hinn undursamlegi fæðingarstyrkur námsmanna

Emil Ólafsson - 14 dagaÞá er hið dásamlega fæðingarorlof eiginlega hafið eftir gott fjölskyldufrí. Óli fór í nýju vinnuna í fyrsta skipti í gærmorgun og við Emil (en drengurinn hefur fengið það nafn) erum heima og sinnum skyldum okkar af prýði; ég í húsverkunum og hann í því að stækka.
Þar sem við erum búin að vera í námi sl. tvö ár fáum við ekki hið hefðbundna fæðingarorlof (80% af launum) heldur fáum við fæðingarstyrk námsmanna sem er föst krónutala, heilar 103.869 fyrir skatt og önnur gjöld. Til samanburðar eru grunnatvinnuleysisbætur (ótekjutengdar) að upphæð 136.023 á mánuði, lágmarksframfærsla lífeyrisþega 150.000 og fæðingarstyrkurinn augljóslega þónokkuð undir fátæktarmörkum (úr þjóðarpúlsi Capacent 2007) þó svo þau séu oft metin nokkuð huglægt.


Skilmálarnir eru líka af verri endanum. Ef maður er svo "heppinn" að uppfylla skilyrðin til að fá þennan blessaða styrk (Harpa kann góða sögu handa ykkur) þá getur maður, í fyrsta lagi ekki dreift honum á lengri tíma eins og með fæðingarorlofið, t.d. verið á 50% styrk í 12 mánuði (í stað 100% í 6 mánuði, enda myndi upphæðin sennilega veslast upp í ekki neitt) - nú eða skipt honum og tekið einn mánuð til að byrja með og svo tvo mánuði seinna (eins og margir feður gera). Hann verður að vera tekinn í heilu lagi og samfleytt.
Í öðru lagi má maður ekki hafa neinar aðrar tekjur á meðan. Það er skýrt tekið fram á umsókninni að Vinnumálastofnun athugar hjá Skattinum hvort maður hafi haft tekjur á meðan maður þáði hinn náðarsamlega styrk. Semsagt, maður er hnepptur í fátæktargíslingu í hálft ár fyrir að hafa verið að mennta sig áður en krílið kom undir. Hvað með allar mömmurnar sem eru að opna vefsjoppur, bera út moggann, skrifa greinar í Cosmopolitan, selja og kaupa verðbréf, lesa inná Rauða Torgið eða eitthvað annað til að bjarga sér og sínum eða bara halda geðheilsu með því að eiga samskipti við talandi fólk? Sjálf get ég alveg hannað lógó á meðan ég gef brjóst (ég gef nú bara annað brjóstið í einu sko, hehe) eða á milli gjafa, því drengurinn sefur núna í 4 tíma samfleytt - sem er hálfur vinnudagur, en mér sýnist ég geti ekki rukkað fyrir það fyrr en á vormánuðum (ef það er þá leyfilegt að rukka eftirá).
Nei, þessar reglur hafa greinilega verið samdar af karlmönnum sem þekkja ekki "multitasking".


Ég nenni ekki að reikna út hvað bleiur kosta yfir mánuðinn, eða þurrmjólkurduft ef brjóstagjöfin hefði ekki gengið upp. (Hvað þá leigu/afborganir, mat eða lyf.. jesús minn) Það sjá það allir að það er ekki hægt að framfleyta tveimur einstaklingum á 103.869kr á mánuði. Þetta væri hlægilegt ef það væri ekki svona alvarlegt.


Ég er svosem ekki í slæmum málum sjálf þar sem ég á vel skaffandi fyrirvinnu en þetta gerir mig auðvitað háða honum á margan hátt ef ég get ekki freelance-að með eins og ég hef verið að gera með náminu. En hvað með þá sem búa ekki svo vel, eru jafnvel einstæðar og með meiri útgjöld en ég? Hvað ætli námsmenn séu hátt hlutfall þeirra sem eignast börn? Maður skyldi ætla að það sé nokkuð hátt hlutfall þar sem námsmenn eru yfirleitt á barneignaraldri.
Hvað gerist svo þegar pabbinn, fyrirvinna heimilisins, ætlar að taka sína sjálfsögðu þrjá mánuði í orlofi og rækta sambandið við soninn? Ég fer beint úr námi í orlof og geng því ekki beint í vinnu. Hann var líka í námi áður en barnið fæddist, og fær því sömu upphæð í styrk og ég, hann þarf að taka hann allan í einu eða ekki neitt og má ekki vera á launum á meðan, ekki einusinni hálfum launum. Spáiði hvernig það fer með heimilisbókhaldið!


Ef ég heyri einhvern úr sjálfstæðisflokknum hreykja sér af fæðingarorlofslögunum aftur eins og þeir hafa yfirleitt gert mun ég ræskja mig hressilega í áttina að honum, því svona forræðishyggja og reglur sem flækja hlutina óþarflega eru bara til að pirra mann. Það er eins og það sé verið að búa til fáránlegar reglur sem ekki er hægt að lifa með, bara til að reyna að góma fólk sem er að brjóta þær.


