Mig langar í rafmagnsbíl
Ég er búin að láta mig dreyma um Toyota Prius sem er með tvinnvél, þeas rafmagnsvél og bensínvél. Ég er samt ekki mikil bílamanneskja, dæmi bíla yfirleitt á kvenlega mátann.. þ.e. eftir lit, mýkt sæta eða fjölda hólfa. Umhverfisvitund er líka að koma inn í þetta kvenlega mat því ég hef einhvernveginn á tilfinningunni að konur vilji umfram allt umhverfisvæna bíla.
En það er nú bara tilfinning.
Um daginn brunuðum við niður þjóðveg E45 sem liggur í gegnum Jótland niður til Þýskalands. Bensínverðið er reyndar ekki búið að vera mjög hagstætt, um 10.6 dkk en þennan morgun hittum við á norsku XY stöðina í góðu skapi og verðið var 9.3dkk. Einhverjar 20 isk sveiflur á líterinn, sem gerist bara á Íslandi þegar helvíti frýs.
Það var á leiðinni heim sem ég hugsaði um straumlínulagaða dökksilfraða Priusinn, og sérstaklega um að rafmagnsvélin myndi sennilega duga skammt því hún leyfir afar takmarkaðan hraða sem miðar við innanbæjarakstur.
En hvernig verður þetta þá í framtíðinni í olíuskortinum, það vilja jú allir vera á sínum eigin bíl og geta ferðast frá A til B án fyrirhafnar, hvernig fer maður þá á milli bæja eða jafnvel landshluta?
Jú, einmitt í lest. Bílalest, svona rétt eins og ferju.
Snilld að geta keyrt inn í lestina á litla rafmagnssmábílnum sínum, stillt á ákvörðunarstað, sett bílinn í hleðslu og horft á dvd úr sætinu sínu eða fengið sér lúr. Svo þegar maður er kominn opnast hlerinn og maður keyrir út.
En djö.. held ég að það væri fitandi líf.
Flokkað sem hugmyndir. Þar eru 4 færslur. / samfélag. Þar eru 49 færslur. / tækni. Þar eru 60 færslur.
/ Álit
Ég hafði einu sinni Prius til afnota í nokkra daga, líklega sumarið 2004. Hét því þá að fá mér aldrei rafmagnsbíl, þurfti að ýta bílnum upp Kambana og í mótvindi var alveg eins hægt að labba.
En varðandi það að þessir bílar séu kraftlausir þá segja sumir að stóru olíurisarnir haldi aftur af þróun rafmangsbíls, vetnisbíls oþh. Hvað verður svo þegar olíukrísan skellur á af alvöru er spurning. ÉG hef þá trú að þá verði þessir bílar ekkert síðri en þeir sem við erum að keyra núna.
daia:
já, takk fyrir innleggið. Ég byggi þessa löngun án þess að hafa nokkurn tíman setið í eða ekið þessum bíl (svona er maður ódýr) en draumurinn er að eignast smábíl sem gengur fyrir rafmagni og Toyota liggur vel við höggi af því við eigum Avensis í dag sem ég myndi gjarnan vilja skipta út þegar hann er kominn á tíma (hann er góður þjónn) og er haldin miklu brand loyalty :)
Ég held nefnilega að þessir bílar batni með hverju ári, 2008 árgerðin er örugglega betri en 2004, ég held að þegar Heba fær bílpróf þá geturðu sagt henni sögur af því að einusinni þurfti maður að fara á "bensínstöð!!" ;)



RSS veita