Nýir tímar á Akureyri
Litla fjölskyldan dreif sig út í stórhríðina í dag til að taka þátt í kröfugöngu. Yfirskriftin var Nýir tímar, rjúfum þögnina. Þrátt fyrir að gangan hafi ekki verið mikið auglýst (hvar er götupósteramenningin þegar maður þarf á henni að halda? eða unga menntaskólafólkið með eldmóðinn? - þegar ég var í M.A. var pólitíkin og þjóðmálin virkilega áberandi og það voru oft kennararnir sem kveiktu neistana) og veðrið var suddalega leiðinlegt, þá fannst mér mætingin vera nokkuð góð. Sennilega milli 50-100 manns. Sem er samt auðvitað sorglegt miðað við ástandið og hvernig menn eru að spá að það verði næstu mánuði.
Ég trúi á fólk og að fólk sé í hjarta sínu með í göngunni og taki undir þann málstað að það má ekki valta yfir okkur, en haldi því fram að mæting þess skili hvort sem er engu. Ég er samt ekki sammála því. Við verðum að láta sjá okkur, láta vita að við erum til og að okkur standi ekki á sama, þó það sé ekki nema bara til að standa og hlusta.
Fánarnir fannst mér sérstaklega skemmtilegir. Þeir voru útbúnir fyrir Akureyrarvöku fyrir skemmstu en eiga mjög vel við í svona göngu. Eldrauðir með gulum fíflum. Við höfum öll verið gerð að fíflum. Bylting fíflanna.
![]()
![]()
![]()
Flokkað sem samfélag. Þar eru 71 færslur.
/ Álit
Mundi:
þessar myndir eru algjör snilld. þær hafa eitthvað svo rússneskt yfirbragð.
já, það var nú líka svolítið rússneskur andi þarna. Um leið og gömlu kommarnir fengu mækinn og fóru að tala um hrun kapítalsins og græðgi nýfrjálshyggjunar fóru nokkur andlit tengd sjálfstæðisflokknum að týnast úr hópnum.
Ég er ekki alveg búin að gera upp við mig hvort var skondnara að heyra í rauðliðunum í sínu langþráða tækifæri til að þruma yfir lýðnum eða sjá blámennina reyna að halda haus eða læðast burt með skottið á milli lappanna.
Hvorutveggja sennilega óborganlegt.
Mér datt einmitt rússland strax í hug og ég sá þessar myndir ... Flott líka að hafa þetta þarna á "landsbankaplaninu" ;)

