verkfallsbarnið mitt

Við erum núna stödd í miðju verkfalli leikskólakennara hérna í Danmörku. Núna er vika nr 2 sem leikskólinn er lokaður og allar fóstrurnar (veit það er bannorð) á götuhornum og niðri í bæ með bleik skilti í bleikum bolum að krefjast "rigtig løn!". Þau eru búin að hafna 12.8% hækkun, vilja fá 15%.
En meistari Daníel er bara sáttur við að vera heima, er ekki sáttur þegar við sitjum við sína hvora tölvuna, svona þegar hann er búinn að horfa á DVD safnið sitt, heldur dregur okkur út í góða veðrið... afkastagetan er ekki mikil þessa dagana, inboxið fyllist aftur um leið og maður nær að vinna eitthvað á því.
Hinn helmingurinn er í óða önn að skrifa lokaverkefnið sitt og bara tæpur mánuður til stefnu í því.
Vonandi skýrist þetta eitthvað á fimmtudaginn því þá munu hjúkrunarfræðingar (sem eru líka í verkfalli) kjósa um sinn samning og ef það fer einhvernveginn þá skýrist eitthvað með hitt.. eða hvað veit ég.
Auðvitað er ljúft að hafa drenginn heima, en það er bara erfitt þegar maður er sjálfur ekki í fríi.


Annars er ég að reyna að skrifa langa færslu því ég meika ekki að hafa þessa útúrsjoppuðu mynd lengur fyrir augunum.... ugh

Þriðjudagur 27. maí 2008 kl. 20:26 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem danmörk / 1

Detti mér nú allar..... [euroblogg]

euroband.jpg

Ég neyddist til að éta ofaní mig allt sem ég hef sagt um Júgóvision þegar við vorum dregin upp úr hattinum í kvöld (til dæmis að það eru ekki nógu margir flóttamenn frá Íslandi í Evrópu eða innflytjendur á Íslandi sem geta fengið ættingja sína í Evrópu til að kjósa).. ótrúlegt að við höfum komist áfram! (Kannski hafa allir Pólverjarnir sem eru nýkomnir heim hugsað svona hlýtt til okkar). :)
Að sjálfsögðu kusum við með öllum símum sem við fundum á heimilinu.

Þau stóðu sig auðvitað alveg geðveikislega vel á sviðinu og það fór alveg unaðsþjóðrembugæsahúð um mig á meðan, en ég átti bara frekar von á því að austrið myndi taka þetta allt saman eins og venjulega út af allt öðrum ástæðum en tónlist eða flutningi.


Það eru reyndar smá vonbrigði á heimilinu að liðugu meyjarnar frá Tékklandi hafi ekki komist áfram.. en samt hollt að sjá að eintóm kroppasýning skilar ekki miklu.


Til hamingju Ísland! (og Danmörk).... YEAH! :)

Fimmtudagur 22. maí 2008 kl. 20:59 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem ýmislegt / 0

flugmiðaverðs-strategía

Við gældum við það í uþb hálftíma í gær hvort við Danni ættum kannski bara að hoppa með Óla norður yfir helgina, hann ætlaði hvort sem er að taka bílinn til Köben (já, miðað við allt þá var það ódýrara og tók styttri tíma en lestin, þar sem hann verður með farþega á bakaleiðinni). Þetta yrði þá ótrúlega auðvelt ferðalag, beint til Akureyrar. Við tékkuðum á verðinu hjá IcelandExpress og miðinn fyrir okkur Danna var á samtals 82þús. Okkur fannst það heldur mikið fyrir bara tvo daga svo við kældum drauminn, enda bara nokkrar vikur þar til við komum heim og strákurinn kannski ekki alveg nógu hress í maganum í gær (en er það í dag).


Þegar Óli tékkaði sig svo inn í hádeginu spurði hann hvort vélin væri að verða full og daman í afgreiðslunni sagði honum að það væri langt í það.. 128 sæti laus!


Ég botna ekkert í því, af hverju menn reyna ekki að selja sætin ódýrari þegar það er svona rosalega stutt í flugið þegar svona mikið er laust. Ég meina, vélin er að fara hvort sem er. Af hverju er ekki reynt að selja restina af sætunum á slikk síðustu 3 daga fyrir brottför, svona eins og hopp miðarnir í innanlandsfluginu? Ég held nefnilega að við hefðum pottþétt skellt okkur með ef við hefðum geta gert góðan díl.
Hugsanlega væri líka hægt að fá fleiri spontant ferðamenn í bæinn.

En lending er áætluð núna kl 14 á AEY.

