um hryðjuverkamenn og aðra menn

Við skrifum undir það að vera ekki hryðjuverkamenn, því allir ættu eiginlega að vita að hryðjuverkamenn eru ekki ljóshærðir og bláeygir í lopapeysum eða fótboltabúningum. En hvernig líta þá hryðjuverkamenn út? Það er allt í lagi að velta því fyrir sér. Það skyldi þó ekki vera að hryðjuverkamenn séu miðaldra hvítir karlar í jakkafötum... frímúrarar?

Fimmtudagur 30. október 2008 kl. 11:01 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 1

Hlekkir dagsins 28/10

- Hvernig má stórauka verðmæti í íslensku hagkerfi. Það vantar yfirleitt ekki hugmyndirnar, nú þarf bara að framkvæma.
- Creating passionate users. Að búa til ástríðufulla notendur eftir Kathy Sierra, sem verður með erindi á vefráðstefnunni Iceweb 2008. Þarf að skoða Kathy aðeins betur, sett hérmeð á listann.
- Einhvernveginn tókst 6 manns að misskilja að þessi bloggfærsla væri einhvernvegin tengd indefence.is undirskriftalistanum... ég skil ekki hvernig það er hægt að rugla þessu saman en sumt í lífinu er jú óskiljanlegt.. og frekar fyndið.
- kjosa.is er annar undirskriftalisti þar sem krafist er alþingiskosninga áður en uppbyggingarstarf getur hafist á Nýja Íslandi.

Þriðjudagur 28. október 2008 kl. 13:17 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem hlekkir dagsins / 2

Hlekkir dagsins 27/10

- Hefur hagkvæmni aukist af fiskveiðistjórn hérlendis? Áhugavert fyrir sjómannsdótturina
- Þvottaleiðbeiningar fyrir taubleiur



Verðbréfadrengurinn eftir Halldóru Ársælsdóttur frá 2007.

Mánudagur 27. október 2008 kl. 13:17 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem hlekkir dagsins / 0

Nýir tímar á Akureyri

Litla fjölskyldan dreif sig út í stórhríðina í dag til að taka þátt í kröfugöngu. Yfirskriftin var Nýir tímar, rjúfum þögnina. Þrátt fyrir að gangan hafi ekki verið mikið auglýst (hvar er götupósteramenningin þegar maður þarf á henni að halda? eða unga menntaskólafólkið með eldmóðinn? - þegar ég var í M.A. var pólitíkin og þjóðmálin virkilega áberandi og það voru oft kennararnir sem kveiktu neistana) og veðrið var suddalega leiðinlegt, þá fannst mér mætingin vera nokkuð góð. Sennilega milli 50-100 manns. Sem er samt auðvitað sorglegt miðað við ástandið og hvernig menn eru að spá að það verði næstu mánuði.
Ég trúi á fólk og að fólk sé í hjarta sínu með í göngunni og taki undir þann málstað að það má ekki valta yfir okkur, en haldi því fram að mæting þess skili hvort sem er engu. Ég er samt ekki sammála því. Við verðum að láta sjá okkur, láta vita að við erum til og að okkur standi ekki á sama, þó það sé ekki nema bara til að standa og hlusta.


Fánarnir fannst mér sérstaklega skemmtilegir. Þeir voru útbúnir fyrir Akureyrarvöku fyrir skemmstu en eiga mjög vel við í svona göngu. Eldrauðir með gulum fíflum. Við höfum öll verið gerð að fíflum. Bylting fíflanna.


motmaeli01.jpg


motmaeli02.jpg


motmaeli03.jpg

Laugardagur 25. október 2008 kl. 23:15 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem samfélag / 3

Hlekkir dagsins 24/10

- New Iceland er Baggalútur á útlensku. Þarna eru nýir tilvonandi klassíkerar á borð við: "We will provide one sheep for each account" - His Exellency, prime minister Mr. Haarde – on the Icesave accounts og
"Angry mob destroys last fresh fruit in Iceland"
bara fyndið!
- Nýja Ísland .is er í mótun. Fámennt spjallborð eins og er og aðeins of nafnlaust. Gæti þróast í eitthvað gott, enda á ég oggólítið í því og ætla að vera eitthvað með puttana þar.
- Dóra Ísleifs. Þrengingar á auglýsingastofunum þurfa ekki endilega að leiða til fjöldauppsagna og eymdar.
-

Föstudagur 24. október 2008 kl. 13:44 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem hlekkir dagsins / 0

recycle!

