einstaklingar gera skapandi samfélag

Þó það sé kreppa í landinu þá er alltaf nóg að gera hérna megin við heiðina. Ég er með nokkur vinnuverkefni í gangi, reyni samt sem áður að takmarka það á meðan drengurinn er mjög ungur en ég verð samt að halda mér við og halda í samböndin. Auk þess sem mig langar til að gera eitthvað nýtt og skemmtilegt, jafnvel þó það borgi ekki enda bannar sjóðurinn mér að vinna á meðan ég er á fæðingarstyrk námsmanna. Fáránlegt, en látum það vera.


Ég verslaði slatta af barnafötum þegar við bjuggum úti í DK jafnvel þó snáðinn minn væri ekki fæddur. Danir eru snillingar í að hanna barnaföt og fullt af merkjum (1,2,3,4,5,6) sem eru ekki bara með flott mynstur heldur frábær snið og leggja mikið uppúr gæðum þannig að bómullin sé lífræn og þannig laus við skaðleg efni, og að senda út góðan og fallegan boðskap í vörumerkinu. Mig dreymir þessa dagana að fara að sauma barnaföt með flottri grafík og þægilegu sniði, aldrei að vita nema ég skoði það betur eftir jólin. Hér með komið á todo listann.


Ég útbjó um daginn opnuna mína í Gráu bókina sem verður gefin út í tilefni af 55 ára afmælis FÍT, félags íslenskra teiknara. Arkitektafélag Íslands er líka að leita að nýju merki og ég hef verið að velta fyrir mér að senda í þá samkeppni, ekki komin langt með það reyndar og er að renna út á tíma með það. Svo var ég að spá í að taka þátt í vöruþróunarverkefni Útflutningsráðs Íslands og Hönnunarmiðstöðvar Íslands og er búin að vera að skissa á fullu. Það er skemmtilegt og virkilega krefjandi verkefni. Um daginn var haldin ráðstefna um hönnun og nýsköpun og það væri áhugavert að fá samantekt af henni til að sýna hverju hún hefur skilað, bæði fyrir þá (mig) sem komust ekki og svo boðskapurinn lifi áfram.
Ég finn það einhvernvegin í loftinu að það er ótrúlega mikil orka og vilji til að gera samfélagið meira skapandi og betra, og ef eitthvað jákvætt er við þessa niðursveiflu þá verður það að við erum farin að líta okkur nær. Það eru komnir 7 árgangar sem hafa útskrifast frá hönnunardeild LHÍ og þar margir alveg frábærir hönnuðir og multi-talentar. Núna er þessi hópur ásamt öðrum að taka við keflinu því það verður varla í boði lánsfjármagn til stórframkvæmda -amk ekki á sömu kjörum og voru, enda er það litlu framkvæmdirnar sem við þurfum á að halda - og fullt af þeim! Ég myndi til dæmis vilja sjá fókus Húsvíkinga beinast frekar að heilsuhótelinu að Þeistareykjum heldur en að drekkja sér í volæði yfir því að einhver kjelling fyrir sunnan hafi eyðilagt möguleika þeirra á að dansa við áldjöfulinn.
But hey, that's just me.


Laugardagur 29. nóvember 2008 kl. 23:32
Flokkað sem hönnun. Þar eru 162 færslur.

/ Álit

Tryggvi R. Jónsson:

Þetta er augljóslega tími Pjúsarafélagsins kominn fyrr en við ætluðum :-)

30.11.08 10:53


Inga Hrund (sem var í HR með Óla Helga):

Já þetta er sérstaklega ósanngjarnt þar sem fólk sem fer í "venjulegt" fæðingarorlof má vera í 20% vinnu (eða meira ef það hefur dreift orlofinu sínu). Þú getur kannski notað tímann og barist fyrir breytingu á þessu ákvæði fyrst að þú mátt ekki nota tíma þinn í neitt sem þú getur selt :)

03.12.08 22:04


johanna:

góð hugmynd með barnafötin!

03.12.08 22:29