Föstudagur 16. maí 2008 kl. 14:08 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem danmörk / lífið sjálft / samfélag / 1

verkfall leikskólakennara

Óli fór í bítið út á Kastrup og á flug til Akureyrar núna rétt eftir hádegi. Þar ætlar hann í nokkur atvinnuviðtöl og kíkja á íbúð sem við erum nánast búin að festa okkur (leigu). Hann kemur svo aftur á sunnudaginn, með lambalæri og nóakropp í fararteskinu :)

Stráksi er heima í dag, búinn að vera með einhverja magakveisu síðustu daga og bæði gubbað og verið með "þunnan maga" í leikskólanum í vikunni. Í gær var hann hálf slappur svo við ákváðum að best væri að hann fengi að vera heima í dag. Upphafið að löngu fríi reyndar, því næstu vikur verða líka eitthvað púsl. Leikskólakennarar í 15 kommúnum/sveitarfélögum í Danmörku, þar af öllum Árósum, eru á leiðinni í verkfall. Ekki minna en tvær vikur en hugsanlega lengra.
Auðvitað er gott og gaman að hafa strákinn heima og hann hefur ekkert á móti því, en það dregur vinnuhraðann svolítið niður og það mátti ekki við miklu miðað við allt sem er í gangi. Krakkarnir í hverfinu verða líka heima í næstu viku þannig að það verða leikfélagar úti um allt.

En núna er það Leiftur McQueen í tækinu, - katsjá!

Föstudagur 16. maí 2008 kl. 09:02 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem danmörk / lífið sjálft / 0

sumarblíðan

Síðustu dagar hafa verið einstaklega sólríkir og heitir þannig að fjölskyldan öll er komin með smá lit á kroppinn. Á laugardaginn lékum við okkur í Tívolí og í gær fórum við á ströndina og sulluðum í sjónum (sem var reyndar ekki nema um 14°c heitur en alveg hægt að vaða). Í dag var svo bara afslöppun hérna heima, hituðum upp í grillinu seinnipartinn og elduðum pizzu á grilinu, og ég sver að það er held ég besta heimapizza sem ég hef smakkað! ótrúlega fljótlegt líka, svo fljótlegt að maður þarf að hafa hraðar hendur að koma álegginu á, því við grilluðum brauðið fyrst öðru megin, snerum því svo við og settum á pizzuna á meðan hún grillaðist hinumegin. Stórgott!


Núna eru tæplega tveir mánuðir eftir í Danmörku... úff.. það verður erfitt að fara, sérstaklega í góða veðrinu. Hins vegar eru góðu fréttirnar þær að við erum mjög líklega komin með húsnæði á Akureyri, það er íbúð sem er reyndar á sölu en við fáum leigða eitthvað frameftir næsta ári eða þangaðtil eitthvað gerist í fasteignamálunum. Hún ermjög flott, á fínum stað og alltof stór fyrir okkur en allt í besta með það. Óli fer heim um næstu helgi til að innsigla leigusamninginn og fara í nokkur starfsviðtöl. Ef það gengur allt saman vel þá verður þungu fargi létt af mér, það er ekki auðvelt að vera að byrja að pakka saman ekki vitandi hvar maður pakkar uppúr. Og já, ég er aðeins byrjuð að pakka, þó ekki nema fötunum sem ég kemst ekki aftur í fyrr en í haust. Vetrarfötin fara líka bráðum í kassa og langermabolir og síðbuxur líka ef veðrið heldur áfram svona.

Núna er það sem böggar mig mest hvað það er óhagstætt að fara í Ikea, fjandans gengið, miklu ódýrara í Ikea á Íslandi. Ég held að ég láti mig samt hafa það þar sem ég fer örugglega ekki suður eftir að við komum heim. En svona getur maður látið ómerkilega hluti hafa áhrif á sig þegar allt annað er í lagi.

Mánudagur 12. maí 2008 kl. 19:15 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem 0

fyndnasta í þessum heimi

Það fyndnasta í þessum heimi er sennilega þjóðblogg Baggalúts.
Til dæmis bloggfærsla eftir Einar Ben, ljóð sem ber nafnið Pylsa með öllu:


Þú húðlita bjargráð, þú innyflum útfyllta sin;
undirlögð margræðum sósum, á laukstráðu beði.
Af algleymisfögnuði langþráðum logar mitt gin
er ljúkast um enda þér titrandi varir, af gleði.


eða ljóðið Frjókornaofnæmi eftir Bólu-Hjálmar:


Í blóðsprengdum nösum mér hangir nú hor
horfinn er veturinn trausti.
Megir þú andskotans volaða vor
verða sem snarast að hausti.

Mánudagur 05. maí 2008 kl. 12:40 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem ýmislegt / 2

Athugasemdir við Bitruvirkjun

Mig langar til þess að vekja athygli á baráttu fyrir varðveislu Hengilssvæðisins, en þar á að reisa hina umdeildu Bitruvirkjun, til að afla orku fyrir álver í Helguvík:

"Hengilssvæðið hefur lengi verið ein helsta útivistarparadís íbúa höfuðborgarsvæðisins og er skilgreint sem útivistarsvæði á náttúruminjaskrá. Það er ekki síst mikilvægt bakland bæjafélagsins Hveragerði, bæði sem útivistarsvæði íbúa og fyrir ímynd bæjarins sem heilsu- og ferðamannabæjar. Hengilssvæðið er eitt örfárra á suðvesturhorninu þar sem hægt er að ganga um í friði og ró og njóta ótrúlega fjölbreyttrar náttúrufegurðar.
Sveitarfélagið Ölfus hefur auglýst breytingu á aðalskipulagi svæðisins sem felst í að útivistarsvæði er breytt í iðnaðarsvæði. Fresturinn til að gera athugasemdir til sveitarfélagsins rennur út 13. maí nk."


