Mig langar í rafmagnsbíl
Ég er búin að láta mig dreyma um Toyota Prius sem er með tvinnvél, þeas rafmagnsvél og bensínvél. Ég er samt ekki mikil bílamanneskja, dæmi bíla yfirleitt á kvenlega mátann.. þ.e. eftir lit, mýkt sæta eða fjölda hólfa. Umhverfisvitund er líka að koma inn í þetta kvenlega mat því ég hef einhvernveginn á tilfinningunni að konur vilji umfram allt umhverfisvæna bíla.
En það er nú bara tilfinning.
Um daginn brunuðum við niður þjóðveg E45 sem liggur í gegnum Jótland niður til Þýskalands. Bensínverðið er reyndar ekki búið að vera mjög hagstætt, um 10.6 dkk en þennan morgun hittum við á norsku XY stöðina í góðu skapi og verðið var 9.3dkk. Einhverjar 20 isk sveiflur á líterinn, sem gerist bara á Íslandi þegar helvíti frýs.
Það var á leiðinni heim sem ég hugsaði um straumlínulagaða dökksilfraða Priusinn, og sérstaklega um að rafmagnsvélin myndi sennilega duga skammt því hún leyfir afar takmarkaðan hraða sem miðar við innanbæjarakstur.
En hvernig verður þetta þá í framtíðinni í olíuskortinum, það vilja jú allir vera á sínum eigin bíl og geta ferðast frá A til B án fyrirhafnar, hvernig fer maður þá á milli bæja eða jafnvel landshluta?
Jú, einmitt í lest. Bílalest, svona rétt eins og ferju.
Snilld að geta keyrt inn í lestina á litla rafmagnssmábílnum sínum, stillt á ákvörðunarstað, sett bílinn í hleðslu og horft á dvd úr sætinu sínu eða fengið sér lúr. Svo þegar maður er kominn opnast hlerinn og maður keyrir út.
En djö.. held ég að það væri fitandi líf.
okursamfélagið og neytendavaktin
Sé á Vísi að mjólkurlíterinn er líklega að fara yfir 100 kallinn eftir helgi. Þegar ég flutti úr landi var hann held ég að nálgast 80kr. Hérna í DK kostar líterinn milli 6 og 8kr sem er jú komið langt yfir 100 kallinn ef maður þarf að skipta fyrst úr íslenskum yfir í danskar. Hins vegar er líka oft hægt að kaupa 2 fernur fyrir 10 kr (eða eins og um áramótin þegar einn peli af rjóma kostaði 10kr á meðan tveir kostuðu 9. - mamma var þess vitni). Mikið á ég eftir að sakna þess að geta ekki gert svona magndíla, það er svo dásamlegt að eiga 8 fernur af safa inni í skáp og þurfa ekki að burðast með þá heim í hverri viku.
En það sem ég skil ekki, þegar menn tala um að þeir séu að berjast við að hemja verðbólgubálið að menn reyni ekki að breyta tollalögum til að hemja verðhækkanir.
Sem dæmi finnst mér að allt sem flokkast undir ávexti og grænmeti eigi að vera toll- og skattfrjálst, a.m.k. það sem ekki er hægt að rækta á landinu sem eru langflestir ávextir. Ég vil að sjálfsögðu velja íslenskt og geri það nær alltaf ef ég hef kost á. Svona breyting myndi koma fram í betri heilsu landans, ekki spurning.
Þegar ég hugsa (með hryllingi) til allra þessara verðhækkana (við erum jú að flytja heim í júlí) þá hugsa ég til neytendaverðkönnunar-hugmyndarinnar sem við fengum síðasta haust út frá fréttinni um samráð matvöruverslana (já, hvað er annars að frétta af því?!), sem gengur út á það að þegar þú ert kominn heim með vörurnar og strimilinn loggar þú þig inn í kerfið á vefnum og skráir inn hvað hlutirnir hafi kostað ásamt því hvar og hvenær þeir voru verslaðir. Þetta er allt háð því að fólk noti sama strikamerkið, sem má jú finna á vörunni og er eins hvar sem varan er versluð.
