fyndnasta í þessum heimi
Það fyndnasta í þessum heimi er sennilega þjóðblogg Baggalúts.
Til dæmis bloggfærsla eftir Einar Ben, ljóð sem ber nafnið Pylsa með öllu:
Þú húðlita bjargráð, þú innyflum útfyllta sin;
undirlögð margræðum sósum, á laukstráðu beði.
Af algleymisfögnuði langþráðum logar mitt gin
er ljúkast um enda þér titrandi varir, af gleði.
eða ljóðið Frjókornaofnæmi eftir Bólu-Hjálmar:
Í blóðsprengdum nösum mér hangir nú hor
horfinn er veturinn trausti.
Megir þú andskotans volaða vor
verða sem snarast að hausti.
Mánudagur 05. maí 2008 kl. 12:40
Flokkað sem ýmislegt. Þar eru 103 færslur.
Flokkað sem ýmislegt. Þar eru 103 færslur.
/ Álit
Gunna:
Þeir eru snillingar.
freyja:
jii, og rúmlega það, ég á bara bágt með að trúa að fólk geti verið svona fyndið..... mér finnst það bara kraftaverk :)



RSS veita