Leiðbeiningar um það hvernig á að senda athugasemdir má finna á www.hengill.nu.

Það er mikilvægt að allir sem hafa einhvern áhuga á náttúru landsins, hvort sem þeir búa á svæðinu eða ekki, taki sér 5 mínútur, prenti út blaðið og sendi í pósti til Sveitarfélagsins.


Með því að smella á posterið, sem var sent út til allra íbúa í Hveragerði, Selfossi og Ölfus, má finna margar áhugaverðar greinar um útivistarsvæðið og virkjunina.


g_petra_veggspjald_520570.jpg

Sunnudagur 04. maí 2008 kl. 19:32 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem samfélag / 3

1. maí og grafískar mótmælagöngur

Í dag er 1. maí. Frídagur verkalýðsins. Í dag fáum við frí til þess að minnast þess fólks sem stóð í baráttunni fyrir réttindum sem okkur finnst sjálfsögð í dag. Í dag eigum við að minnast þess að við stöndum ennþá í þessari baráttu, hvern einasta dag; fyrir réttindum okkar á vinnumarkaði, til náms, til orlofs og tíma með börnunum og fjölskyldunni. Þetta er kannski aðeins meira en upphaflega var haft í huga með verkalýðsdeginum en mér finnst hollt að tileinka deginum þessu líka til að minnast þess að við fengum þetta ekki upp í hendurnar baráttulaust, þetta er ekki sjálfsagður hlutur og gæti hæglega verið tekið af okkur aftur með einu pennastriki.


Þó ég hafi ekki verið mikill þátttakandi í mótmælagöngum undanfarið þá hefur starfið sem ég hef valið mér, grafísk hönnun - eða "myndræn framsetning/miðlun upplýsinga" í raun svo margt með þennan dag að gera. Fólk er að gera sig sýnilegt á þann hátt sem það getur, með því að ganga saman í fylkingu og hittast á ákveðnum miðpunkti, og blása þrótt hvert í annað. Þá skiptir líka máli að allir tali sama boðskapinn, skilji um hvað er verið að ræða og tali saman í eina átt.
Þannig hafa baráttugöngur kvenna og samkynhneigðra verið einna sterkustu kröfugöngunum því málefnin og markmiðin hafa verið skýr.


Undanfarna daga hafa umönnunarstéttir verið í kjarabaráttu hérna í Danmörku. Hjúkrunarfræðingar (Sygeplejerske) hafa staðið fyrir mótmælagöngum og ég hef tekið eftir því hvað þær hafa verið áhrifamiklar á myndrænan hátt. Semsagt, vel hönnuð ganga, þar sem ákveðnar reglur eru varðandi liti, klæðnað, slagorð og markmið, hefur sterkari áhrif á samstöðu heildarinnar.

Hjúkrunarfræðingar í mótmælum í þarsíðustu viku. Það þarf enginn að segja mér að það hafi ekki hönnuður komið þarna nálægt og lagt línurnar.


sbr. 1. Maí göngu í dag;

Einu skiltin sem ég sé á myndinni eru merki verkalýðs- og starfsgreinafélaga sem eru yfirleitt skammstafanir, sem ég hef yfirleitt ekki hugmynd um hvað standa fyrir, hvað þá að ég þekki tilgang þess og sögu eða baráttuna bak þeirra.


Þar sem Íslendingar eru oft haldnir ákveðinni hönnunarfælni (mér finnst álitið oft vera: "dýrt óþarfa tilgerðarbruðl" sbr. ummæli Steingríms J. fyrir síðustu kosningar; "Við þurfum enga hönnun" ) má segja að það þurfi ekki hönnuð til, bara ákveðinn hugsunarhátt og skipulag (sem er kjarninn í því sem hönnun gengur útá og þar eru fagmenn svona yfirleitt að verki).


En það held ég að sé einmitt vandamálið. Í þessi tvö ár sem ég er búin að búa í Danmörku hef ég tekið eftir (og þá aðallega í gegnum fjölmiðla) hvað Danir eru mun betri en við í því að koma sér að kjarnanum (haha.. það má til dæmis sjá á þessari löngu færslu að ég er Íslendingur!)
Mér hefur oft fundist að Íslendingar geri ráð fyrir að aðrir viti það sama og þeir, að menn lesi hugsanir eins og þeir séu ennþá að hlera sveitasímann, og þessvegna finnist eitthvað hallærislegt við að endurtaka sig og útskýra kjarnann í máli sínu.


Þegar markmiðin eru ekki skilgreind komast skilaboðin illa eða ekki til skila, sem veldur því að maður fær ekki þann stuðning sem maður annars fengi, og ef maður fær ekki stuðning þá missir maður móðinn og gefst fyrr upp á baráttunni.


Þess vegna held ég að það sem verkalýðsbaráttan þurfi núna sé gott hönnunarteymi.

Fimmtudagur 01. maí 2008 kl. 17:12 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem danmörk / lífið sjálft / samfélag / 3