Þegar við vorum úti í Danmörku flokkuðum við dagblaðapappír og pappa frá öðru rusli enda var blaðatunna úti hjá ruslatunnunum og lítið mál að taka þetta frá. Þegar við komum heim kom það mér skemmtilega á óvart hvað það er hægt að flokka ruslið betur hérna á skerinu. green_recycle_symbol.jpg Allt veltur þetta á því að móttökuaðilinn taki við þessu og flokki rétt. Núna fara allar umbúðir á þessu heimili í endurvinnsluna; mjólkurfernur og plastdallar, niðursuðudósir og plastpokar.
Mér finnst þetta sjálfsögð virðing við umhverfið og náttúruna, en líka ákveðin virðing við umbúðahönnuðinn því þegar maður þekkir hönnunarferlið frá hugmyndafræðinni að fjöldaframleiðslu þykir manni ótrúlega vænt um vöruna, í þessu tilfelli ómerkilegar umbúðir. Þegar maður er búinn að safna þessu saman í nokkra daga er alveg ótrúlegt hvað magnið er mikið og í raun hvað þetta er verðmætt hráefni.
Eins og stendur á síðunni hjá Gámafélaginu:

Pappírsflokkarnir eru pressaðir saman í stóra bagga sem fluttir eru í 40 feta gámum til Svíþjóðar til endurvinnslu. Úr pappírnum eru framleiddar ýmsar pappírsvörur s.s. salernispappír, eldhúspappír, ljósritunarpappír, dagblaðapappír, stílabækur, teiknipappír og margt fleira.
Plastefnin eru flokkuð og fara í endurvinnslu hjá plastmótun sem er að setja upp aðstöðu í Gufunesi. Mismunandi plasttegundir eru flokkaðar frá hver annarri og efnið síðan mulið og nýtt til plastframleiðslu á nýjan leik. Afurðir ú endurunnum plastumbúðum eru m.a. vegastikur, rör, girðingastaurar og fleira.
Málmarnir fara í brotajárn sem flutt er erlendis til endurvinnslu. Mikil orka sparast við endurvinnslu málma miðað við framleiðslu þeirra úr grunnefnum. Til að endurvinna ál þarf eingöngu um 5% þeirrar orku sem þarf að frumvinna ál.

Semsagt, verðmætur gjaldeyrir á þessum síðustu og verstu ;)

Ennþá erum við með þetta vel flokkað inni í horni í bílskúrnum en ég ákvað að panta endurvinnslutunnuna, sem er væntalega á leiðinni.


endurvinnsla01.jpg


endurvinnsla02.jpg

Föstudagur 24. október 2008 kl. 09:49 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem samfélag / 0

Hlekkir dagsins 23/10

- Dagblaðið Nei!
- Nýir tímar - kyndilganga frá Austurvelli að Ráðherrabústaðnum kl 16 á laugardag
- Lærdómurinn af Landsnefndinni 1771
- Dotling, krúttleg dönsk barnaföt úr lífrænni bómull
- Reiði Íslendingurinn

Væri ekki pínu sniðugt að gera þetta á hverjum degi, setja inn linka á það sem maður er að skoða yfir daginn? Einhver viðbrögð?

Fimmtudagur 23. október 2008 kl. 13:22 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem hlekkir dagsins / netið / 0

*klukk*

Jæja Jonni, það er bara klukk í gangi.. here goes:


1. Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina:

2. Fjórar íslenskar bíómyndir sem ég held upp á:

3. Fjórir staðir sem ég hef búið á:

4. Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:

5. Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar:

6. Fjórar síður sem ég skoða daglega:

7. Fernt matarkyns sem ég held upp á:

8. Fjórar bækur/blöð sem ég held upp á/les oft:

9. Fjórir staðir sem ég vildi vera á núna:

10. Fjórir bloggarar sem ég á að klukka:


Fimmtudagur 23. október 2008 kl. 11:30 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 0

indefence.is

Síðunni hefur borist tilkynning:

Við getum ekki setið aðgerðarlaus lengur.

