bjartsýnisverðlaunin

Við hljótum að fá bjartsýnisverðlaunin 2008 fyrir að vera að flytja heim ! Þeir námsmenn í kringum okkur sem voru að huga að heimför á sama tíma og við eru núna hættir við að flytja heim. Ég lái þeim það ekki.


Fimmtudagur 10. apríl 2008 kl. 11:02
Flokkað sem danmörk. Þar eru 73 færslur.

/ Álit

Tryggvi R. Jónsson:

Tja, bjartsýni er auðvitað bara annað orð yfir...

10.04.08 11:04


daia:

...heimsku. Ekkert annað.

Svo ég taki það saman. Tæknilega séð gæti Óli unnið áfram hérna úti fyrir vinnuna sína heima eins og hann hefur verið að gera. Við myndum jú fara að byrja að borga einhver leikskólagjöld þar sem tekjurnar aukast (námsmenn og þeir sem eru með lágar tekjur fá ókeypis leikskóla). Ég fengi fínt fæðingarorlof frá danska ríkinu í eitt ár þar sem ég er búin að vera 2 ár í skóla hérna, auk þess myndu barnabæturnar hækka, sem eru 3500dkr á 3mán fresti í dag. Eins fengjum við áfram 40% húsaleigubætur fyrir húsaleigunni. Fyrir utan margt sem er mun ódýrara hérna og maður getur nálgast á oft góðu tilboði.
(og fyrir utan að við fengjum áfram 'ágætis' vexti á íbúðapeningnum heima)

En það eru bara peningar.

Margur verður af aurum api, þá er spurning hvort maður vilji vera api eða heimskur.

10.04.08 11:21


Ragnar Freyr:

Ég þigg þessi verðlaun með stolti! Ég vill bara þakka...

10.04.08 13:08


Hadda:

Er ekki bar spurning um að fresta heimför þar til húsnæðisverð hefur lækkað... Ekki eins og maður hitti ættingjana neitt minna, fólk virðist koma frekar í heimsókn milli landa;)

11.04.08 14:06


daia:

Það kom alveg upp í hugann að fara jafnvel í eitthvað meira nám, en spurningin er bara hvernær er besti tíminn fyrir mann persónulega. Ég nenni ekki að láta eitthvað svona drasl stjórna mér :/ Maður verður bara að sörfa þetta.

14.04.08 13:55


Guðrún Björk:

... sörfa já, hvað annað gera sannir Íslendingar. Þetta reddast allt, er það ekki... eru það ekki annars einkunnarorð íslenskrar þjóðarvitundar ???

15.04.08 10:20


sædís guðný:

alveg sammála þér með að láta ekki vexti eða bætur stjórna því hvar maður vill búa. annað hvort vill maður búa á íslandi eða ekki. nálægð við fjölskylduna er eitthvað sem maður verðleggur ekki. svo er ekkert bölsýni hér á ak:) allavega ekkert sem maður verður var við.
innilegar saknaðarkveðjur til ykkar allra
sædís og co á ak sem láta ekki bölsýni á sig fá:D

26.04.08 18:18