* Leopard *

Ég pantaði loksins uppfærslu á stýrikerfinu í fallegu tölvunni minni, núna er Leopard kominn inn og snýr vélina ákaflega smurt. Næsta mál á dagskrá er að ná í nýja Candybar sem gefur manni meiri völd í því að breyta lúkkinu eftir eigin höfði.

Tölvunarfræðingurinn á heimilinu er náttúrulega þvílíkt öfundsjúkur, yfir því í fyrsta lagi hvað þetta er ótrúlega smooth og fallegt ferli. Hann reyndar hneyklaðist á því að ég væri að kaupa uppfærslur á stýrikerfinu þar sem hann uppfærir sitt Ubuntu alveg frítt og náði í, af þessu tilefni, einhverja ferlega grafíska útfærslu á gluggakerfinu sínu þar sem hann getur dregið gluggann svona wobble gobble... það heillaði mig ekki mikið.
Annars er það nú bara gott mál að kaupa hugbúnað á sanngjörnu verði, ég er búin að gera alveg ótrúlega mikið af því síðan ég eignaðist makkann og það hafa aldrei verið neitt háar upphæðir, yfirleitt um $20-50, og yfirleitt af litlum hugbúnaðarsmiðjum sem gera sérhæfan hugbúnað.

Í tilefni af þessari nördafærslu set ég hérna mynd af (vinnu)stofunni sem við sitjum í allan daginn og reynum að gera eitthvað af viti.

vinnustofan.jpg


Miðvikudagur 13. febrúar 2008 kl. 12:06
Flokkað sem tækni. Þar eru 60 færslur.

/ Álit

baddy systir:

ég bara skil ekkert hvað þú ert að tala um!! hehee

14.02.08 18:31


dagný:

ókei.. síðustu tvö komment frá ykkur systrum eru ekki beint uppörvandi... sennilega ég hafi fengið öll nördagenin sem voru í boði... ;)

14.02.08 20:41


guggi:

ég hélt að væru tvö nördaborð.... :)

15.02.08 08:12