Það væri líka hægt að búa til forrit í símann (það ganga jú allir um með síma) sem notar myndavélina í símanum sem skanna þannig að þú getir skannað strikamerkið á staðnum og stimplað inn vöruheiti, stað og verð og forritið myndi svo geyma upplýsingarnar þar til þú kemur heim og tengir símann við tölvuna (bluetooth t.d. eða gagnasnúra sem margir nota til að hlaða myndum af símanum eða tónlist inná), því ekki viljum við vera að senda óþarfa sms! Að skanna á staðnum getur þú líka fylgst betur með því hvort hilluverð vs. kassaverð sé rétt.
Með svona gagnabanka að vopni væri hægt að sjá hvaða verslun hafi verið ódýrust síðustu daga, hverjir séu að hækka óeðlilega og gæti jafnvel hugsanlega komið á einhverri samkeppni (reyndar er þetta allt sama sjoppan sem við erum að versla við og varla hægt að sjá að þeir keppi eitthvað við sjálfan sig).
Eitt finnst mér bara víst, fólk sem eru að reyna að lifa af á skerinu verður að taka sig saman og láta verslanirnar eða stjórnvöldin ekki gjörsamlega keyra yfir sig. Þetta ástand er að sjálfsögðu ekki sjoppunum sjálfum að kenna, þeirra er aukinn kostnaður við innkaup, en heimilin eiga ekki að taka á sig skellinn.
post páskar
Páskarnir búnir og alvara lífsins tekin við. Lífið er nú ósköp einfalt hérna við árósa. Ég fór í skólann í morgun, í annað skipti á árinu held ég, til að skila verkefni. Það eru engir tímar þessa síðustu önn heldur bara verkefni. Nú þegar þetta verkefni er búið þá er bara prófaverkefnið eftir, og því á að skila í júní. Og þar sem skólinn er ekki með aðstöðu fyrir okkur til að vinna í þá erum við bara send út og suður. Alveg sama er mér, skrifborðið mitt hérna heima er bara fínt.
Ótrúlegt en satt, að þá eru páskaeggin ekki búin.. stráksi minn hefur ekki mikinn áhuga á að borða leyfarnar sem eru inni í ísskáp og ég er ekkert að ota þeim að honum heldur reyni að gúffa sem mestu í mig þegar hann er sofnaður. Bumbubúinn er sérlega hrifinn af því svo þegar ég hætti átinu og lagðist til svefns fann ég í fyrsta skipti spörk í lófann... held að það hafi verið merki um að ég ætti að drífa mig fram í ísskáp aftur.
að flytja eða ekki flytja heim...
jájá.. ég hefði átt að grenja meira um daginn þegar krónan stökk upp í 14 kr.. hefði betur átt að kaupa evrur fyrir alla pjeníngana mína á þeim tímapunkti. Núna þegar hún er að nálgast 17kr er leigan komin upp í 112.000 en var 75þ um áramót. Æðislegt!! Fokkar aldeilis upp heimilisbókhaldinu.
En það þýðir víst ekkert að grenja heldur bara reyna að sörfa í gegnum þetta. Við fórum í barnavagnaskoðun (reyndar ekki það sama og bifreiðaskoðun) um daginn og sáum á endanum Simo Lux vagn (norskir vagnar sem eiga að henta vel við íslenskar aðstæður) árgerð 2007 á tilboði (það eru að detta inn ný módel). Tilboðið var 3.999 danskar sem ég nenni ekki að yfirfæra, en venjulega kosta þessir vagnar um 85.000 á Íslandi. Grunar að þeir eigi eftir að vera aðeins dýrari heima í haust ef fram fer sem horfir. En ég stökk á tilboðið og vona að krónan verði komin undir 10 í júní þegar ég borga hann.. haha.. ha..
En, það lítur ekki út fyrir að við gerum mikil innkaup áður en við flytjum heim í júlí, fer kannski eftir því hvernig verðlagið þróast heima. Það hvarflaði reyndar að okkur á falldögunum hvort við ættum yfir höfuð að vera að flytja aftur í þetta bananalýðveldisokurbæli. Það meikar auðvitað meiri sens að finna vinnu hérna og senda þá bara pening heim eins og sannur verkamaður - en löngunin til að komast heim og ala börnin upp í íslensku umhverfi innan um fjölskylduna er yfirsterkari peningagræðginni. Hins vegar er ekkert víst að við kaupum íbúð áður en við komum. Finnum samt vonandi einhversstaðar fjárhús til að leggja væntanlegan erfingja í jötu í sumarnóttinni.
