lífið í rússneskri nýlendu

Ekki hefði ég ímyndað mér það að dagurinn í dag ætti eftir að vera svartari en dagurinn í gær. Það var jú eitthvað stórt í uppsiglingu. Stærra en það að bankarnir væru gjaldþrota. Maður sá það á Geir og Jóhönnu, með svitaperlurnar á enninu og grátstafina í kverkunum.

Það rann upp í morgun að um sl. helgi varð Ísland gjaldþrota og Rússar keyptu okkur svo við getum haldið eyðslufylleríinu áfram. Rússneskan vodka í partýið. Og okkur langaði bara að verða edrú og eðlileg.
Rússneska mafían lánar ekki á góðum kjörum bara sísvona af einhverri góðmennsku, í miðri lánsfjárkreppu í heiminum. Það hangir eitthvað á spýtunni, Geir!

Nei, ástæða þess að stjórnarandstaðan var föl í framan eftir fundinn var sú að fullveldi okkar hefur verið selt í hendurnar á Rússum. Grínlaust. Ef við skuldum Rússum 4 milljarða Evra geta þeir sett upp hina ótrúlegustu skilmála. Hlutir eins og friðun Skjálfandafljóts verða aðhlátursefni í þeirra eyrum. Má ég þá frekar biðja um skert lífsgæði og skömmtunarmiða í einhver misseri eins og fyrri kynslóðir gerðu til þess að halda í frelsið, verða ekki þrælar. Þó held ég að Danir séu ákjósanlegri húsbóndar en Rússar.

Við skulum bara vona að sendinefndin sem er á leið til Moskvu hafi flett upp orðunum "fiskimið" og "náttúruauðlindir" í rússneskri orðabók og lesi svo smáa letrið vel áður en þeir svo mikið sem horfa á pennann.

Ég skil ekki hvað allir virðast vera jákvæðir fyrir þessu, en það er kannski bara ég sem er svona vitlaus að halda að það sé ennþá tjáningarfrelsi í landinu. Sennilega verður þessu bloggi lokað, þið vitið þá hvað hefur gerst.

Það er lágskýjað og himinguðirnir gráta með okkur í dag.
Takk Sjálfstæðisflokkur. Takk fjármálafávitar.


Þriðjudagur 07. október 2008 kl. 11:12
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.

/ Álit

Guðrún Björk:

Vel að orði komist. Svo kalla menn þingmenn vinstri grænna gúngur fyrir að hafa setið hjá í atkvæðagreiðslunni í gær. Þeir eru sannkallaðar hetjur og þeir einu sem mæla orð af viti í þessari atburðarás allri. Og hananú!!!

07.10.08 19:37


Áslaug:

Var að hlusta á Davíð í Kastljósi- þar sem hann talar um "þetta vinabragð Rússa" óborganlegt. 800 miljarða vinabragð. Einmitt.

07.10.08 20:24


Dagný:

Aldrei get ég tekið undir það að vinstri grænir séu gungur, það hefði átt að vera búið að hlusta á þá fyrir lifandis löngu, að hugsa sér að bankarnir hafi mátt verða svona geðveikislega stórir án þess að það sé einhver rammi til að fylgjast með þeim. Þegar maður horfir á það eftirá er það náttúrulega bara galið!

En já, Rússarnir vinir okkar. Þeirra vinnubrögð eru yfirleitt þannig, þegar þeir vilja ná einhverju í gegn, að gauka einhverju lítilræði að viðsemjandanum til að mýkja hann. Mér finnst undarleg þessi ákefð að vilja frekar ganga til viðræðna við þá, og segja pent "takk, en nei takk, við erum búnir að redda þessu" við Norðmenn og Alþjóða gjaldeyrissjóðinn sem eru báðir búnir að sýna áhuga, að fyrra bragði, á að koma okkur til aðstoðar.
Ef þið viljið kalla það mútur, þá þið um það.

Minnist þessa þegar þið hlustið á herþotugnýinn.

07.10.08 21:58


Mundi:

...já - það lyktar af því að það hangi eitthvað meira á spýtunni en bara góðmennskan ein. Enda er nú sennilega barnalegt að halda að peningamaskína heimsins sýni eitthvað slíkt sem hana af sér. Ætli þetta hafi eitthvað að gera með stirðandi samskipti austurs og vesturs. Nú er enginn kani lengur hér. Verður næsta stóriðja íslands rússnesk herstöð á langanesi? Eru þeir að smygla sér inn á NATO svæðið með þessu? Allavega er víst að það verður erfitt að reka þá burt úr lofthelginni þegar þeir allt í einu birtast þar óvænt.


jákvæðu áhrifin verða hins vegar hugsanlega þau að þingeyskir bændur geti aftur farið að aka um á lödum.

07.10.08 22:06


Mundi:

áhyggjur mínar af ástandinu, eru hins vegar þær að nú verði rekið í gír og farið af stað með gríðarlegar stórframkvæmdir til að halda uppi atvinnu og auka útflutning til lengri tíma.

En hafa menn ekkert lært? síðasta framkvæmd stendur því sem næst enn yfir og ég man ekki betur en hún hafi átt að redda málunum. hvar stöndum við í dag?

07.10.08 22:11


Dagný:

Nákvæmlega Mundi. Nákvæmlega.

07.10.08 22:27


Dagný:

...líka spurning hvort þetta tengist Öryggisráðinu sem við svo óskaplega þráum að komast í án þess að hafa efni á því. Komum við til með að þurfa að gúddera allt sem Rússar vilja gera, gegn öllum þeim gildum sem við stöndum fyrir. Svona eins og með Írak.

07.10.08 22:37


baddy:

Græðgin hefur aldeilis farið með landann núna, ég er eiginlega bara fegin að eiga ekkert. Hélt fólk virkilega að góðærið myndi endast að eilífu??
Það vantaði alveg eitthvað taumhald á þessa banka. Reyndar skilst mér að seðlabankastjóri hafi verið búinn að minna bankana á að fara ekki fram úr sjálfumsér eins og þeir síðan gerðu, með einkavæðingu bankanna á sínum tíma þá missti seðlabankinn alla stjórn á bönkunum.

En ég er skíthrædd við að fá lán hjá rússum, mér er ekki nógu vel við þá. Ég efast um að þeir hafi einhverntíman verið sanngjarnir í samningum - en ég þekki nú reyndar ekki svo vel til. Ég var að hlusta á fréttirnar núna rétt í þessu og þar var búið að loka mörkuðunum í Rússlandi í dag og fólk þar ytra furðaði sig á því að þeir gætu lánað okkur þennan pening. - þetta er eitthvað gruggugt. Flugvöllurinn freistar þeirra eflaust.

Maður þorir varla að hugsa til framtíðarinnar.. bara lifa einn dag í einu!. Ég er allavegana fegin að vinna hjá ríkinu:)

08.10.08 13:02