Ljósmæðurnar
Maður furðar sig á því hvað sé eiginlega í gangi þegar maður heyrir að fjármálaráðherra hafi stefnt ljósmæðrum fyrir ólöglegar fjöldauppsagnir. Maður verður eiginlega alveg kjaftstopp. Málið er farið að snúast meira um jafnrétti, skilning og virðingu milli kynja heldur en sjálfsagða launaleiðréttingu þessarar frábæru kvennastéttar. Reyndar taka flestir nútíma karlmenn, sérstaklega þeir sem hafa verið viðstaddir fæðingu barna sinna, undir kröfurnar þeirra en það virðist ekki vera nóg að þjóðin þjappi sér saman á bakvið þær. Hræðslan við launaskrið (ætti ekki að vera hægt að semja sig framhjá svoleiðis) ætlar að valda því að við erum að missa vel menntaðar og þjálfaðar ljósmæður, sáluhjálpara, úr stéttinni og yfir í önnur störf um mánaðarmótin ef fram fer sem horfir. Það er algjört áfall fyrir heilbrigðiskerfið, stóráfall!
Minni á að áherslur hjá ljósmæðrum um náttúrulegar fæðingar (að maður tali ekki um heimafæðingar sem kosta brot af því sem sjúkrahúsfæðing kostar) spara gífurlegar fjárhæðir í heilbrigðiskerfinu. Viðhorf ljósmæðra gagnvart hinni fæðandi konu er allt annað en viðhorf læknisins, sem lítur á hana sem sjúkling sem þarf að "redda".
Við þurfum á öllum okkar ljósmæðrum að halda og eins og með leikmennina í boltanum þá þarf að borga fyrir góða leikmenn ef maður ætlar að halda liðinu í deildinni.
Ég sakna þess pínu að sjá ekki meira áberandi mótmæli, svona eins og í Danmörku forðum. Þegar 4 vikna leikskólakennaraverkfallið var núna í vor fóru leikskólakennararnir alla verkfallsdaga kl átta á morgnana niður í bæ og út á götuhorn með skilti. Vinkona mín, mamma hans Bastian besta vinar hans Danna, fór með strákana sína tvo með sér og var ekki komin heim fyrr en um tvö eftir hádegi og þá útkeyrð. Ef menn mættu ekki á verkfallsvaktina fengu þeir ekki laun fyrir daginn. Þeir sem voru búnir að skrá sig í frí þessa daga (og jafnvel bóka utanlandsferðir) þurftu að fresta fríinu fyrir verkfallið.
En það er segin saga að Íslendingar kunna ekki að mótmæla, það er of óþægilegt. Ég væri hins vegar alveg til í að mæta með litla guttann í vagni ef það verður mótmælastaða með ljósmæðrum hérna á Akureyri næstu daga.
Set hérna inn tvö þrjú video sem Lára Hanna setti saman af sinni alkunnri snilld.
"Þú náðir bara ekki í mig"
![]()
Ég og litli kúturinn minn, sem fæddist fyrir 12 dögum síðan.
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 246 færslur.
/ Álit
Fyrst auðvitað ... til hamingju ;)
Ég er löngu hættur að skilja ráðamenn hér (og marga aðra) nýjasta nýtt hjá fésmálaráðherra er að hann hafi verið í réttum eins og sauðurinn sem hann er og það fari ekki saman við að veita viðtöl. Af þessu má álykta að það að fara í réttir sé honum mikilvægara en málefni ljósmæðra. En hann er auðvitað bara dýralæknir þannig að forgangsröðin hjá honum er bara svona ;)
já uss.. "segðu bara að þú hafir ekki náð á mér" er náttúrulega snilldar kvót frá arfalélegum stjórnmálamanni.
og takk :)
já til háborinnar skammar. maður spyr sig einmitt um forgangsröðun þessara ráðamanna.. annaðhvort er maður fjármálaráðherra eða dýralæknir. Ekki fjármálaráðherra mán-fim og dýralækni um helgar og annan hvern föstudag.
Er einmitt svo sammála þér um þennan mun á ísl og danmörku. finnst íslendingar mega tileinka sér meira af verkfallsaðgerðum danans.



RSS veita