mótmæli
Vonandi er fólk að vakna, það eru nóg framundan - Nýir tímar - Við mótmælum öll - , mótmæli á laugardaginn kl 15 á Austurvelli undir forystu Harðar Torfa og Dr. Gunna meðal annars. Þess er krafist að Seðlabankastjóri segi af sér.
Á morgun föstudag verða líka mótmæli eða samstaða (eða meðmæli, ég veit ekki alveg hvað) á Ingólfstorgi kl 17 undir yfirskriftinni "Þjóðina í takt".

Flokkað sem
/ Álit
Guðrún Björk:
Nákvæmlega. Íslendingar þurfa að taka höndum saman núna og horfa til framtíðar, nýta allt það frábæra, vel menntaða og skapandi fólk sem þjóðin á og finna nýjar leiðir til að skapa verðmæti, án þess að ganga á auðlindir þjóðarinnar! Samstaða er það sem þarf gegn spilltum stjórnmálaöflum sem ráðið hafa ríkjum allt of lengi með hörmulegum afleiðingum! Ég tók eftir því að á mbl var sagt frá því að um 500 manns hefðu verið á Austurvelli með Herði Torfa og co, en af myndinni sem fylgdi fréttinni að dæma voru það amk 1000, en trúverðugleika Davíðs má auðvitað ekki sverta, það verða án efa reistir múrar honum til stuðnings. Pistlarnir renna inn á síður mbl til að styðja við hann á stallinum.
Takk fyrir innlitið Guðrún Björk :)
Það er einmitt talað um hve löggan er léleg að telja hérna á þessu bloggi: http://larahanna.blog.is/blog/larahanna/entry/680325/
"Það mátti öllum vera ljóst sem voru á staðnum eða sáu myndir af mannfjöldanum að þetta voru margfalt fleiri en tölur lögreglunnar gáfu til kynna. Er verið að stýra umræðunni? Hæðast að almenningi - þeim sem mættu - og ljúga að þeim sem ekki mættu? Ef svo er þykir mér það ótrúlega bíræfið í ljósi ástandsins í þjóðfélaginu."
Maður verður að fylla sig af bjartsýni ef maður ætlar að búa hérna. Með hugarástandinu getur maður gert svo margt :)
Guðrún Björk:
Nákvæmlega
Og ef hlustað er á fréttina sem flutt er með myndupptökunni sem fylgir sömu frétti, heyrir maður Reuter fréttamanninn segja frá því að a.m.k. 1000 manns hafi tekið þátt í mótmælunum. Maður getur ekki annað en spurt; ætla menn ekki að þroskast og breyta hegðun sinni? Ætlar hið opinbera að ljúga, endalaust?
Skúli Ísleifsson:
út af listanum

