að flytja eða ekki flytja heim...
jájá.. ég hefði átt að grenja meira um daginn þegar krónan stökk upp í 14 kr.. hefði betur átt að kaupa evrur fyrir alla pjeníngana mína á þeim tímapunkti. Núna þegar hún er að nálgast 17kr er leigan komin upp í 112.000 en var 75þ um áramót. Æðislegt!! Fokkar aldeilis upp heimilisbókhaldinu.
En það þýðir víst ekkert að grenja heldur bara reyna að sörfa í gegnum þetta. Við fórum í barnavagnaskoðun (reyndar ekki það sama og bifreiðaskoðun) um daginn og sáum á endanum Simo Lux vagn (norskir vagnar sem eiga að henta vel við íslenskar aðstæður) árgerð 2007 á tilboði (það eru að detta inn ný módel). Tilboðið var 3.999 danskar sem ég nenni ekki að yfirfæra, en venjulega kosta þessir vagnar um 85.000 á Íslandi. Grunar að þeir eigi eftir að vera aðeins dýrari heima í haust ef fram fer sem horfir. En ég stökk á tilboðið og vona að krónan verði komin undir 10 í júní þegar ég borga hann.. haha.. ha..
En, það lítur ekki út fyrir að við gerum mikil innkaup áður en við flytjum heim í júlí, fer kannski eftir því hvernig verðlagið þróast heima. Það hvarflaði reyndar að okkur á falldögunum hvort við ættum yfir höfuð að vera að flytja aftur í þetta bananalýðveldisokurbæli. Það meikar auðvitað meiri sens að finna vinnu hérna og senda þá bara pening heim eins og sannur verkamaður - en löngunin til að komast heim og ala börnin upp í íslensku umhverfi innan um fjölskylduna er yfirsterkari peningagræðginni. Hins vegar er ekkert víst að við kaupum íbúð áður en við komum. Finnum samt vonandi einhversstaðar fjárhús til að leggja væntanlegan erfingja í jötu í sumarnóttinni.
Í kvöld var reyndar frétt á TV2 af verðbréfasölum hjá að störfum hjá Jyske Bank í Silkiborg. Þeirra helsta starf í dag var að selja íslenskar krónur, reyna að losna við sem mest fyrir páska.
Flokkað sem danmörk. Þar eru 73 færslur.
/ Álit
Gunna:
Já andskotans Króna maður... þetta er bara skerí sko. 122,85 ISK í 1 fjandans evru. Skil vel að þetta fari mjög illa með þá sem eru með fjárhaginn heima hjá sér.
Nú tekur bara við barnsleg hugsun mín eins og í den - getur seðlabankinn ekki bara prentað út fleiri seðla??
Þessi hugmynd um að flytja ekki heim, er felld með 1000 atkvæðum á móti þínu eina. Þetta er ekki til umræðu. Þið komið heim! ;)
hver segir að atkvæðið mitt sé svona?.. mig vantar bara fjárhús!! ;)
Já hver sagði að það væri eitthvert lýðræði í gangi? Er það ekki byggt á einhverjum misskilningi?
Þannig að upphæð námslána til námsmanna erlendis er föst krónu tala og ekki tekið tillit til gengis eins og t.d. í reglum RSK um dagpeninga þar sem er notaður samsettur gjaldmiðill til að ákvarða leyfilega dagpeninga?
Reyndar eru námslánin okkar reiknuð í dönskum krónum og borguð þannig inn á íslenskan reikning. Það er svo okkar að millifæra milli landa. Hins vegar ef maður millifærir ekki á sama gengi og maður fékk lánin (til dæmis til að nýta góða ávöxtun á Íslandi miðað við 0.01% innlánsvexti hérna).. tja, lendir maður í gengismismuninum.
En annars.. nei, það er hvorki lýðræði né fullveldi í gangi. Bara bongó.



RSS veita