lesið og horfið

Er það nokkuð táknrænt að fyrir akkúrat ári síðan horfðum við á (heimildar/áróðurs) myndina Zeitgeist. Hún er búin að vera mér ofarlega í huga síðan.
Hún fjallar í megindráttum um það hvernig ástandið í nútímanum er komið til, og á hvaða braut við erum til framtíðar. Þar er tekið t.d. inn trúarbrögð, árásin á WTC, bankakerfið og aðferðir gráðugra manna til að koma á alheimsríkisstjórn. Þar kemur Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn, sem veifa okkur útréttri "hjálparhönd" þessa daga, mikið við sögu.


Í ljósi atburða síðustu vikna getur maður ekki annað en verið með hnút í maganum yfir því hvað mun gerast næstu daga. Endilega lesið þetta líka og kíkið á myndbandið í leiðinni: EKKI IMF TAKK!


Þriðjudagur 14. október 2008 kl. 13:45
Flokkað sem samfélag. Þar eru 71 færslur.

/ Álit

Gunna:

Horfði einmitt á Zeitgeist fyrir stuttu. Ég hef aldrei verið mikið fyrir samsæriskenningar og leiðist eiginlega öll öfga-paranoia. Líklega afþví að ég er svo einföld að ég vil geta treyst fólki, en mér hefur einmitt verið mjög hugsað til heimildarmyndarinnar – rétt fyrir stríð/kosningar er togað í nokkra spotta og, et voila, þá tekst að skapa ótta almennings, og æðstu strumpar spila beint inn á hræðsluna.

En jæja... !

Bestu kveðjur til ykkar annars, vonandi hafiði það gott.
:)

16.10.08 21:58


Dagný:

takk fyrir kveðjuna :)
já, ég myndi helst vilja treysta fólki líka, það er einmitt alveg tryllingsleg sálfræði sem er verið að beita á fjöldann til að ná að stýra honum. Sá aðra BBC mynd í fyrra, Century of the Self
http://www.reykjalin.com/blog/archives/2007/09/old_sjalfsins.html
sem er áhugaverð að þessu leyti.

Það er reyndar komin önnur Zeitgeist mynd, en ég er svo paranoid að ég þori ekki að horfa á hana, ég missi þá örugglega svefn og mjólkina í leiðinni held ég bara.

16.10.08 22:44