fyrsti í snjó

Ég er ein heima með drengina núna í nokkra daga því Óli fór í vinnuferð til Noregs fram á sunnudag. (Það er nú ágætt að hugsa til þess að einhver sé að koma með gjaldeyri inn í landið, ekki satt?)
Þar sem það snjóaði hressilega í gær hérna á Akureyri ákváðum við að pakka Emil niður í vagn og fara labbandi í leikskólann í morgun. Bíllinn er ennþá á sumardekkjum og það var vel kalt úti og þessvegna hált (og mikil bensíneyðsla og mengun með köldum bíl - allt sem spilaði á móti því að kveikja á honum) og ekki mikið stress á okkur. Það var líka hressandi að fá hálftíma göngutúr í býtið og sá minnsti svaf svo framundir hádegi. Simo vagninn sem við keyptum úti er að gera stormandi lukku, virkilega þægilegt að keyra hann í smá snjó.

Ég er reyndar ekki mikið farin að fara í göngutúra þar sem Emil er jú bara rúmlega 4 vikna ennþá og nýfarinn að geta farið út. Þegar hitastigið fer aftur yfir frostmarkið förum við á meira ról því það er magnað hvað vegalengdir eru stuttar í þessum bæ, auk þess sem maður getur alltaf hoppað upp í ókeypis strætó ef maður hættir sér of langt.


Fimmtudagur 02. október 2008 kl. 23:28
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.