okursamfélagið og neytendavaktin

Sé á Vísi að mjólkurlíterinn er líklega að fara yfir 100 kallinn eftir helgi. Þegar ég flutti úr landi var hann held ég að nálgast 80kr. Hérna í DK kostar líterinn milli 6 og 8kr sem er jú komið langt yfir 100 kallinn ef maður þarf að skipta fyrst úr íslenskum yfir í danskar. Hins vegar er líka oft hægt að kaupa 2 fernur fyrir 10 kr (eða eins og um áramótin þegar einn peli af rjóma kostaði 10kr á meðan tveir kostuðu 9. - mamma var þess vitni). Mikið á ég eftir að sakna þess að geta ekki gert svona magndíla, það er svo dásamlegt að eiga 8 fernur af safa inni í skáp og þurfa ekki að burðast með þá heim í hverri viku.


En það sem ég skil ekki, þegar menn tala um að þeir séu að berjast við að hemja verðbólgubálið að menn reyni ekki að breyta tollalögum til að hemja verðhækkanir.
Sem dæmi finnst mér að allt sem flokkast undir ávexti og grænmeti eigi að vera toll- og skattfrjálst, a.m.k. það sem ekki er hægt að rækta á landinu sem eru langflestir ávextir. Ég vil að sjálfsögðu velja íslenskt og geri það nær alltaf ef ég hef kost á. Svona breyting myndi koma fram í betri heilsu landans, ekki spurning.


Þegar ég hugsa (með hryllingi) til allra þessara verðhækkana (við erum jú að flytja heim í júlí) þá hugsa ég til neytendaverðkönnunar-hugmyndarinnar sem við fengum síðasta haust út frá fréttinni um samráð matvöruverslana (já, hvað er annars að frétta af því?!), sem gengur út á það að þegar þú ert kominn heim með vörurnar og strimilinn loggar þú þig inn í kerfið á vefnum og skráir inn hvað hlutirnir hafi kostað ásamt því hvar og hvenær þeir voru verslaðir. Þetta er allt háð því að fólk noti sama strikamerkið, sem má jú finna á vörunni og er eins hvar sem varan er versluð.
Það væri líka hægt að búa til forrit í símann (það ganga jú allir um með síma) sem notar myndavélina í símanum sem skanna þannig að þú getir skannað strikamerkið á staðnum og stimplað inn vöruheiti, stað og verð og forritið myndi svo geyma upplýsingarnar þar til þú kemur heim og tengir símann við tölvuna (bluetooth t.d. eða gagnasnúra sem margir nota til að hlaða myndum af símanum eða tónlist inná), því ekki viljum við vera að senda óþarfa sms! Að skanna á staðnum getur þú líka fylgst betur með því hvort hilluverð vs. kassaverð sé rétt.


Með svona gagnabanka að vopni væri hægt að sjá hvaða verslun hafi verið ódýrust síðustu daga, hverjir séu að hækka óeðlilega og gæti jafnvel hugsanlega komið á einhverri samkeppni (reyndar er þetta allt sama sjoppan sem við erum að versla við og varla hægt að sjá að þeir keppi eitthvað við sjálfan sig).


Eitt finnst mér bara víst, fólk sem eru að reyna að lifa af á skerinu verður að taka sig saman og láta verslanirnar eða stjórnvöldin ekki gjörsamlega keyra yfir sig. Þetta ástand er að sjálfsögðu ekki sjoppunum sjálfum að kenna, þeirra er aukinn kostnaður við innkaup, en heimilin eiga ekki að taka á sig skellinn.


strenght-in-numbers.jpg


Fimmtudagur 27. mars 2008 kl. 10:32
Flokkað sem hugmyndir. Þar eru 4 færslur.