arkitektúrdraumar
Við fengum smá snemmbúið hreiðurgerðarkast um daginn, buðum í íbúð (eða reyndar parhús) á Ak og vorum nærri búin að festa okkur það þegar við föttuðum hvað við vorum brjáluð.. enda var bara lok janúar þá og meira en hálft ár þangað til við kæmum. Húsið er reyndar ennþá á sölu og verðið hækkar ekkert á meðan. Síðan þá höfum við verið að fylgjast með þeim fasteignum sem eru að koma inn (sem eru reyndar oft sömu eignirnar "nýskráðar" aftur).
Það eru reyndar meira en 10 ár síðan við höfum búið á Akureyri og ótrúlega margt breyst á þeim tíma í bænum svo það er svolítið erfitt að gera sér grein fyrir því hvar í bænum maður vill setja sig niður, því þó maður sé etv ekki að fara í framtíðareign held ég að það sé mikilvægt að halda sig í sama hverfinu. Eins og ég nefndi reyndar áður erum við frekar spennt fyrir nýju hverfunum og þá sérstaklega Naustahverfi sem er undarleg tilfinning af því maður hefur ekkert verið þar að ráði. Framtíðarhorfurnar fyrir hverfið, ef það myndi nú allt ganga upp, eru mjög heillandi.
Það eru nokkrar íbúðir í hverfinu sem við höfum verið að gefa auga, eitt sem vakti athygli var að í Sporatúni eru tvær raðhúsalengjur með fimm íbúðum í hvorri og átta þeirra eru enn á sölu (nema fasteignasalan ætli sér að selja sömu íbúðina oft.. heh). Átta af tíu, og íbúðirnar voru byggðar 2006, búnar að vera á sölu síðan síðasta haust þegar við byrjuðum að skoða og standa margar sennilega auðar og fokheldar í dag.
Án þess að vita nokkuð um þessi hús (og jú, ég hef heyrt orðróm um galla, lélegan frágang og jafnvel sig í undirlagi í hverfinu) þá langaði mig að giska á, eftir að hafa séð grunnteikninguna af íbúðunum, að skipulagið innanhús gæti haft eitthvað með þetta að gera.
Ég er reyndar mikil áhugamanneskja um arkitektúr og skipulag og ætlaði mér alltaf að verða arkitekt þegar ég yrði stór, og í sjálfu sér er ekki svo langt hugmyndafræðilega milli vefhönnunar og arkitektúrs (fyrir utan lengra og flóknara náms) því bæði snýst um að búa til umhverfi fyrir notendur þar sem notagildi og ákveðin fagurfræði er í fyrirrúmi. Ég skoða alltaf grunnteikningar sem ég sé af íbúðum og reyni að ferðast um þær í huganum til að fá tilfinningu fyrir rými og afstöðu.
Allavegana, skipulagið í þessum íbúðum í Sporatúni er alveg ótrúleg óaðlaðandi; miklir og dimmir gangar, lítið eldhús og aflöng stofa þannig að ef maður situr fyrir framan sjónvarpið og dyrabjallan hringir þá eru 18 metrar frá sófanum að hurðinni. Svolítið langt til að öskra "kom'inn!"
Auk þess pirrar mig alltaf að hafa eldhús og stofu svona mikið samliggjandi, mér finnst að fjölskyldurýmið eigi að vera þannig að maður geti skipt um umhverfi og ég þoli ekki að hafa steikingarlykt inni í stofu. But maybe that's just me.
En auðvitað á maður ekki að gagnrýna svona nema benda á það sem er betra. Ég breytti því teikningunni þannig að með því að færa eitt herbergi (rífa tvo gifsveggi og setja upp einn) og færa nokkrar leiðslur fyrir eldhúsið, bjó ég til rými sem ég held að sé mun vistlegra; stærra og fjölbreyttara fjölskyldurými, stærra eldhús (meira bekkjar/skápapláss), minni tilfinning fyrir ofurlengdinni og minna pláss sem fer í óþarfa dimma ganga. Einn helsti gallinn við það er að það eru þá núna 18 metrar frá hjónarúminu að barnaherberginu sem gætu orðið nokkrir kílómetra yfir hverja nóttu.
Báðar íbúðirnar, sú upprunalega til vinstri og mín tillaga til hægri, eru hér:
Ég er nú ekki beint að segja að við ætlum að skella okkur á þetta en þetta er samt áhugaverður möguleiki og gaman að láta sig dreyma :)
Flokkað sem hönnun. Þar eru 159 færslur.



RSS veita