Að gefnu tilefni hafa sprottið upp óánægjuraddir vegna þeirrar meðferðar sem við höfum fengið hjá bresku ríkisstjórninni. Nú er tækifæri til þess að láta að sér kveða.
Íslenskur almenningur getur ekki setið undir því að vera brennimerktur hryðjuverkamenn til þess að þjóna pólitískum skammtímasjónarmiðum einstakra breskra stjórnmálamanna og styrkja samningsstöðu bresku ríkisstjórnarinnar. Ekki er nóg með að þetta hafi breytt grafalvarlegri stöðu í efnahagshrun, heldur hefur almenningsáliti í Bretlandi og utan þess verið snúið gegn íslensku þjóðinni, með þeim afleiðingum að viðskiptahöft breiðast út um Evrópu með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Við verðum að láta rödd okkar heyrast þó fámenn séum, og dugir þá ekki annað en að allir taki undir.
Tölum beint til bresku þjóðarinnar, fáum hana á okkar band og hindrum saman frekari skaða. Stöndum saman og skrifum undir skilaboð frá íslensku þjóðinni og vinum hennar á www.indefence.is.
Fáum hryðjuverkastimplinum aflétt.
Vinsamlega láttu þetta berast - fáum alla með.
www.indefence.is

- -

Reyndar mætti benda á þetta líka, því það er nokkuð mikið til í að framsetningin á þessari undirskriftasöfnun er svolítið varasöm.


Grundvallaregla í ímyndarvinnu er að nota ekki þau orð sem maður vill ekki standa fyrir. Sá sem vill ekki vera talin hryðjuverkamaður á ekki að nota það orð. Hann á að nota það orð sem endurspeglar það sem hann vill standa fyrir.

Þetta er svipað og að tala við börn, sonur minn er hættur að skilja orðið EKKI.. sbr. "ekki skella hurðinni", þá heyrir hann bara SKELLA HURÐINNI. Þá er betra að segja "lokaðu rólega".

Miðvikudagur 22. október 2008 kl. 14:41 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem netið / samfélag / 9

mótmæli

Vonandi er fólk að vakna, það eru nóg framundan - Nýir tímar - Við mótmælum öll - , mótmæli á laugardaginn kl 15 á Austurvelli undir forystu Harðar Torfa og Dr. Gunna meðal annars. Þess er krafist að Seðlabankastjóri segi af sér.
Á morgun föstudag verða líka mótmæli eða samstaða (eða meðmæli, ég veit ekki alveg hvað) á Ingólfstorgi kl 17 undir yfirskriftinni "Þjóðina í takt".

takt.jpg

Fimmtudagur 16. október 2008 kl. 22:20 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem 4

upprennandi sökudólgar..

Algjör snilld: Baggalútur: Af upprennandi sökudólgum

Fimmtudagur 16. október 2008 kl. 16:07 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 1

lesið og horfið

Er það nokkuð táknrænt að fyrir akkúrat ári síðan horfðum við á (heimildar/áróðurs) myndina Zeitgeist. Hún er búin að vera mér ofarlega í huga síðan.
Hún fjallar í megindráttum um það hvernig ástandið í nútímanum er komið til, og á hvaða braut við erum til framtíðar. Þar er tekið t.d. inn trúarbrögð, árásin á WTC, bankakerfið og aðferðir gráðugra manna til að koma á alheimsríkisstjórn. Þar kemur Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn, sem veifa okkur útréttri "hjálparhönd" þessa daga, mikið við sögu.


Í ljósi atburða síðustu vikna getur maður ekki annað en verið með hnút í maganum yfir því hvað mun gerast næstu daga. Endilega lesið þetta líka og kíkið á myndbandið í leiðinni: EKKI IMF TAKK!