Til að benda á hvernig mætti breyta þessu og einfalda hlutina, finnst mér að við útreikning fæðingarorlofs ætti í öllum tilfellum, hvort sem fólk er í námi eða á vinnumarkaði að taka mið af þeim tekjum sem viðkomandi er tímabundið að missa. Námslán ættu þannig að teljast sem tekjur því við útreikning þeirra er tekið mið af framfærslukostnaði og búsetu. Námsmenn á Íslandi eru líka (stundum of) duglegir að vinna með náminu og því ætti að taka tillit til þess tekjumissis líka. Núna er það þannig að fólk sem er í skóla og á vinnumarkaði þarf að velja hvort það sækir um fæðingarorlof eða fæðingarstyrk. Það er líka þannig að af fæðingarstyrknum er í dag ekki greitt í lífeyrissjóð, sem er í raun afleitt því þá missir sá aðili sem tekur lengri tíma með barninu af þeim greiðslum í sjóðinn sinn.
Það væri líka áhugavert að vita hvort það sé betra fyrir atvinnulífið og samfélagið, að fólk eignist börn á meðan það er í námi eða þegar það er komið í vinnu. Kannski er það forræðishyggja að reyna að stjórna því eitthvað, ákveðin "neyslustýring".


Þannig að við Emil erum svosem ekki að skaffa neitt til heimilisins þessa dagana (nema mjólk í kaffið - haha!) þó svo ég sé fullviss um að hann eigi eftir að verða fínn skaffari þegar hann verður stór fyrir þjóðarbúið allt, eins og önnur börn námsmanna ef þau fengju að lifa yfir fátæktarmörkum. En mér finnst þessar reglur, óháð því hvort ég þarf að búa við þær eða ekki, virkilega óréttlátar.


Þriðjudagur 16. september 2008 kl. 22:24
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 247 færslur.

/ Álit

guggi:

Til hamingju með nafnið Emil, þú verður eflaust prakkari.
Allt í kring um fæðingarstyrk námsmanna er einfaldlega grín. Ekki nóg með hvað hann er hlægileg upphæð, þá eru skilyrðin sem maður þarf að uppfylla ekki í takt við neitt annað í kerfinu. Svo ef mæður uppfylla ekki ákveðin skilyrði er bara klippt á spenan. Ekkert hlutfallslegt, engin prósenta eins og t.d námslán. Ekkert. Ótrúlegt batterí ;)

17.09.08 09:45


Óli Magg:

Til hamingju Emil með nafnið þitt! Þau eru ekkis vo vitlaus foreldrar þínir, þetta er fallegt nafn. Aftur á móti könnumst við vel við vitleysuna með fæðingarstyrk námsmanna. Það á að vera verðlauna fólk sem kemur með nýja einstaklinga, ekki refsa.

Kkv
Óli, Eva, Kormákur og Fura Elín.

17.09.08 13:15


Mundi:

Til hamingju með Emil Það er fallegt nafn

18.09.08 20:25


baddy:

en hvernig er það mega námsmenn vera bæði á fæðingarstyrk og námslánum? eru námslán þá ekki aðrar tekjur? veistu hvernig það er?

19.09.08 09:54


Dagný:

@baddy: mér skilst að námslán séu tekjur þar til maður byrjar að borga af þeim (á meðan þau eru framfærsla), en ég held að þetta hafi engin áhrif hvort á annað. Tékkaðu samt á því ;)

19.09.08 11:37


Dagný:

19.09.08 15:36


Ellý frænka:

Sæl frænka, til hamingju með hann Emil, hann er algjör krúttlingur:) Já, það er margt sem mætti skoða í sambandi við fæðingarorlofssjóð og LÍN líka sko. Ég get bætt þessu í umræðuna:
Maður er í raun þrískattaður; við borgum skatta, og hluti af þeim fer í að borga í fæðingarorlofssjóð. Svo fáum við fæðingarorlof/fæðingarstyrk og þurfum að borga skatt af því. Svo förum við með þennan pening út í búð, og kaupum mjólk, á þurfum við aftur að borga skatt... það finnst mér svolítið bjánalegt. Þetta þyrfti kannski bara að skoða.
Það að það sé miðað við 80% af tekjum manns síðastliðin 2 ár finnst mér ekki alltaf eiga við. Ég tek okkur sem dæmi. Af þeim tveim árum sem var miðað við hjá Alla var eitt ár hjá Dekkjahöllinni á Akureyri og nokkrir mánuðir hjá Heklu (af því að hann var bara búinn að vinna þar í nokkra mánuði.) Eitt ár af þessu var svo þegar hann var í námi í BCN (og það var náttúrulega ekki tekið með) Semsagt, það sem var aðallega tekið mið af voru tekjur hans í Dekkjahöllinni, sem voru helmingi lægri en hann er með núna. Og forsendur hjá okkur höfðu sannarlega breyst, við nýbúin að kaupa íbúð á uppsprengdu verði vegna stöðu markaðarins og með mikið hærri afborganir á mánuði en fyrir tveimur árum.
.. Kannski við hefðum þá átt að "hugsa" fram í tímann og eignast ekki barn fyrr en þegar við værum búin að vinna í akkúrat 2 ár, og þá reyna að taka eins mikla yfirvinnu og við gætum, til að hífa launin hærra upp. Alli er búinn að taka 1 1/2 mánuð í orlof og það liggur við að hann bíði með að taka restina þangað til að hann er búinn að vinna í 2 ár til að fá sanngjarna upphæð..
Vá þetta er svolítið löng lesning en langaði bara að benda á þetta :) Gangi ykkur vel frænka. Kveðja, Ellý.

25.09.08 11:05


/ Þitt álit




Leggja upplýsingar á minnið

(mátt nota HTML fyrir textaáherslur)