vöknuð til lífsins
Jæja, orðin tengd loksins og á góðri leið með að kljúfa mig í gegnum inboxið. Það voru smá byrjunarörðugleikar, fyrst hjá Vodafone sem voru ekkert að aftengja línuna og svo hjá TAL þar sem routerinn sem þeir sendu var vitlaust stilltur en komst í lag loksins á 10. degi.
En það var svosem allt í lagi, eiginlega bara fínt að vera netlaus í nokkrar vikur og ná að ganga frá dótinu í íbúðinni. Núna er eins og við séum búin að búa hérna í mörg ár, nema að margir skápar standa tómir... það er munur þegar maður flytur úr 86fm yfir í 170, aðeins meira pláss!
Veðrið er líka búið að vera dásamlegt, eins og Akureyringar hafa fundið fyrir alveg síðan við opnuðum gáminn okkar (það kom úr honum sko!). Óteljandi ferðir í Kjarnaskóg og sundlaugina, eins búin að fara í berjamó sem hefur skilið eftir sig bæði bláberjaostaköku og bláberjaskyrköku í frystinum. Dásamlegt.
Já, það er gott að vera á Akureyri. Við fundum það um daginn þegar við vorum í sundi, klukkan þá orðin 18 þegar Óli mundi eftir því að hann hafði skráð sig á rástíma í golfi kl 18:45. Við vorum komin uppúr kl. 18:20, þá áttum við eftir að græja kvöldmat og renndum niður á Nings. Vorum svo komin heim 10 min síðar með grjón og meððí og kallinn svo mættur á teig á réttum tíma. (Við búum ofarlega á Brekkunni en erum samt bara 4 min niður í bæ).
Þetta kallar maður hraða, það er nefnilega hinn mesti misskilningur að það sé einhver hraði í borg óttans því þetta hefði aldrei náðst þar á þessum tíma, hraðinn er allur úti á landi!
Þessa speki færði Mundi bróðir mér eitt sinn og hún er að sanna sig hvað eftir annað!
Nú er bara að bíða eftir bumbubúanum, eða eiginlega ekki bíða heldur njóta þess kannski að hafa tvær hendur nokkra daga í viðbót :) Samkvæmt sónar er hann væntanlegur í næstu viku - þó svo ég hefði viljað fá hann í dag því það er svo töff dagsetning (20 08 2008), en það er ekki mjög líklegt úr þessu.
En það er spurning hvað gerist í hádeginu á föstudag ef maður fer að horfa á handboltann.. ef þeir ætla að halda áfram að spila svona rosalega og hugsanlega fara að spila um gullið missi ég líklega vatnið í hádeginu á föstudaginn. Spennó!
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 242 færslur.
/ Álit
baddy systir:
hehe já það eru fleiri að bíða eftir fréttum af bumbubúanum, þú náðir að plata mig aðeins í dag og núna finnst mér bara eins og hann eigi að vera kominn!!..en hann er örugglega bara að bíða eftir að ég komi norður svo ég geti heimsótt hann á fyrsta degi:)
hehe, já það fylgir því sennilega magnþrungin tilfinning að hafa "missed call" frá mér þessa dagana ;)
Mundi:
....hann mun koma á ógnarhraða....
kveðja
Mundi



RSS veita