Athugasemdir við Bitruvirkjun

Mig langar til þess að vekja athygli á baráttu fyrir varðveislu Hengilssvæðisins, en þar á að reisa hina umdeildu Bitruvirkjun, til að afla orku fyrir álver í Helguvík:

"Hengilssvæðið hefur lengi verið ein helsta útivistarparadís íbúa höfuðborgarsvæðisins og er skilgreint sem útivistarsvæði á náttúruminjaskrá. Það er ekki síst mikilvægt bakland bæjafélagsins Hveragerði, bæði sem útivistarsvæði íbúa og fyrir ímynd bæjarins sem heilsu- og ferðamannabæjar. Hengilssvæðið er eitt örfárra á suðvesturhorninu þar sem hægt er að ganga um í friði og ró og njóta ótrúlega fjölbreyttrar náttúrufegurðar.
Sveitarfélagið Ölfus hefur auglýst breytingu á aðalskipulagi svæðisins sem felst í að útivistarsvæði er breytt í iðnaðarsvæði. Fresturinn til að gera athugasemdir til sveitarfélagsins rennur út 13. maí nk."


Leiðbeiningar um það hvernig á að senda athugasemdir má finna á www.hengill.nu.

Það er mikilvægt að allir sem hafa einhvern áhuga á náttúru landsins, hvort sem þeir búa á svæðinu eða ekki, taki sér 5 mínútur, prenti út blaðið og sendi í pósti til Sveitarfélagsins.


Með því að smella á posterið, sem var sent út til allra íbúa í Hveragerði, Selfossi og Ölfus, má finna margar áhugaverðar greinar um útivistarsvæðið og virkjunina.


g_petra_veggspjald_520570.jpg


Sunnudagur 04. maí 2008 kl. 19:32
Flokkað sem samfélag. Þar eru 49 færslur.

/ Álit

Guðrún Björk:

Þú átt MIKIÐ HRÓS skilið fyrir hvað þú ert dugleg að vekja athygli á málum sem varða okkar fagra Ísland og verndun náttúrunnar. Ég legg til að við sendum alla ráðherra ríkisstjórnarinnar til Danmerkur í nokkra mánuði og leyfum þeim að upplifa hvernig það er að eiga varla óræktaðan eða friðaðan blett til að stíga á. Það færir manni óneitanlega gestsauga á eigið heimaland að búa erlendis um tíma og læra að meta öll þau auðæfi af náttúru sem Ísland skartar. Það eru í mínum huga mestu verðmæti sem nokkur þjóð getur átt til frambúðar.

07.05.08 11:33


Dagný:

Takk fyrir hrósið. Ég reyni mitt besta. :)

Núna þarf maður bara að koma sér í gírinn og feisa fólkið sem heldur að af því maður er á móti því að landið sé eyðilagt fyrir orkufrekan iðnað þar sem gróðinn fer allur til erlendra stórfyrirtækja, þá vilji maður engar framfarir á Íslandi og því slengt fram að maður vilji þá að fólk lifi af því að týna fjallagrös og "eitthvað annað" (reyndar hefur mig langað lengi að veita "Eitthvað-annað-verðlaunin" þeim fyrirtækjum sem eru að auðga mannlífið og atvinnulífið á jákvæðan hátt til framtíðar) - þvert á móti þurfum við að horfa til annarra landa sem hafa styrkt menntakerfið (er hægt að læra frumkvöðlafræði á Íslandi í dag?) og eru með alvöru nýsköpunarstarfsemi.

En menntun og nýsköpun dugir víst ekki handa köllum sem vilja vinna í "alvöru" kallaverksmiðjum.

11.05.08 20:34


Guðrún Björk:

Já nákvæmlega. Ég er hjartanlega sammála þér.
Ef það væri nú þannig að hugmyndir um stóriðju kæmu frá Íslendingu sjálfum og ákvarðanir um slíkan iðnað væru teknar út frá hagsmunum þjóðar, lands og náttúru væri alveg örugglega minna um slíka iðju á Íslandi. Íslendingar verða að fara að horfa meira í eigin barm og ekki endalaust láta þessa stóru kalla í útlöndum plata sig út í slíka vitleysu. Pirrrrr, gæti alveg skrifað heila bók um þessi mál. Það er bara of seint í rassinn gripið eftir 100 ár þegar Ísland er búið að tapa sérkennum sínum og ekki lengur hægt að veita verðlaun fyrir "Eitthvað annað"

12.05.08 18:40