afmælisblús

Síðustu daga hef ég verið að undirbúa 4. ára afmæli stráksins sem var sl. þriðjudag. Á laugardaginn var svo afmælisveisla með öllu tilheyrandi og restin af helginni var eytt í að leika með allt nýja dótið.
Raunveruleikinn er svo að byrja að blasa við... ískaldur, í dag er síðasti dagur minn á þrítugsaldri. Og hann er senn á enda..
Það er því búið að vera svolítið þungskýjað yfir mér svona eftir afmælislæti stráksins því auðvitað er gleðilegt þegar árin bætast við hjá honum, en þegar þau eru orðin svona mörg og fljúga svona fljótt áfram þá finnur maður að maður hefur enga stjórn á þessu.
Óli lenti í þessu í fyrra reyndar, að verða þrítugur, og segir að það hafi ekki verið neitt sérstaklega sárt. En hann er líka karlmaður. Kannski er þetta bara eins og að rífa af plástur, svíður fyrst en tekur fljótt af. Ég vona allavega að ég hafi þetta af.

Mánudagur 28. apríl 2008 kl. 19:05 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 14

verðkönnunarsystemið - #2

Eyjan » Ráðuneyti og ASÍ semja um fjölgun verðkannana

Djö, að ég sé ekki búin að búa til verðlagseftirlitsforrititð sem skaust í hausinn á okkur á síðasta ári, þá hefði ég geta selt Bjögga það fyrir nokkrar millur.
Maður á náttúrulega að framkvæma svona hugmyndir þegar þær skjóta svona rótum.

Mánudagur 28. apríl 2008 kl. 11:54 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem 0

bjartsýnisverðlaunin

Við hljótum að fá bjartsýnisverðlaunin 2008 fyrir að vera að flytja heim ! Þeir námsmenn í kringum okkur sem voru að huga að heimför á sama tíma og við eru núna hættir við að flytja heim. Ég lái þeim það ekki.

Fimmtudagur 10. apríl 2008 kl. 11:02 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem danmörk / 7

Leirhnjúkur og Gljástykki

Ég les alltaf bloggið hans Ómars því þar finnst mér vera eitt stærsta debat um virkjanaframkvæmdirnar sem eru í fullum gangi. Hann er sjálfur svo gríðarlega fróður um náttúru Íslands og ég hnaut um eitt komment við færslu um ákvörðun Þórunnar Sveinbjarnar um að of seint sé að framkvæma eðlilegt mat á umhverfisáhrifum vegna álvers í Helguvík. Ég ætla að leyfa mér að líma hérna fyrir neðan komment frá Ómari um Gljástykki og Leirhnjúk til geymslu og áminningar:

› framhald...

Föstudagur 04. apríl 2008 kl. 09:29 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem samfélag / 2

Öll lífsins gæði?

olllifsinsgaedi.gif

Mig langar að vekja athygli á hópi fólks sem kallar sig Samtökin: Öll lífsins gæði? sem margir kannast við sem slagorð Akureyrarbæjar, að viðbættu spurningamerki.
Þetta er einfaldlega hópur bæjarbúa sem mótmælir skipulags- og sinnuleysi bæjaryfirvalda og röngum ákvörðunum sem byggjast helst á því að byggingaverktakar stjórni hvar og hvernig er byggt í bænum án þess að þurfa að taka tilllit til aðalskipulags bæjarins.
Það er náttúrulega ólíðandi og því finnst mér mjög jákvætt að sjá þessi kröftugu mótmæli frá bæjarbúum, þeim sem þurfa að búa við þessar ákvarðanir. Ég, sem verðandi bæjarbúi, fjölskyldumanneskja og áhugamanneskja um arkitektúr og gott skipulag, tek undir þau heilshugar.

Fimmtudagur 03. apríl 2008 kl. 20:52 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 4

wildest dreams!

Í nótt dreymdi mig að íslenska krónan hefði styrkst svo mikið að sú danska væri núna í 8.9! Af því við erum 2 tímum á undan þá náðum við að millifæra allt yfir á þessu gengi áður en bankarnir opnuðu og svo eftir smá tíma fór allt niður aftur og endaði held ég í 19dkr.
Vá, ég held að ég hafi aldrei braskað svona mikið í einum draumi.

Miðvikudagur 02. apríl 2008 kl. 10:54 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 3

ganga á góðum degi

Ég labbaði út í leikskóla að sækja strákinn fyrr í dag og ýtti þríhjólinu hans á undan mér (það er með handhægri ýtistöng að aftan). Það var fínasta veður, yfir 10 stiga hiti og ekki svo mikill vindur. Þegar maður situr svona allan daginn er nauðsynlegt að koma blóðflæðinu aðeins af stað um bumbuna.
Ég var því ekki að mótmæla bensínverðinu með því að skilja bílinn eftir heima, þó svo það sé alveg ágætlega dýrt hérna megin líka (verðið lækkar reyndar um krónu og nokkra aura 1x í viku svo maður þarf bara að fylgjast með). Mér finnst líka allt í lagi að bensín sé dýrt, amk fyrir einkabíla. Í venjulegum hópi fólks ætti það að ýta við fólki að spara og nýta sér aðra möguleika (sem eiga að vera mun fleiri í boði, en það er önnur saga). Það er annað með flutningabíla og þá sem flytja vörur milli landssvæða, hækkað flutningsverð kemur beinustu leið inn í verðlagið á viðkomandi svæði og minnkar samkeppnishæfni þess. Það er auk þess eitthvað mótsagnakennt við það að mótmæla háu olíuverði með því að eyða hálfum tanki í hægagangi.


Stráksi var úti í garði að leika og var glaður að fá að hjóla heim. Við stoppuðum aðeins á "dýraróló" eins og við köllum hann, en það er rólóvöllur í hverfinu sem krakkarnir í grunnskólanum sjá um eftir skóla og hugsa þar um húsdýrin. Við klöppuðum hestunum, geitunum og kanínunum og rifumst aðeins við fuglana áður en við gengum heim. Alls tók ferðin um einn og hálfan tíma.
Nokkru síðar, þegar við sátum við eldhúsborðið og úðuðum í okkur síðdegishressingunni byrjaði að hellirigna.

Þriðjudagur 01. apríl 2008 kl. 20:39 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem danmörk / 0