stay!
Ég er búin að díla við krakkann um að koma eftir viku. Í gær helltist yfir mig hálsbólga og hausverkur og kvef með tilheyrandi svefnleysi, og ég er ekki alveg að meika að fara að einbeita mér að því að anda með 'stíblað' nef. Ég er reyndar aðeins skárri í dag eftir heita baðið og öll teglösin en formið er ekkert sérstaklega gott samt sem áður. Ef til vill þurfti hann að fá smá búst í ónæmiskerfið sitt svona áður en hann heldur út í hinn stóra heim, en þá verður hann bara að hlýða og hreyfa sig ekki fyrr en ég er búin að hrista þetta úr mér.
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 244 færslur.
/ Álit
sædís:
Sendi batakveðjur upp brekkuna:)
Gunna:
... er eitthvað að frétta kannski? :)
Mér leyfist vonandi að skrifa að Dagný átti lítinn strák þann 31.ágúst. Lítill og sætur eins og foreldrarnir, Til hamingju! :D
Mundi:
innilegustu hamingjuóskir til ykkar



RSS veita