Öll lífsins gæði?

olllifsinsgaedi.gif

Mig langar að vekja athygli á hópi fólks sem kallar sig Samtökin: Öll lífsins gæði? sem margir kannast við sem slagorð Akureyrarbæjar, að viðbættu spurningamerki.
Þetta er einfaldlega hópur bæjarbúa sem mótmælir skipulags- og sinnuleysi bæjaryfirvalda og röngum ákvörðunum sem byggjast helst á því að byggingaverktakar stjórni hvar og hvernig er byggt í bænum án þess að þurfa að taka tilllit til aðalskipulags bæjarins.
Það er náttúrulega ólíðandi og því finnst mér mjög jákvætt að sjá þessi kröftugu mótmæli frá bæjarbúum, þeim sem þurfa að búa við þessar ákvarðanir. Ég, sem verðandi bæjarbúi, fjölskyldumanneskja og áhugamanneskja um arkitektúr og gott skipulag, tek undir þau heilshugar.


Fimmtudagur 03. apríl 2008 kl. 20:52
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 238 færslur.

/ Álit

Tryggvi R. Jónsson:

Skipulag á Akureyri eru sérstakt mál og ég veit ekki alveg hvernig er hægt að klúðra málum svona síendurtekið.

03.04.08 21:08


daia:

Já, mér finnst líka alveg magnað að sjá þegar fólk í pólitík veit ekki fyrir hvern þeir eiga að vinna annars vegar og eru að vinna fyrir hins vegar. Það segir manni svolítið mikið um manneskjuna.

04.04.08 09:41


Mundi:

Er verið að tala um blokkirnar sem palli alfreðs seldi útsýnið úr síendurtekið. Sómatúnið? Verslunina síðu? Svefn og heilsu? Eða er verið að tala um þegar þeir þurftu að greiða konum sem unnu hjá þeim eingreiðslur vegna þess að karlar í sömu stöðum voru betur borgaðir. Eða er verið að tala um þegar var verið að endurskipuleggja starfsemi Punktsins. Það gleymdist bara að segja starfsmönnunum frá því!

Nei er ekki bara best að hætta að banna fólki undir 23 ára að koma í bæinn. Frekar að banna þeim sem hafa greindarvísitölu undir 23 að sitja í bæjarstjórn þessa fallega bæjar.

Það er ekki einleikið hvernig þeim hefur tekist að klúðra og fá neikvæða umfjöllun í fjölmiðlum undanfarin misseri


04.04.08 19:42


Anna:

Takk fyrir að vekja athygli á baráttunni okkar sam stöndum að þessum samtökum :)

05.04.08 17:03