Þriðjudagur 14. október 2008 kl. 13:45 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem samfélag / 2

Boðskapur

Ég og Emil sonur minn, sem er einmitt 6 vikna í dag, vorum á forsíðu Moggans í gær í tilefni af Alþjóðlegri brjóstagjafaviku.

Það er vel við hæfi að bolurinn sem hann er í, hvítur með rauðu stroffi á ermunum, er frá Solidary People en á bakinu er yfirlýsing frá þeim þar sem stendur:
"Make tolerance and human respect the banner of your existence. Be idealistic. Start stirring the world."

Á vefsíðunni þeirra stendur jafnframt:
We, the solidary people call for a new state of mind. We rise above political boundaries in our quest for solidarity.
This is our quest.

Ef þetta er ekki viðeigandi boðskapur á þessum tímum þá veit ég ekki hvenær. Þetta er það sem við þurfum, nýja hugsun, nýja nálgun á lífið - í gegnum manngæsku og víðsýni.


Bolinn fékk ég í Danmörku á sínum tíma en vefverslunin Rumputuski selur vörur frá þeim líka.

Sunnudagur 12. október 2008 kl. 23:35 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 2

Alþjóðlega brjóstagjafavikan

Athugið hvort þið þekkið einhvern hérna.. í tilefni af alþjóðlegu brjóstagjafavikunni fórum við Emil niður á Amtsbókasafnið hérna á Akureyri og tókum þátt í fjöldagjöf. Það var stuð.

"Þema vikunnar í ár er 'Stuðningur við móður: stefnum að sigri' og með þessu slagorði leitast skipuleggjendur brjóstagjafavikunnar og WABA (world alliance for breastfeeding action) eftir auknum stuðning fyrir mjólkandi mæður svo þær nái líka sínum markmiðum. Að umhverfi þeirra bjóði uppá að brjóstagjöf sé eina fæða ungbarna til sex mánaða aldurs og svo með næringarríkum mat til tveggja ára og jafnvel lengur, eins og alþjóða heilbrigðisstofnunin (WHO) mælir með."

Föstudagur 10. október 2008 kl. 22:14 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 0

Dabbi Kóngur


- Þegar þú ert kominn ofan í holu, hættu að moka!

Föstudagur 10. október 2008 kl. 13:41 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem samfélag / 0

Hið skandinavíska myntbandalag

Í mars stakk ég upp á því að við myndum endurvekja hið skandinavíska myntbandalag, en það var reyndar aðallega af því mig langaði að gera eina víkingamynt (ath! ekkert skylt útrásarvíkingum.. eða húsvíkingum). Núna eru raddirnar orðnar háværari um að athuga með myntbandalag við Norðmenn. Hvort þeir hafi einhvern áhuga á því veit ég ekki.

Fimmtudagur 09. október 2008 kl. 21:05 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem ýmislegt / 0

Þorraþræll anno 2008

› framhald...

Miðvikudagur 08. október 2008 kl. 13:43 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 0

...á bossann minn?

Ég meika ekki meira krepputal. Þetta er að verða alltof raunverulegt, svona eins og þegar einhver segir eitthvað fyndið sem er svo eftir smástund ekki fyndið.
Mig langar að snúa mér að öðru, sem er pínu áhugamál um þessar mundir og tengist að sjálfsögðu litla 5 vikna gaurnum mínum sem ég dekra við á hverjum degi og á að sjálfsögðu þessi orð í fyrirsögninni. Það er óneitanlega ljúft að sökkva sér ofaní þessi fallegu saklausu og splunkunýju augu og gleyma stund og stað og sjá virkilega um hvað lífið snýst.
emil.jpg

dump_trucks.jpg
Þegar ég gekk með Emil rakst ég á umræður um taubleiur og eftir því sem ég forvitnaðist meira því krúttlegra og dásamlegra fannst mér þetta. Taubleiur í dag eru nefnilega allt öðruvísi en þegar við vorum ung. Þess vegna er ekki um að ræða svokallaðar gasbleiur eða gubbuklúta brotna í bleiuform og svo hart plast bundið yfir. Ónei.

› framhald...

