lífið er yndislegt - semjið við ljósmæður!

Æji hvað lífið er eitthvað dásamlegt. Litli bumbubúinn kom í heiminn aðfararnótt sunnudags eins og lesendur síðunnar hans Danna hafa sennilega komist að. Núna er hann orðinn rúmlega 4 daga gamall og auðvitað finnst manni eins og hann hafi alltaf verið á svæðinu. Hann er einstaklega rólegur og þolinmóður, og duglegur að drekka sem sést á alveg einstaklega klípilegum bollukinnum. Bróðir hans er búinn að eldast og stækka allt í einu alveg óskaplega mikið og er afskaplega stoltur af þessu hlutverki.. vill helst fara að drífa hann með í sund og út að leika.
Það er ekki hægt annað en að njóta lífsins þessa dagana, ekki mikið annað sem kemst að. Ég verð samt sem áður að tjá mig eitthvað um ljósmæðraverkfallið því maður er eiginlega orðlaus yfir því að það sé ekki enn búið að semja!
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.
/ Álit
Til hamingju með nýju manneskjuna! :)
sædís:
Je minn eini hvað hann er mikið krútt:)
bestu kveðjur frá okkur öllum
guggi:
innilega til hamingju!!!!!
Til lukku! :)
Gunna:
Guð minn hvað hann er sætur! Innilegar hamingjuóskir með litla manninn.. hlakka til að hitta hann :)
Virðist afskaplega vel heppnaður eins og allt sem þú kemur að :)
Innilega til hamingju með glæsilegan dreng!
takk kærlega fyrir kveðjurnar, jú hann er einstaklega vel lukkaður þessi snáði :) mesta fjörið í honum er yfirleitt seinnipartinn og á kvöldin, sennilega vanur því að fá kók+nammi skammtinn sinn eftir að bróðir hans er farinn í háttinn ;) heh

