flutningar, part 2

Það hlaut að koma að því að við yrðum óheppin í þessum flutningsferli. Gámurinn kom til landsins á þriðjudaginn í síðustu viku. Þegar gellan í tolladeildinni hjá skipafélaginu sá að við vorum með einn kassa af Carlsberg á tollaskýrslunni (er hægt að finna betri minjagrip frá Danmörku?) fékk hún flogakast eins og árið væri 1988 og hún hefði ekkert fengið nema bjórlíki... og sagði að við þyrfum að borga áfengisgjald, ca 2600kr (fyrir bjór sem kostaði 1600kr) nú þyrfti þetta að fara í skýrslu upp í toll og sendillinn kæmi á morgun til að sækja skýrsluna því guðminngóður ekki fer ríkisstofnun að nota eitthvað tæknilegt eins og tölvupóst eða þaðan af verra.
Við signuðum okkur bara hérna heima, fyrir að vera svona heiðarleg, því önnur dama sem við töluðum við seinna hjá skipafélaginu var aðeins léttari á því og sagði að "yfirleitt væri fólk ekkert að gefa þetta upp".
En já, svo kom miðvikudagur og tilheyrandi hringingar og eftirspurnir.. gámurinn okkar á hafnarbakkanum í borg óttans og "skýrslan" komin í bunkann hjá Dilbert og félögum á Tryggvagötu. Fimmtudagur, kom í ljós að gámurinn er kominn í "vöruskoðun", sé bara fyrir mér gúmmíhanskann á lofti með stórum smelli, og "sennilega gerist ekkert fyrr en eftir helgi".


Alltílæ, ég er bara komin 34+ vikur á leið, á ekki eftir nema; að skrúfa saman barnarúmið, skiptiborðið, þvo sængurföt, allan fatnað (og strauja nema hugsanlega gef ég það eftir þar sem þetta er barn #2) og taubleiur, viðra dýnur og sængur og kodda og þvo himnasæng og hlífðarkantinn.
Fyrir utan annað sem fylgir flutningum svona yfirleitt, svosem að sauma til og setja upp gardínur, raða í eldhúsið, þvo og raða í fataskápana og koma einhverskonar skipulagi á heimilið.
Einmitt, ekkert stress hr. tollur. Mig langar heldur ekkert til að komast í rúmið mitt!


En íbúðin okkar er annars æðisleg. Dásamleg. Mikið pláss og mjög snyrtileg. Við Danni vorum þar í gær í dágóða stund á meðan Óli fór í golf. Danni uppgötvaði garðslöngu í garðinum og þráir núna að fá að skrúfa frá og "fá að vökva blómin" en þar sem við vorum ekki með nein aukaföt gaf mamman sig ekkert. Í staðinn skoðaði hann nokkra kassa með gömlu baby-dóti sem voru í geymslu á Dalvík, og ég fór aðeins í gegnum barnafatakassana sem við skildum eftir og tók það minnsta uppúr sem að fer í þvott fljótlega. Við fengum nýja þvottavél frá tengdó þar sem þau eru með okkar og hún verður send heim þegar við verðum eitthvað í íbúðinni.
Bíllinn er kominn, tengdó voru fyrir austan um helgina og tóku hann með norður.
Núna áðan kom svo símhringing frá skipafélaginu og einhver gögn voru send í tollinn (til dæmis kassainnihaldslýsingin sem við gerðum, sem telur upp allt sem er í hverjum kassa fyrir sig sem og lausamuni, ekki nema 3 síður í excel) þannig að vonandi fara hjólin eitthvað að snúast núna.

En við erum samt búin að hafa það rosalega gott þessa fyrstu daga á Íslandi. Danni er búinn að vera á útopnu síðan við komum enda frábært að hafa svona marga í kringum sig og mikið um að vera, útisund og ömmu og afadekur á hverjum degi.
Það er bara vonandi að þetta blessist og dótið okkar komi allt og í heilu lagi einhverntíman áður en krakkinn ákveður að koma.

