Hugsandi einstaklingar gera skapandi samfélag
Þó það sé kreppa í landinu þá er alltaf nóg að gera hérna megin við heiðina. Ég er með nokkur vinnuverkefni í gangi, reyni samt sem áður að takmarka það á meðan drengurinn er mjög ungur en ég verð samt að halda mér við og halda í samböndin. Auk þess sem mig langar til að gera eitthvað nýtt og skemmtilegt, jafnvel þó það borgi ekki enda bannar sjóðurinn mér að vinna á meðan ég er á fæðingarstyrk námsmanna. Fáránlegt, en látum það vera.
Ég verslaði slatta af barnafötum þegar við bjuggum úti í DK jafnvel þó snáðinn minn væri ekki fæddur. Danir eru snillingar í að hanna barnaföt og fullt af merkjum (1,2,3,4,5,6) sem eru ekki bara með flott mynstur heldur frábær snið og leggja mikið uppúr gæðum þannig að bómullin sé lífræn og þannig laus við skaðleg efni, og að senda út góðan og fallegan boðskap í vörumerkinu. Mig dreymir þessa dagana að fara að sauma barnaföt með flottri grafík og þægilegu sniði, aldrei að vita nema ég skoði það betur eftir jólin. Hér með komið á todo listann.
Ég útbjó um daginn opnuna mína í Gráu bókina sem verður gefin út í tilefni af 55 ára afmælis FÍT, félags íslenskra teiknara. Arkitektafélag Íslands er líka að leita að nýju merki og ég hef verið að velta fyrir mér að senda í þá samkeppni, ekki komin langt með það reyndar og er að renna út á tíma með það. Svo var ég að spá í að taka þátt í vöruþróunarverkefni Útflutningsráðs Íslands og Hönnunarmiðstöðvar Íslands og er búin að vera að skissa á fullu. Það er skemmtilegt og virkilega krefjandi verkefni. Um daginn var haldin ráðstefna um hönnun og nýsköpun og það væri áhugavert að fá samantekt af henni til að sýna hverju hún hefur skilað, bæði fyrir þá (mig) sem komust ekki og svo boðskapurinn lifi áfram.
Ég finn það einhvernvegin í loftinu að það er ótrúlega mikil orka og vilji til að gera samfélagið meira skapandi og betra, og ef eitthvað jákvætt er við þessa niðursveiflu þá verður það að við erum farin að líta okkur nær. Það eru komnir 7 árgangar sem hafa útskrifast frá hönnunardeild LHÍ og þar margir alveg frábærir hönnuðir og multi-talentar. Núna er þessi hópur ásamt öðrum að taka við keflinu því það verður varla í boði lánsfjármagn til stórframkvæmda -amk ekki á sömu kjörum og voru, enda er það litlu framkvæmdirnar sem við þurfum á að halda - og fullt af þeim! Ég myndi til dæmis vilja sjá fókus Húsvíkinga beinast frekar að heilsuhótelinu að Þeistareykjum heldur en að drekkja sér í volæði yfir því að einhver kjelling fyrir sunnan hafi eyðilagt möguleika þeirra á að dansa við áldjöfulinn.
But hey, that's just me.
hugleiðing dagsins
Búum við í rússneskri þvottavél?
Áhugavert myndband
Ég rakst á mjög áhugavert myndband, viðtal við nýsjálensku kvikmyndagerðarkonuna Barböru Doran frá 2006, þar sem hún talar um heimildarmynd sína sem fjallar um samanburð á Íslandi og Nýfundnalandi. Ísland öðlaðist sjálfstæði 1945 en Nýfundnaland tapaði sjálfstæði sínu í hendur Kanada árið 1949. Hvernig er mismunandi sjálfsmynd þjóðanna.
Áhugavert.
Hvíta byltingin
Svona á að hjálpa námsmönnum erlendis!
Það á að hjálpa þeim á næsta ári! Passa örugglega að enginn fái neitt nema viðkomandi nái prófunum!
Heimska skriffinnsku fólk! Djöfull er maður að verða pirraður.
Hlekkir dagsins 10/11
- Svona verður Næsta Ísland Hjálmar Gíslason
- Economy crash course, taktu fyrirlestrana á þínum hraða og sjáðu hvernig heimurinn er staddur. Held að Ísland, með sínar auðlindir, mannfæð og möguleika á sjálfbærni, sé hreinlega besti staðurinn í heimi. En höfum ekki hátt um það.
-
Að slá skjaldborg um Alþingi?
Fékk þetta sent, og finnst þetta snjallt. Ó ef ég væri bara ennþá að vinna í Austurstræti:
---
Við ætlum að "slá" skjaldborg utanum Alþingishúsið,
þar sem fólk helst í hendur og myndum hring utan um húsið og garðinn
helst marga hringi þannig að þingmenn þurfa að beygja sig undir hendur okkar til að komast inn og út.
Við meinum þeim ekki útgang en það verður erfitt fyrir þá að beygja sig:o)
Þetta eiga að vera friðsamleg mótmæli en ákveðin
Skilaboðin eru skýr
Við stöndum vörð um Lýðræðið
Við stöndum saman
Við eigum Alþingishúsið
Alþingismenn eiga að vinna fyrir okkur ekki gegn okkur
Við ráðum hverjir eiga að vinna þar - ekki þeir
Þeim er sagt upp en neita að hætta?
Klukkan 12:00 á miðvikudaginn nk. 12. nóvember
Þeir sem ætla að mæta - eru beðnir að skrá sig inn á skjalið
"Mótmæli" á miðvikudag. (Facebook)
Takk Færeyingar

Takk Færeyingar, fyrir höfðinglega og óeigingjarna aðstoð. Ég vil samt sem áður biðja ykkur að halda í peninginn ykkar þangað til spillta liðið er farið í steininn og við getum byrjað að byggja upp.
Hlekkir dagsins 3/11
Ég ætla að halda áfram að pósta því sem ég er að skoða, þó ég setji það líka í del.icio.us þá finnst mér alveg ástæða til að dokúmenta það líka hér.
- Ímynd Íslands (sem er reyndar í svartholi núna) þetta skrifaði ég fyrir einu og hálfu ári og tengist "Experience Economy" sem þyrfti að vera drifkraftur í ferðaþjónustunni á næstunni.
- Landsbyggðin lifi eru samtök með góð markmið og mikinn metnað og þar eru líka áhugaverðar umræður.
- Jólatré
- Það eru allir að tala um nýsköpun. Nýsköpun er næsta álver, loðdýrabú og fiskeldi. Með réttu. Ætti maður að skrifa eitt blogg um T-in þrjú í nýsköpun (sem eru technology, tolerance og talent). Eða um nýsköpun vs. hugmyndaauðgi (innovation vs creativity).
3
