krónu quote

Þetta er eiginlega með því betra sem ég hef heyrt:

"Að hrósa íslensku krónunni fyrir að vera sveigjanleg,
er eins og að hrósa teygju fyrir sama hlut
rétt í þann mund er hún slær þig í andlitið."

Mánudagur 30. júní 2008 kl. 17:34 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem samfélag / 0

Framtíðin sem byggir á fortíðinni

Ég vaknaði eldsnemma í býtið, allt var með kyrrum kjörum hérna heima en ég gat ekki sofnað aftur. Tónleikarnir í gærkvöldi voru í fersku minni, ég fylgdist með þeim á netinu. Tónlistin var frábær, stemmningin greinilega skemmtileg en mér fannst samt pínulítið vanta uppá að þau segðu milli laga hver áherslan í baráttunni væri. Kannski var nægur áróður á staðnum sem skilaði sér ekki yfir netið, og líklega voru þessi 30.000 manns nokkuð viss á málstaðnum.

En árla morguns fór ég eitthvað að hugsa, og setti saman þessa færslu:

› framhald...

Sunnudagur 29. júní 2008 kl. 16:06 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem samfélag / 7

Draumalandið


Laugardagur 28. júní 2008 kl. 21:31 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem video / 0

Þetta fólk er óforskammað og á að taka pokann sinn!!



Nánar: http://prakkarinn.blog.is/blog/prakkarinn/entry/576312/

Föstudagur 27. júní 2008 kl. 09:07 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem samfélag / 2

Hlustið á Andra!

Er að hlusta á síðdegisútvarpið á Rás 2 síðan í gær, þar sem verið er að tala við Andra Snæ Magnason (ca 1/3 inn í þáttinn). Hann er að tala um að stóriðja mun ekki bjarga okkur frá kreppunni sem allir sjá framundan heldur hvað það er galið að eyða allri orku suðvesturhornsins til að þjóna stóriðjunni, og í raun ekki nýta auðlindina sem sjálfbæra heldur ganga á hana og frá henni.
Auk þess talar hann um hvað það er virkilega óþingeyskt, engin reisn yfir því, að fórna svæðum eins og Gljástykki til þess að búa til örfá verksmiðjustörf. Ef það er reiknað út hvað verður í raun og veru eftir í þjóðarbúinu frá þessum verksmiðjum, gróðinn er aldrei okkar, verður það svolítið skuggalegt.. þeir borga lánin sem orkufyrirtækin tóku til að byggja fyrir þá virkjanir, og veita kannski 2000 manns vinnu (öll álver yfir allt landið) en annars höfum við enga stjórn á þessu.

Eins hefur verið áhugavert að lesa kommentin við þessa færslu, mikið af góðum upplýsingum sem er þarft að velta fyrir sér.

En allavega, hlustið á Andra, það er þægilegt þegar maður situr hvort sem er við tölvuna og er að vinna. Mjög afkastagefandi líka þar sem púlsinn fer alveg á fullt, í mér amk.

Fimmtudagur 26. júní 2008 kl. 10:48 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem samfélag / 1

stjörnuspá

Stjörnuspáin mín í mogganum í dag:

Naut: Þú gerðir framtíðaráætlanir ómeðvitað. Nú eru þær að koma í ljós og þú sérð að þetta var allt skipulagt. Á vissan hátt hefurðu geymt það besta þar til síðast.

aaawwwww....
Þeir eru svo góðir í Barnum

Miðvikudagur 25. júní 2008 kl. 12:27 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem ýmislegt / 1

náttúrutónleikarnir í PODCAST

nattura.jpg

Mikið óskaplega langar mig á þessa tónleika með Björk og Sigurrós en þar sem ég er ennþá hérna í DK á ég ekki heimangengt. Reyndar eru Icelandair og Nyhedsavisen duglegir að auglýsa tónleikana og gefa "frímiða" á þá, þeas flug og gistingu með tónleikum.
Ég hef ekki heyrt hvort þeir verði sendir út á RÁS 2 en ef ekki væri dásamlegt ef einhver myndi taka sig til og senda þá út á netinu. Ó hvað það myndi gleðja mitt hjarta. Endilega sendið mér komment ef þið vitið eitthvað meira.

Þetta er svo frábært framtak hjá þessum listamönnum sem eru mínir uppáhalds. Málstaðurinn er líka góður en ég er hrædd um að þessi skilaboð - að vernda og bera virðingu fyrir náttúru Íslands - hitti ekki nema þá sem eru honum sammála. Hinir verða alltaf ófullnægðir, krefjast töfralausna og blása á svona "101 kaffihúsaatburð". Ó ef þeir myndu bara sjá ljósið.

