Til hamingju með daginn, pabbi!

sjomannadagsmerkid.jpgÍ dag er sjómannadagurinn, stærsti hátíðisdagur í minni æsku á eftir jólum og páskum. Ég man að það var alltaf hægt að fara út á tröppur og sleikja vorsólina að morgni sjómannadags, við systurnar fórum í fínu fötin (og svo hlýju fötin utanyfir), fengum sjómannadagsmerkið nælt í úlpuna, fórum niður á bryggu og um borð í bátinn hans Pabba og félaga og fórum á rúntinn í Eyjafirði, ásamt öllum hinum bátunum á nesinu og sandinum. Að sjálfsögðu var metist við hina krakkana um hverjir væru í hvaða bát og hver væri með flesta um borð.
Það var alveg ótrúlega gaman að fá að slæpast um í bátnum, fá prins póló (þetta mjóa í álpappírnum) og svala, kíkja í alla króka og kima um borð, spíta í frussandi ölduganginn, máta kojurnar, horfa á tomma og jenna í vhs (sem var jú ekki til á öllum heimilum), leita að súkkulaðikexi og þykjast vera að elda niðri í eldhúsi. Stiginn niður í lúkar (áður en bátnum var breytt) var náttúrulega snarbrattur og stórhættulegur og sennilega engin börn sem fengju að fara þar niður í dag nema vera með hjálm, tala nú ekki um upp á fremra dekk þar sem voðinn var vís ef einhver skyldi misstíga sig og rúlla út fyrir borð. En allir komu þeir aftur og enginn þeirra dó.

Those were the days.
Ég býst nú við því að pabbi hafi tekið einhvern rúnt um fjörðinn í tilefni dagsins, en það er svo sorglegt hvað stemningin sem hefur fylgt þessum degi sem og allt þetta líf í sjávarplássunum sem snerist um sjóinn og fiskveiðar, virðist fara að verða minningin ein. Ég vildi bara óska að Danni minn gæti átt þessa minningu líka.


Sunnudagur 01. júní 2008 kl. 20:10
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.

/ Álit

Harpa:

einhvers staðar rak ég augun í að sjómannadagurinn væri að breytast í "hátíð hafsins" ..hvaða vitleysa er það?

02.06.08 10:23


baddy systir:

ohh já svona er minningin mín líka en nei því miður var engin sigling þetta árið. Það var stefnt að því að fara á laugardeginum (daginn fyrir sjómó) en veðrið leyfði það ekki og á sunnudeginum var sólin sleikt í garðinum og síðan haldið til messu. Við geymum þennan dag bara þangað til þið eruð komin heim og höldum okkar eigin sjómannadag. Verst hvað olían er orðin dýr - hún hefur ekki bara áhrif á bílaeigendur heldur líka bátaeigendur!! Sorglegt
Annars þá er hátíð hafsins haldin í Reykjavíkinni.

07.06.08 11:26


freyja:

Sammála þessu, mikið var þetta gaman og mikið áttum við góðar stundir, prílandi upp og niður snarbratta stigana og hoppandi á milli báts og bryggju, svali og prins, snilld. ´Mér datt ekki í hug að halda framhjá Víði Trausta á sjómannadag og fór eki um borð í neinn bát, I miss him!!

24.06.08 23:18


freyja:

Sammála þessu, mikið var þetta gaman og mikið áttum við góðar stundir, prílandi upp og niður snarbratta stigana og hoppandi á milli báts og bryggju, svali og prins, snilld. ´Mér datt ekki í hug að halda framhjá Víði Trausta á sjómannadag og fór ekki um borð í neinn bát, I miss him!!

24.06.08 23:19