Fiðrildaáhrifin

Mikið finnst mér þetta falleg skilaboð:

fidrildaahrif.jpg

Fiðrildið hefur tilvísun í alþjóðlega baráttu gegn kynbundnu ofbeldi og hefur í gegnum aldirnar verið álitin táknmynd fyrir umbreytingar í lífi fólks í átt til frelsis. Fiðrildið stendur fyrir vonina og styrkinn í mýktinni. Fiðrildaáhrif vísa í þá kenningu að vængjasláttur örsmárra fiðrilda í einum heimshluta geti haft áhrif á stór veðurkerfi hinumegin á hnettinum.
--
Þegar konur eru heilbrigðar, menntaðar og njóta frelsis til þess að nýta þau tækifæri sem lífið hefur uppá að bjóða, þrífast börn og ríki blómstra, og konur og börn (samfélagið)
uppskera margfalt.
- Kofi Annan

Mikið held ég að heimurinn verði betri ef virðing fyrir konum og þeirra gildum yrðu í hávegum höfð, hvort sem það eru karlar eða konur sem bera þau uppi.


Fimmtudagur 06. mars 2008 kl. 00:16
Flokkað sem hönnun. Þar eru 159 færslur. / samfélag. Þar eru 49 færslur.

/ Álit

baddy systir:

mikið er ég hjartanlega sammála þér. það er sorglegt hvernig staða konunnar er enn þann dag í dag og þá ekki bara út í hinum stóra heimi heldur einnig hérna á íslandi, sbr færsluna þína hér á undan.

06.03.08 11:01