ganga á góðum degi

Ég labbaði út í leikskóla að sækja strákinn fyrr í dag og ýtti þríhjólinu hans á undan mér (það er með handhægri ýtistöng að aftan). Það var fínasta veður, yfir 10 stiga hiti og ekki svo mikill vindur. Þegar maður situr svona allan daginn er nauðsynlegt að koma blóðflæðinu aðeins af stað um bumbuna.
Ég var því ekki að mótmæla bensínverðinu með því að skilja bílinn eftir heima, þó svo það sé alveg ágætlega dýrt hérna megin líka (verðið lækkar reyndar um krónu og nokkra aura 1x í viku svo maður þarf bara að fylgjast með). Mér finnst líka allt í lagi að bensín sé dýrt, amk fyrir einkabíla. Í venjulegum hópi fólks ætti það að ýta við fólki að spara og nýta sér aðra möguleika (sem eiga að vera mun fleiri í boði, en það er önnur saga). Það er annað með flutningabíla og þá sem flytja vörur milli landssvæða, hækkað flutningsverð kemur beinustu leið inn í verðlagið á viðkomandi svæði og minnkar samkeppnishæfni þess. Það er auk þess eitthvað mótsagnakennt við það að mótmæla háu olíuverði með því að eyða hálfum tanki í hægagangi.


Stráksi var úti í garði að leika og var glaður að fá að hjóla heim. Við stoppuðum aðeins á "dýraróló" eins og við köllum hann, en það er rólóvöllur í hverfinu sem krakkarnir í grunnskólanum sjá um eftir skóla og hugsa þar um húsdýrin. Við klöppuðum hestunum, geitunum og kanínunum og rifumst aðeins við fuglana áður en við gengum heim. Alls tók ferðin um einn og hálfan tíma.
Nokkru síðar, þegar við sátum við eldhúsborðið og úðuðum í okkur síðdegishressingunni byrjaði að hellirigna.


Þriðjudagur 01. apríl 2008 kl. 20:39
Flokkað sem danmörk. Þar eru 76 færslur.