Í kvöld var reyndar frétt á TV2 af verðbréfasölum hjá að störfum hjá Jyske Bank í Silkiborg. Þeirra helsta starf í dag var að selja íslenskar krónur, reyna að losna við sem mest fyrir páska.
þessi fjandans forarpytts króna!!
Hún ISK er búin að hrynja í morgun eins og mý í rafmagnsljósi. Sú danska er komin upp í 14 kr íslenskar en var fyrir nokkrum mánuðum yfirleitt nokkuð stöðugt milli 11 og 12. Þá var leigan okkar (sem er 6600 dkk) í um 75.000 en í núgildi dagsins er leigan komin í 92.400 ! Ansi góð sveifla þar á bæ. :/
Það er náttúrulega ekki hægt að fóta sig á fréttavefjunum þessa dagana fyrir fjármálafréttum og það er mjög skiljanlegt. Hvernig í ósköpunum ætli sé að standa í inn- og útflutningi (reyndar sennilega betra, en sveiflur eru vondar) þegar ástandið er svona ?
Ég er ekkert sérstaklega að halda því fram að við eigum að taka upp Evru, finnst miklu frekar að við ættum að tengja krónuna við Evru eins og Danirnir gera, það myndi stöðva sveiflurnar þar sem fjármálapeyjarnir hætta að þessu gambli. Ásamt því að gera tollasamninga við ESB þannig að við getum flutt inn vörur á ódýrari hátt.. samkeppnin innanlands myndi fá samkeppni frá netverslunum.
Ef tengingin virkar ekki af einhverjum ástæðum (var það ekki Argentína sem tengdi sig við USD án þess að forsendurnar innanlands héldu í með frekar óskemmtilegum afleiðingum) þá ætti að vera auðveldara að "aftengja" heldur en að sitja uppi með evru sem við getum ekki notað.
Eða jafnvel, eins og ég sá einhversstaðar fleygt fram, að vekja upp hið skandinavíska myndbandalag frá 19. öld og búa til hina sameiginlegu norrænu krónu!
Pant hanna eina víkingamynt!
Annars veit ég ekkert um hagfræði og forðast að rökræða um fjármál. Ég held bara áfram að borga mína dönsku leigu af íslensku námslánunum og fylgist af áfergju með blaðrinu í fréttunum án þess að nokkur geri nokkuð af viti.
breakbeat plakatið

Um daginn fékk ég áskorun um að gera næsta Breakbeat fastakvöldsplakat. Það er verkefni sem Raggi er með í samvinnu við breakbeat.is og byggist á einföldu áskoranakerfi milli grafískra hönnuða. Textinn er yfirleitt mjög staðlaður og lausnin fer eftir stemningu og hugarástandi hönnuðarins hverju sinni.
Þar sem kvöldið umrædda er í kvöld fannst mér tilvalið að birta veggspjaldið sem ég gerði hérna (og ég vænti þess að það hangi um allan bæ) og hvet ykkur auðvitað til að mæta! :)
Fiðrildaáhrifin
Mikið finnst mér þetta falleg skilaboð:
Fiðrildið hefur tilvísun í alþjóðlega baráttu gegn kynbundnu ofbeldi og hefur í gegnum aldirnar verið álitin táknmynd fyrir umbreytingar í lífi fólks í átt til frelsis. Fiðrildið stendur fyrir vonina og styrkinn í mýktinni. Fiðrildaáhrif vísa í þá kenningu að vængjasláttur örsmárra fiðrilda í einum heimshluta geti haft áhrif á stór veðurkerfi hinumegin á hnettinum.
--
Þegar konur eru heilbrigðar, menntaðar og njóta frelsis til þess að nýta þau tækifæri sem lífið hefur uppá að bjóða, þrífast börn og ríki blómstra, og konur og börn (samfélagið)
uppskera margfalt.
- Kofi Annan
Mikið held ég að heimurinn verði betri ef virðing fyrir konum og þeirra gildum yrðu í hávegum höfð, hvort sem það eru karlar eða konur sem bera þau uppi.
ódýrt að misþyrma konu...
Virkilega þörf lesning: Hringbrautargengið: Það er ódýrt að misþyrma konu. Það þarf eitthvað að gerast!
2




RSS veita