náttúrutónleikarnir í PODCAST

nattura.jpg

Mikið óskaplega langar mig á þessa tónleika með Björk og Sigurrós en þar sem ég er ennþá hérna í DK á ég ekki heimangengt. Reyndar eru Icelandair og Nyhedsavisen duglegir að auglýsa tónleikana og gefa "frímiða" á þá, þeas flug og gistingu með tónleikum.
Ég hef ekki heyrt hvort þeir verði sendir út á RÁS 2 en ef ekki væri dásamlegt ef einhver myndi taka sig til og senda þá út á netinu. Ó hvað það myndi gleðja mitt hjarta. Endilega sendið mér komment ef þið vitið eitthvað meira.

Þetta er svo frábært framtak hjá þessum listamönnum sem eru mínir uppáhalds. Málstaðurinn er líka góður en ég er hrædd um að þessi skilaboð - að vernda og bera virðingu fyrir náttúru Íslands - hitti ekki nema þá sem eru honum sammála. Hinir verða alltaf ófullnægðir, krefjast töfralausna og blása á svona "101 kaffihúsaatburð". Ó ef þeir myndu bara sjá ljósið.


Miðvikudagur 25. júní 2008 kl. 10:24
Flokkað sem tækni. Þar eru 60 færslur.

/ Álit

Hilma:

Gott kvöld, ég veit meira:)
Rambaði inná þetta blogg af goggle þegar ég var að reyna að finna fleiri upplýsingar um þessa tónleika, sem ég fann ekki.
Ókei þá er ég örugglega búin að afsaka mig nóg fyrir að vera hér:

Tónleikarnir VERÐA í beinni á netinu, húrra! Hef það frá alveg mjög svo áreiðanlegum heimildum að þeir verði á apple.com... eða ætjúns, en þú og restin af heiminum ætti alveg að geta fundið þetta:P

26.06.08 22:46


Dagný:

Takk Hilma, dásamlegt! :)

27.06.08 10:17


Morten Lange:

Sæl Dagný,

Eins og þú og lesendur hafa vonandi séð nú þegar, mun Mogginn (líka?) vera með útsendingu :

http://mbl.is/nattura
(sem sendir mani áfranm á )
http://mbl.is/mm/folk/serefni/nattura/


Í 24 stundum var birt kort yfir svæðinu, þar sem kemur fram að frítt verður í Laugardalslaug, frítt verður í Skautahöllinna, hvar klósettin séu, bílastæði _og_

stæði fyri reiðhjól !!

Ég hlakka til tónleikana : tónlist, boðskap, samhugur, mannmergð, og fullt af reiðhjólum.

28.06.08 13:30


Morten Lange:

28.06.08 13:51