þessi fjandans forarpytts króna!!
Hún ISK er búin að hrynja í morgun eins og mý í rafmagnsljósi. Sú danska er komin upp í 14 kr íslenskar en var fyrir nokkrum mánuðum yfirleitt nokkuð stöðugt milli 11 og 12. Þá var leigan okkar (sem er 6600 dkk) í um 75.000 en í núgildi dagsins er leigan komin í 92.400 ! Ansi góð sveifla þar á bæ. :/
Það er náttúrulega ekki hægt að fóta sig á fréttavefjunum þessa dagana fyrir fjármálafréttum og það er mjög skiljanlegt. Hvernig í ósköpunum ætli sé að standa í inn- og útflutningi (reyndar sennilega betra, en sveiflur eru vondar) þegar ástandið er svona ?
Ég er ekkert sérstaklega að halda því fram að við eigum að taka upp Evru, finnst miklu frekar að við ættum að tengja krónuna við Evru eins og Danirnir gera, það myndi stöðva sveiflurnar þar sem fjármálapeyjarnir hætta að þessu gambli. Ásamt því að gera tollasamninga við ESB þannig að við getum flutt inn vörur á ódýrari hátt.. samkeppnin innanlands myndi fá samkeppni frá netverslunum.
Ef tengingin virkar ekki af einhverjum ástæðum (var það ekki Argentína sem tengdi sig við USD án þess að forsendurnar innanlands héldu í með frekar óskemmtilegum afleiðingum) þá ætti að vera auðveldara að "aftengja" heldur en að sitja uppi með evru sem við getum ekki notað.
Eða jafnvel, eins og ég sá einhversstaðar fleygt fram, að vekja upp hið skandinavíska myndbandalag frá 19. öld og búa til hina sameiginlegu norrænu krónu!
Pant hanna eina víkingamynt!
Annars veit ég ekkert um hagfræði og forðast að rökræða um fjármál. Ég held bara áfram að borga mína dönsku leigu af íslensku námslánunum og fylgist af áfergju með blaðrinu í fréttunum án þess að nokkur geri nokkuð af viti.
Flokkað sem samfélag. Þar eru 49 færslur.
/ Álit
Bara hitta á þegar Evran er 100kr og klippa tvö núll af... það er ekki eins og við höfum ekki misst tvö núll áður.
Rakst annars á það á mbl.is eða visir.is í morgun að það væri ekki skynsamlegt að búa á Íslandi:
http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/03/07/ekkert_vit_i_ad_flytja_til_islands/
Hmmm
já það er sko ekki fýsilegt.. og ég sem ætlaði að versla svo mikið til að setja í gáminn!!.. var bara rétt að byrja.. :( spurning hvort maður bíður með að fara niður í bæ, eftir að krónan styrkist, og ég sem ætlaði að fara á eftir... :S
Það er þó skömminni skárra að vera að flytja til AK heldur en í geðveikrabælið (fasteignaverðslegaséð) RVK..
og þessi tvö núll.. í stærðfræðinni sem ég lærði var núll það sama og ekki neitt þannig að tvö núll hljóta að vera reyndar aðeins meira en ekki neitt, en samt ekki neitt til að stressa sig yfir.. en ég var náttúrulega bara á félagsfræðibraut.
"Ísland í EU.. núllin burt!!"



RSS veita