Þriðjudagur 07. október 2008 kl. 22:26 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem 4

lífið í rússneskri nýlendu

Ekki hefði ég ímyndað mér það að dagurinn í dag ætti eftir að vera svartari en dagurinn í gær. Það var jú eitthvað stórt í uppsiglingu. Stærra en það að bankarnir væru gjaldþrota. Maður sá það á Geir og Jóhönnu, með svitaperlurnar á enninu og grátstafina í kverkunum.

Það rann upp í morgun að um sl. helgi varð Ísland gjaldþrota og Rússar keyptu okkur svo við getum haldið eyðslufylleríinu áfram. Rússneskan vodka í partýið. Og okkur langaði bara að verða edrú og eðlileg.
Rússneska mafían lánar ekki á góðum kjörum bara sísvona af einhverri góðmennsku, í miðri lánsfjárkreppu í heiminum. Það hangir eitthvað á spýtunni, Geir!

Nei, ástæða þess að stjórnarandstaðan var föl í framan eftir fundinn var sú að fullveldi okkar hefur verið selt í hendurnar á Rússum. Grínlaust. Ef við skuldum Rússum 4 milljarða Evra geta þeir sett upp hina ótrúlegustu skilmála. Hlutir eins og friðun Skjálfandafljóts verða aðhlátursefni í þeirra eyrum. Má ég þá frekar biðja um skert lífsgæði og skömmtunarmiða í einhver misseri eins og fyrri kynslóðir gerðu til þess að halda í frelsið, verða ekki þrælar. Þó held ég að Danir séu ákjósanlegri húsbóndar en Rússar.

Við skulum bara vona að sendinefndin sem er á leið til Moskvu hafi flett upp orðunum "fiskimið" og "náttúruauðlindir" í rússneskri orðabók og lesi svo smáa letrið vel áður en þeir svo mikið sem horfa á pennann.

Ég skil ekki hvað allir virðast vera jákvæðir fyrir þessu, en það er kannski bara ég sem er svona vitlaus að halda að það sé ennþá tjáningarfrelsi í landinu. Sennilega verður þessu bloggi lokað, þið vitið þá hvað hefur gerst.

Það er lágskýjað og himinguðirnir gráta með okkur í dag.
Takk Sjálfstæðisflokkur. Takk fjármálafávitar.

Þriðjudagur 07. október 2008 kl. 11:12 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 8

ástandið

Ég hef reyndar aldrei sérstaklega fylgt vinstri grænum en síðustu daga hefur mér þótt Steingrímur J. Sigfússon verið landsfaðirinn sem þjóðin hefur alltaf sótt eftir að eiga. Hann talar af yfirvegun og er ekki að rífast eða skammast, þó hann hafi varað við þessu síðustu ár. Hann er svo góður ræðumaður að þegar hann talar, þá hlustar maður. Hvað sem manni finnst annars um hann eða flokkinn. Ég sit í eldhúsinu og hlusta á útvarpið, þar sem eldri sonurinn hertók sjónvarpið með Íþróttaálfinum.
En þetta eru ótrúlegir tímar, og maður vonar og treystir að menn séu að vinna að hag fólksins og barnanna en ekki með annarlegar hvatir og ætli sér eitthvað að græða á þessu.


En, það er nauðsynlegt að fólk taki sér saman um að velja og versla eingöngu íslenskt næstu misseri.

Mánudagur 06. október 2008 kl. 17:46 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 0

fyrsti í snjó

Ég er ein heima með drengina núna í nokkra daga því Óli fór í vinnuferð til Noregs fram á sunnudag. (Það er nú ágætt að hugsa til þess að einhver sé að koma með gjaldeyri inn í landið, ekki satt?)
Þar sem það snjóaði hressilega í gær hérna á Akureyri ákváðum við að pakka Emil niður í vagn og fara labbandi í leikskólann í morgun. Bíllinn er ennþá á sumardekkjum og það var vel kalt úti og þessvegna hált (og mikil bensíneyðsla og mengun með köldum bíl - allt sem spilaði á móti því að kveikja á honum) og ekki mikið stress á okkur. Það var líka hressandi að fá hálftíma göngutúr í býtið og sá minnsti svaf svo framundir hádegi. Simo vagninn sem við keyptum úti er að gera stormandi lukku, virkilega þægilegt að keyra hann í smá snjó.

