afmælisblús
Síðustu daga hef ég verið að undirbúa 4. ára afmæli stráksins sem var sl. þriðjudag. Á laugardaginn var svo afmælisveisla með öllu tilheyrandi og restin af helginni var eytt í að leika með allt nýja dótið.
Raunveruleikinn er svo að byrja að blasa við... ískaldur, í dag er síðasti dagur minn á þrítugsaldri. Og hann er senn á enda..
Það er því búið að vera svolítið þungskýjað yfir mér svona eftir afmælislæti stráksins því auðvitað er gleðilegt þegar árin bætast við hjá honum, en þegar þau eru orðin svona mörg og fljúga svona fljótt áfram þá finnur maður að maður hefur enga stjórn á þessu.
Óli lenti í þessu í fyrra reyndar, að verða þrítugur, og segir að það hafi ekki verið neitt sérstaklega sárt. En hann er líka karlmaður. Kannski er þetta bara eins og að rífa af plástur, svíður fyrst en tekur fljótt af. Ég vona allavega að ég hafi þetta af.
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 238 færslur.
/ Álit
Við skulum hafa tvennt hugfast:
1. Það er miklu betra að verða gamall en að verða það ekki.
2. Það þarf enginn að hafa áhyggjur af því að eldast ef sá hinn sami gerir það jafn vel og þú!
Innilegustu afmæliskveðjur frá okkur í Hamrahlíðinni
hæ stóira systir til hamingju með daginn:) vona að þið eigið glaðan dag. tíminn líður hraðar þegar það er gaman þannig að það er greinilegt að ykkur leiðist ekki:)
guggi:
Til hamingju með daginn gamla!
Ég er búinn að láta taka minn afmælisdag af skrá.
sædís:
innilegar hamingjuóskir med daginn :D eigdu gódan dag og njóttu thess ad láta óla stjana vid thig.
bestu kvedjur úr sliddunni/snjókomunni
sædís, eiki og börn
Til hamingju með afmælið elsku elsta systir mín! Þú lítur ekki út fyrir að vera deginum eldri en ég... og ég er bara 22ja ára! ;)
Knús&kossar
Kris:
Veistu Dagný að það er alveg hrikalega gaman að vera þrjátíuogeitthvað. Ef maður verður þunglyndur yfir því að eldast þá er nú útlitið ekki bjart.
Til hamingju með daginn og vertu hjartanlega velkomin í hóp okkar hinna sem erum á fertugsaldrinum
Guðný tengdamömmusystir:
Hæ sæta og til hamingju með daginn. Ósköp er að heyra þennan harmagrát - njóttu lífsins niður í tær, það batnar bara með aldrinum ;0)
Mundu að það sem tvítugur getur, gerir þrítugur betur!!
Kveðja úr slabbinu á Dalvíkinni draumabláu,
Guðný.
Eva:
Haha...þú ert svo mikið krútt! :) Þú ert ekki deginum eldri en þér líður! ;)
Vonandi er dagurinn búinn að vera góður hjá ykkur! Hlakka til að kíkja á þig annað kvöld :)
Knús og kossar,
Eva
Guðrún Erla:
Elsku Dagný
Innilega til hamingju með daginn, vona að þú hafir notið hans vel. Lífið verður bara betra og betra eftir því sem þú verður eldri;)
Kveðja Guðrún, Jói, Sara Ósk og Hildur Vala
Hæ fagra mær,
Til hamingju með afmælið...30 ára afmælið hehehhe gamla geit:-) hehehe
Já það er svona þú eignaðist eitt barn á þrítugsaldrinum og það næsta á fertugsaldrinum...:-)
En annars sagði Soffía að það væri æði að vera þrítug...alveg að fíla sig í tætlur.
Vonandi hefur þú átt góðan dag elskan og sért að jafna þig því nú er þessi afmælisdagur bara alveg að verða búinn.
Hlakka annars til að sjá ykkur á Íslandinu.
Gleymdi að senda afmæliskoss:-*
Gunna:
Til hamingju með afmælið :)
Nú er ég bara klökk... takk fyrir falleg orð og góðar kveðjur öll sömul, þetta var ekki alveg eins sárt í morgun og ég bjóst við.. eiginlega fannst mér ég vera alveg sami unglingurinn og í gær.. góð tilfinning ;)
Í tilefni dagsins bakaði ég að sjálfsögðu skúffuköku með bleiku smarties og kornflexkökur eins og í alvöru afmælum. Svo fór stórfjölskyldan út að borða á ítölskum veitingastað í kvöld. Huggulegt og rólegt.
Takk aftur - þið eruð æði!
Svanhildur:
Til hamingju með daginn í gær!



RSS veita