recycle!

Þegar við vorum úti í Danmörku flokkuðum við dagblaðapappír og pappa frá öðru rusli enda var blaðatunna úti hjá ruslatunnunum og lítið mál að taka þetta frá. Þegar við komum heim kom það mér skemmtilega á óvart hvað það er hægt að flokka ruslið betur hérna á skerinu. green_recycle_symbol.jpg Allt veltur þetta á því að móttökuaðilinn taki við þessu og flokki rétt. Núna fara allar umbúðir á þessu heimili í endurvinnsluna; mjólkurfernur og plastdallar, niðursuðudósir og plastpokar.
Mér finnst þetta sjálfsögð virðing við umhverfið og náttúruna, en líka ákveðin virðing við umbúðahönnuðinn því þegar maður þekkir hönnunarferlið frá hugmyndafræðinni að fjöldaframleiðslu þykir manni ótrúlega vænt um vöruna, í þessu tilfelli ómerkilegar umbúðir. Þegar maður er búinn að safna þessu saman í nokkra daga er alveg ótrúlegt hvað magnið er mikið og í raun hvað þetta er verðmætt hráefni.
Eins og stendur á síðunni hjá Gámafélaginu:

Pappírsflokkarnir eru pressaðir saman í stóra bagga sem fluttir eru í 40 feta gámum til Svíþjóðar til endurvinnslu. Úr pappírnum eru framleiddar ýmsar pappírsvörur s.s. salernispappír, eldhúspappír, ljósritunarpappír, dagblaðapappír, stílabækur, teiknipappír og margt fleira.
Plastefnin eru flokkuð og fara í endurvinnslu hjá plastmótun sem er að setja upp aðstöðu í Gufunesi. Mismunandi plasttegundir eru flokkaðar frá hver annarri og efnið síðan mulið og nýtt til plastframleiðslu á nýjan leik. Afurðir ú endurunnum plastumbúðum eru m.a. vegastikur, rör, girðingastaurar og fleira.
Málmarnir fara í brotajárn sem flutt er erlendis til endurvinnslu. Mikil orka sparast við endurvinnslu málma miðað við framleiðslu þeirra úr grunnefnum. Til að endurvinna ál þarf eingöngu um 5% þeirrar orku sem þarf að frumvinna ál.

Semsagt, verðmætur gjaldeyrir á þessum síðustu og verstu ;)

Ennþá erum við með þetta vel flokkað inni í horni í bílskúrnum en ég ákvað að panta endurvinnslutunnuna, sem er væntalega á leiðinni.


endurvinnsla01.jpg


endurvinnsla02.jpg


Föstudagur 24. október 2008 kl. 09:49
Flokkað sem samfélag. Þar eru 71 færslur.