Alþjóðlega brjóstagjafavikan
Athugið hvort þið þekkið einhvern hérna.. í tilefni af alþjóðlegu brjóstagjafavikunni fórum við Emil niður á Amtsbókasafnið hérna á Akureyri og tókum þátt í fjöldagjöf. Það var stuð.
"Þema vikunnar í ár er 'Stuðningur við móður: stefnum að sigri' og með þessu slagorði leitast skipuleggjendur brjóstagjafavikunnar og WABA (world alliance for breastfeeding action) eftir auknum stuðning fyrir mjólkandi mæður svo þær nái líka sínum markmiðum. Að umhverfi þeirra bjóði uppá að brjóstagjöf sé eina fæða ungbarna til sex mánaða aldurs og svo með næringarríkum mat til tveggja ára og jafnvel lengur, eins og alþjóða heilbrigðisstofnunin (WHO) mælir með."
Föstudagur 10. október 2008 kl. 22:14
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 253 færslur.
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 253 færslur.



RSS veita