flutningar, part 2
Það hlaut að koma að því að við yrðum óheppin í þessum flutningsferli. Gámurinn kom til landsins á þriðjudaginn í síðustu viku. Þegar gellan í tolladeildinni hjá skipafélaginu sá að við vorum með einn kassa af Carlsberg á tollaskýrslunni (er hægt að finna betri minjagrip frá Danmörku?) fékk hún flogakast eins og árið væri 1988 og hún hefði ekkert fengið nema bjórlíki... og sagði að við þyrfum að borga áfengisgjald, ca 2600kr (fyrir bjór sem kostaði 1600kr) nú þyrfti þetta að fara í skýrslu upp í toll og sendillinn kæmi á morgun til að sækja skýrsluna því guðminngóður ekki fer ríkisstofnun að nota eitthvað tæknilegt eins og tölvupóst eða þaðan af verra.
Við signuðum okkur bara hérna heima, fyrir að vera svona heiðarleg, því önnur dama sem við töluðum við seinna hjá skipafélaginu var aðeins léttari á því og sagði að "yfirleitt væri fólk ekkert að gefa þetta upp".
En já, svo kom miðvikudagur og tilheyrandi hringingar og eftirspurnir.. gámurinn okkar á hafnarbakkanum í borg óttans og "skýrslan" komin í bunkann hjá Dilbert og félögum á Tryggvagötu. Fimmtudagur, kom í ljós að gámurinn er kominn í "vöruskoðun", sé bara fyrir mér gúmmíhanskann á lofti með stórum smelli, og "sennilega gerist ekkert fyrr en eftir helgi".
Alltílæ, ég er bara komin 34+ vikur á leið, á ekki eftir nema; að skrúfa saman barnarúmið, skiptiborðið, þvo sængurföt, allan fatnað (og strauja nema hugsanlega gef ég það eftir þar sem þetta er barn #2) og taubleiur, viðra dýnur og sængur og kodda og þvo himnasæng og hlífðarkantinn.
Fyrir utan annað sem fylgir flutningum svona yfirleitt, svosem að sauma til og setja upp gardínur, raða í eldhúsið, þvo og raða í fataskápana og koma einhverskonar skipulagi á heimilið.
Einmitt, ekkert stress hr. tollur. Mig langar heldur ekkert til að komast í rúmið mitt!
En íbúðin okkar er annars æðisleg. Dásamleg. Mikið pláss og mjög snyrtileg. Við Danni vorum þar í gær í dágóða stund á meðan Óli fór í golf. Danni uppgötvaði garðslöngu í garðinum og þráir núna að fá að skrúfa frá og "fá að vökva blómin" en þar sem við vorum ekki með nein aukaföt gaf mamman sig ekkert. Í staðinn skoðaði hann nokkra kassa með gömlu baby-dóti sem voru í geymslu á Dalvík, og ég fór aðeins í gegnum barnafatakassana sem við skildum eftir og tók það minnsta uppúr sem að fer í þvott fljótlega. Við fengum nýja þvottavél frá tengdó þar sem þau eru með okkar og hún verður send heim þegar við verðum eitthvað í íbúðinni.
Bíllinn er kominn, tengdó voru fyrir austan um helgina og tóku hann með norður.
Núna áðan kom svo símhringing frá skipafélaginu og einhver gögn voru send í tollinn (til dæmis kassainnihaldslýsingin sem við gerðum, sem telur upp allt sem er í hverjum kassa fyrir sig sem og lausamuni, ekki nema 3 síður í excel) þannig að vonandi fara hjólin eitthvað að snúast núna.
En við erum samt búin að hafa það rosalega gott þessa fyrstu daga á Íslandi. Danni er búinn að vera á útopnu síðan við komum enda frábært að hafa svona marga í kringum sig og mikið um að vera, útisund og ömmu og afadekur á hverjum degi.
Það er bara vonandi að þetta blessist og dótið okkar komi allt og í heilu lagi einhverntíman áður en krakkinn ákveður að koma.
Flokkað sem danmörk. Þar eru 76 færslur. / heimilið. Þar eru 58 færslur. / lífið sjálft. Þar eru 241 færslur.
/ Álit
Rúnar Birgir Gíslason:
Eins og ég sagði við Óla, þið eruð alltof heiðarleg.
Vonandi fer þetta að klárast.
Gunna:
guðminnGÓÐUR ertu ekki að fíflast!? þetta er kassi af fokkins carlsberg. ég á ekki til orð.
Vonandi kemst búslóðin til ykkar sem allra fyrst.
ja hérna..
og sko alveg ábyggilegt að fólk sem gefur upp kassa af carlsberg hlýtur að vera með eitthvað meira þarna inni... whatthefuck!?!?
Gangi þér/ykkur vel á síðustu metrunum. Fæ í bakið af að hugsa um flutninga og þrif komin 30+ ..enda fékk guðjón greyið að gera nánast allt :)
Guðrún Björk:
Ég er komin aftur til Danmerkur og kom við á Stavnsvej í gær en þar var tómlegt um að líta, A+B+B og B tóku fagnandi á móti mér með nýbakaða köku og við sátum á túninu og hugguðum okkur, þau greinilega að takast á við söknuð eftir ykkur.
Leiðinlegt að heyra þetta með gáminn. Vona að þetta fari allt vel að lokum.
Kærar kveðjur til ykkar allra og takk fyrir að leyfa okkur að fylgjast með ykkur úr meiri fjarlægð nú en áður.
Takk öll, jú máttur bloggins er ómetanlegur, við erum innflutt núna.
Gámurinn kom í fyrradag í merkilega góðu ástandi (og allt ölið skilaði sér), og við höfum setið sveitt við að opna og raða síðan. Netið er ekki komið í gang ennþá eins og kannski sést á samskiptaleysinu. :/
Ég að sjálfsögðu var í leikstjórahlutverkinu og Óli, pabbi og tengdapabbi fengu að halda á öllu stöffinu á meðan mamma og tengdamamma voru sendar í upppökkun og saumaskap og íbúðin er farin að vera nokkuð lagleg bara.
Við hugsum nú hlýtt til allra á Stavns, það er skrýtið að hugsa til þess að við séum bara farin þaðan.
Til lukku með nýja heimilið, vonandi er allt orðið skínandi fínt dagnýjar-style ;) Hlakka til að kíkja á ykkur þegar ég kem norður á fiskidaginn mikla! Knúsknús
D:
Ennþá òtengd, þökk sè vodafone
Too bad your blog is in Icelandic?? Was really looking forward to reading something new! At least i figured out what 'comments' is in Icelandic. :-)
Do a post in English, one of this days.... pweety pwease?



RSS veita