Miðvikudagur 25. júní 2008 kl. 10:24 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem tækni / 4

Lífið þessa dagana

Vá hvað ég skulda feita bloggfærslu. Hef nánast ekkert skrifað hérna né á síðuna hans Danna sem mætti telja. Fína myndavélin, sem fékk nýja tösku á dögunum, hefur varla verið hreyfð og videovélin sem við vorum að versla hefur varla verið tekin upp. Það er svo ótrúlegt að það skulu bara vera rúmar tvær vikur hérna í danaveldi. Sem betur fer er ekki beint hvetjandi að versla þessa dagana út af þessum krónuskratta en við náðum þó að millifæra slatta fyrir síðasta fall svo það er spurning hvort það borgi sig að versla fyrir það eða bara senda það til baka og hirða gróðann.. heh
En reyndar er ég búin að vera dugleg að sanka að mér sætum fötum síðan fyrir páska :)


Á mánudaginn kynnti ég lokaverkefnið í skólanum og á föstudaginn verður svo útskriftin. Ég get ekki sagt að ég hafi lagt mikið í þetta blessaða verkefni vegna annarra anna, byrjaði að undirbúa kynninguna á sunnudag. En ég náði og það er það sem skiptir máli fyrir LÍN og fæðingarorlofssjóð.

Þessi meðganga er líka að ganga alveg ótrúlega vel (7-9-13) og furðulegt að það skuli vera komin 31 vika. Eiginlega bara lýgilegt. Í gær sat ég með tölvuna á hnjánum og var að hlusta á Rás2 í podcasti, ég fékk varla vinnufrið fyrir spörkum og byltum og látum í örugglega 2 klst. Það var ekki fyrr en ég slökkti á útvarpinu sem ró kom yfir bumbuna.

En já, 16 dagar í brottför. Jafnmargir kassar komnir út í geymslu og farið að verða pínu tómlegt í hillunum. Allt varðandi flutningana er komið á hreint og íbúðin heima verður tilbúin þegar við komum og við getum flutt beint inn án þess að þurfa að gera nokkuð.
Þrátt fyrir allt (kreppu, hallæri, veðurfar...) hlakkar okkur mikið til að koma heim, þessi tími í DK er búinn að vera ótrúlega fínn en við höfum afskaplega lítinn áhuga á að ílengjast hérna og fara að vinna hér eða verða danskari. Það verður líka kærkomið fyrir Danna að komast á íslenskan leikskóla og vera meira innan um fjölskylduna.

Þriðjudagur 24. júní 2008 kl. 22:32 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 0

að leigja..

Á meðan þetta er svona: Efnahagsvandinn í hnotskurn, þá kaupi ég ekki baun! Þá er nú betra að borga það sama í leigu og sjá innlánsvextina hækka en ekki skuldina.
Segiði svo að maður sé að henda peningum með því að leigja.

En já, við erum búin að skrifa undir leigusamninginn, búin að kaupa flugmiða og lestarmiða... 38 dagar til stefnu! whooot.. og ekki byrjuð að pakka!

Miðvikudagur 04. júní 2008 kl. 19:21 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 0

Til hamingju með daginn, pabbi!

sjomannadagsmerkid.jpgÍ dag er sjómannadagurinn, stærsti hátíðisdagur í minni æsku á eftir jólum og páskum. Ég man að það var alltaf hægt að fara út á tröppur og sleikja vorsólina að morgni sjómannadags, við systurnar fórum í fínu fötin (og svo hlýju fötin utanyfir), fengum sjómannadagsmerkið nælt í úlpuna, fórum niður á bryggu og um borð í bátinn hans Pabba og félaga og fórum á rúntinn í Eyjafirði, ásamt öllum hinum bátunum á nesinu og sandinum. Að sjálfsögðu var metist við hina krakkana um hverjir væru í hvaða bát og hver væri með flesta um borð.
Það var alveg ótrúlega gaman að fá að slæpast um í bátnum, fá prins póló (þetta mjóa í álpappírnum) og svala, kíkja í alla króka og kima um borð, spíta í frussandi ölduganginn, máta kojurnar, horfa á tomma og jenna í vhs (sem var jú ekki til á öllum heimilum), leita að súkkulaðikexi og þykjast vera að elda niðri í eldhúsi. Stiginn niður í lúkar (áður en bátnum var breytt) var náttúrulega snarbrattur og stórhættulegur og sennilega engin börn sem fengju að fara þar niður í dag nema vera með hjálm, tala nú ekki um upp á fremra dekk þar sem voðinn var vís ef einhver skyldi misstíga sig og rúlla út fyrir borð. En allir komu þeir aftur og enginn þeirra dó.

Those were the days.
Ég býst nú við því að pabbi hafi tekið einhvern rúnt um fjörðinn í tilefni dagsins, en það er svo sorglegt hvað stemningin sem hefur fylgt þessum degi sem og allt þetta líf í sjávarplássunum sem snerist um sjóinn og fiskveiðar, virðist fara að verða minningin ein. Ég vildi bara óska að Danni minn gæti átt þessa minningu líka.

Sunnudagur 01. júní 2008 kl. 20:10 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 4