indefence.is

Síðunni hefur borist tilkynning:

Við getum ekki setið aðgerðarlaus lengur.

Að gefnu tilefni hafa sprottið upp óánægjuraddir vegna þeirrar meðferðar sem við höfum fengið hjá bresku ríkisstjórninni. Nú er tækifæri til þess að láta að sér kveða.
Íslenskur almenningur getur ekki setið undir því að vera brennimerktur hryðjuverkamenn til þess að þjóna pólitískum skammtímasjónarmiðum einstakra breskra stjórnmálamanna og styrkja samningsstöðu bresku ríkisstjórnarinnar. Ekki er nóg með að þetta hafi breytt grafalvarlegri stöðu í efnahagshrun, heldur hefur almenningsáliti í Bretlandi og utan þess verið snúið gegn íslensku þjóðinni, með þeim afleiðingum að viðskiptahöft breiðast út um Evrópu með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Við verðum að láta rödd okkar heyrast þó fámenn séum, og dugir þá ekki annað en að allir taki undir.
Tölum beint til bresku þjóðarinnar, fáum hana á okkar band og hindrum saman frekari skaða. Stöndum saman og skrifum undir skilaboð frá íslensku þjóðinni og vinum hennar á www.indefence.is.
Fáum hryðjuverkastimplinum aflétt.
Vinsamlega láttu þetta berast - fáum alla með.
www.indefence.is

- -

Reyndar mætti benda á þetta líka, því það er nokkuð mikið til í að framsetningin á þessari undirskriftasöfnun er svolítið varasöm.


Grundvallaregla í ímyndarvinnu er að nota ekki þau orð sem maður vill ekki standa fyrir. Sá sem vill ekki vera talin hryðjuverkamaður á ekki að nota það orð. Hann á að nota það orð sem endurspeglar það sem hann vill standa fyrir.

Þetta er svipað og að tala við börn, sonur minn er hættur að skilja orðið EKKI.. sbr. "ekki skella hurðinni", þá heyrir hann bara SKELLA HURÐINNI. Þá er betra að segja "lokaðu rólega".


Miðvikudagur 22. október 2008 kl. 14:41
Flokkað sem netið. Þar eru 105 færslur. / samfélag. Þar eru 55 færslur.

/ Álit

Kristján Sigurjónsson:

Vinsamlegast takið "okkur" af listanum.

22.10.08 16:38


Markus Mar Arnason:

Vinsamlegast takið íslendinga af listanum 22.10.2008

22.10.08 19:21


Dagný:

..uuuuu...... (?!)

..Takk fyrir innlitið strákar, en þetta er ekki undirskriftalistinn.. ;)
Ég er komin með svo rosalegt gúdvill hjá google að ef þú gúglar indefence þá kemur þessi færsla nr 3, kannski það hafi ruglað einhvern...

23.10.08 09:28


Ástrún Lilja Sveinbjarnardóttir:

Ég er ekki hriðjuverkakona, það skal enginn voga sér að kalla mig það

26.10.08 12:19


Fanney Á Jónsdóttir:

mótmælum harðlega að vera stimluð sem hryðjuverkamenn

26.10.08 23:49


Jón Jónsson:

mótmæli framgöngu breskra stjórnvalda við islendinga

26.10.08 23:54


hildur:


Ekki hryðjuverkamaður

27.10.08 10:23


Dagný:

Gott fólk... ÞETTA ER EKKI LISTINN!!
Hann er á www.indefence.is ... vá!

28.10.08 20:58


Páll Pétursson:

Ég er friðelskandi

28.10.08 21:26


/ Þitt álit




Leggja upplýsingar á minnið

(mátt nota HTML fyrir textaáherslur)