Ég er reyndar ekki mikið farin að fara í göngutúra þar sem Emil er jú bara rúmlega 4 vikna ennþá og nýfarinn að geta farið út. Þegar hitastigið fer aftur yfir frostmarkið förum við á meira ról því það er magnað hvað vegalengdir eru stuttar í þessum bæ, auk þess sem maður getur alltaf hoppað upp í ókeypis strætó ef maður hættir sér of langt.

Fimmtudagur 02. október 2008 kl. 23:28 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 0

fjármálamógúlarnir

alltaf gaman að horfa svolítið afturábak.. lærdómsríkt... vonandi

Fimmtudagur 02. október 2008 kl. 23:03 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem samfélag / 1

Góður þessi..

...er farinn að halda að það séu tvær leiðir út úr efnahagsvandanum:

1. Icelandair.
2. Iceland Express.

Miðvikudagur 01. október 2008 kl. 23:30 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem netið / 0

peningamálin - bjakk

Síðustu dagar í efnahagslífinu hafa verið eins og reifari. Það er forvitnilegt að fylgjast með þessu og vitaskuld töluvert auðveldara þegar maður er áhorfandi með ekkert að veði. Já, það er ljúft að "eiga" engar skuldir og borga leiguna (sem er ekki vísitölutengd) með bros á vör.

Við fengum reyndar reikning í dag, frá Aarhus Kommune, þar sem við fengum ofgreiddar húsaleigubætur í júlí (semsagt fyrir hálfan júlí og allan ágúst), 5000 dkr of mikið. Í júlí þegar það var greitt út til okkar var danska krónan í 16, sem þýðir 80.000kr. Danski greiðsluseðillinn sem kom í dag er hins vegar með gjalddaga núna 6. október, sem þýðir a.m.k. 102.500 ef við "náum" að borga á genginu 20.5 áður en sú íslenska fellur meira á morgun. Sniðugt?
Það er huggun í harmi að við eigum eftir að fá hluta af tryggingunni af leiguíbúðinni (inskud) til baka, sem er örlítið vænni upphæð, og mér skilst að það komi ávísun í pósti (ekki mjög tæknivætt leigufélag, þeir eru ekki með email.. bara símatíma milli 9-12 á þri og fim!). Líklega græðum við með hverjum deginum sem við leysum hana ekki út.

En já, þetta er farsakennt allt saman. Fáránlegast af öllu er að ég er búin að lesa um þetta síðan á síðasta ári á vefsíðunni vald.org, náunginn þar er búinn að spá þessari bankakrísu með ótrúlegri nákvæmni áður en hún hófst.
"Bankakerfi heimsins stendur á hengiflugi og baðar út öllum öngum." (12. nóvember 2007)


Og ef þið hafið áhuga á að fræðast meira, þá er mjög fróðlegt að horfa á Zeitgeist, sérstaklega síðasta kaflann sem fjallar um bankakerfið í USA og glæpaklíkuna sem er Federal Reserve. Ég þarf að kveikja á henni aftur fljótlega og setja hana í nýtt samhengi. Hvort verður þetta hrun til þess að stokka upp eignarhaldi í heiminum, eða er þetta allt hluti af plani þeirra sem hafa fyrir löngu ákveðið að eignast allan heiminn (og bjuggu til hrunið 1929)? Þá meina EIGA ALLAN og setja í okkur chip svo þeir geti kveikt og slökkt á okkur að vild.

Það jafnast ekkert á við góðar samsæriskenningar í fæðingarorlofinu.

Það sem ég er að hugsa núna, er hvort það sé skynsamlegt að eiga innistæður í banka (sem er íbúðapeningurinn eftir að við seldum 2006) á þessum síðustu og verstu? Í raun og veru er ekkert á bakvið þær (eins og gull) og ekki mjög bjart framundan að mati Jónasar ritstjóra. Er þá betra að eiga steinsteypu?

Miðvikudagur 01. október 2008 kl. 22:31 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 0