Mánudagur 21. júlí 2008 kl. 10:28 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem danmörk / heimilið / lífið sjálft / 8

lyklalaus

Í dag skiluðum við lyklunum að íbúðinni, værum á götunni ef ekki væri fyrir góða granna sem betur fer því það er búið að rigna ágætlega síðustu daga og gerir enn.
Óli framkvæmdi ein þau mestu þrekvirki við flutningana, þar sem hann bar nánast allt sjálfur niður, fékk reyndar hjálp eitt kvöldið hjá nágrönnum við þetta allra stærsta.
Við vonum bara að gámurinn komi í svipuðu ástandi og hann fór.

gamurinn.jpg


Ótrúlegt að þessum tíma í Danmörku sé lokið, ótrúlegt.

Fimmtudagur 10. júlí 2008 kl. 14:35 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem danmörk / 2

skriffinnska og skortur á samúð - undirskriftalisti!

Ég er aðeins búin að fylgjast með þessu máli um Paul Ramses á netinu síðustu daga og maður er bara orðlaus yfir þessu skriffinnskublaðri í kerfinu á Íslandi. Þegar skriffinnska og skortur á samúð fer saman, veit ekki á gott.


Ef þú ert ekki búin að skrifa undir áskorunina um að fá Paul Ramses aftur til Íslands, skora ég á þig að skrifa undir núna. Listinn verður afhentur á fimmtudaginn.

Mánudagur 07. júlí 2008 kl. 14:57 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem fólk / 0

Slut, prut, finale

30 kassar orðnir fullir, eru yfirleitt á víð og dreif um íbúðina þannig að ég stunda stórsvig innanhús, þangað til Óli staflar þeim í fallega turna uppi við vegg. Ég hlífi mér því að halda á nokkru þar sem, tja, fangið er eiginlega fullt. En það er nóg eftir. Óli segist ætla að klára mastersritgerðina sína í dag, kemur ekki heim fyrr en hann er búinn. Danni fór með hjólið sitt í leikskólann í morgun, nýjasta sportið er að hjóla heim. Hið besta mál því þó við séum korter að hjóla/labba þá er ekki yfir neina umferðargötu að fara. Hann fær líka svo góða tilfinningu fyrir umhverfinu, svona í blá lokin.
Við kveðjum Danmörku eiginlega með trega, það er búið að vera áhugavert að kynnast þessu landi, þó tvö ár séu stuttur tími. Það sem kom mér mest á óvart var hvað allt var í rauninni auðvelt. Um leið og við skráðum okkur inn í landið fengum við kennitölu og heimilislækni. Sjúkratryggingakortið (þetta gula) kom í póstinum seinna í vikunni þar sem bæði nýja kennitalan og símanúmerið hjá lækninum var. Það var virkilega gott að hafa eitthvað svona áþreifanlegt á meðan maður gat ekki borið fram kennitöluna sína á dönsku. ;) Við gengum inn í banka og fengum Dankort (margar verslanir, t.d. Bilka taka ekki nema Dankort og cash, ekkert visa/euro), sími, tryggingar og annað gekk álíka smurt.
En svo vorum við búin að heyra að um leið og maður færi að segja þessu upp myndi bjúrókrasían byrja; það þyrfti að gerast skriflega og með margra mánaða fyrirvara.
Held nú ekki.
Það tók tæpa tvo tíma og nokkur símtöl að segja þessu öllu upp. Annaðhvort var það gert í gegnum símann eða á netinu og tæki gildi 12. júlí. Eftir að ég sagði gemsanum mínum upp fékk ég bréf frá Telia sem þakkaði fyrir viðskiptin og leiðbeindi mér hvernig ég ætti að opna símann fyrir öðrum símkortum en þeirra. How about that.
Leikskólanum sögðum við upp á netinu líka.


Á heildina finnst mér Danmörk vera orðið miklu tæknivæddara samfélag en Ísland og ég held að það hafi bara gerst á örfáum (3-4) árum. Þjónustulundin er líka ofsalega rík. Á Íslandi hefur mér þótt meiri tilhneiging til að stjórna og stýra frekar en að þjóna. Það er, án þess að ég hafi reynslu af því, hugsanlega meira amerísk leið. Þá myndi ég nú heldur kjósa evrópsku leiðina.


En, 8 dagar eftir. Um helgina ætlum við að taka smá pásu frá niðursuðunni og fara í Tivolí og ná aðeins betri nýtingu á seasonpassanum.

Miðvikudagur 02. júlí 2008 kl. 09:31 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem danmörk / lífið sjálft / 5