arkitektúrdraumar

Við fengum smá snemmbúið hreiðurgerðarkast um daginn, buðum í íbúð (eða reyndar parhús) á Ak og vorum nærri búin að festa okkur það þegar við föttuðum hvað við vorum brjáluð.. enda var bara lok janúar þá og meira en hálft ár þangað til við kæmum. Húsið er reyndar ennþá á sölu og verðið hækkar ekkert á meðan. Síðan þá höfum við verið að fylgjast með þeim fasteignum sem eru að koma inn (sem eru reyndar oft sömu eignirnar "nýskráðar" aftur).
Það eru reyndar meira en 10 ár síðan við höfum búið á Akureyri og ótrúlega margt breyst á þeim tíma í bænum svo það er svolítið erfitt að gera sér grein fyrir því hvar í bænum maður vill setja sig niður, því þó maður sé etv ekki að fara í framtíðareign held ég að það sé mikilvægt að halda sig í sama hverfinu. Eins og ég nefndi reyndar áður erum við frekar spennt fyrir nýju hverfunum og þá sérstaklega Naustahverfi sem er undarleg tilfinning af því maður hefur ekkert verið þar að ráði. Framtíðarhorfurnar fyrir hverfið, ef það myndi nú allt ganga upp, eru mjög heillandi.


Það eru nokkrar íbúðir í hverfinu sem við höfum verið að gefa auga, eitt sem vakti athygli var að í Sporatúni eru tvær raðhúsalengjur með fimm íbúðum í hvorri og átta þeirra eru enn á sölu (nema fasteignasalan ætli sér að selja sömu íbúðina oft.. heh). Átta af tíu, og íbúðirnar voru byggðar 2006, búnar að vera á sölu síðan síðasta haust þegar við byrjuðum að skoða og standa margar sennilega auðar og fokheldar í dag.
Án þess að vita nokkuð um þessi hús (og jú, ég hef heyrt orðróm um galla, lélegan frágang og jafnvel sig í undirlagi í hverfinu) þá langaði mig að giska á, eftir að hafa séð grunnteikninguna af íbúðunum, að skipulagið innanhús gæti haft eitthvað með þetta að gera.
Ég er reyndar mikil áhugamanneskja um arkitektúr og skipulag og ætlaði mér alltaf að verða arkitekt þegar ég yrði stór, og í sjálfu sér er ekki svo langt hugmyndafræðilega milli vefhönnunar og arkitektúrs (fyrir utan lengra og flóknara náms) því bæði snýst um að búa til umhverfi fyrir notendur þar sem notagildi og ákveðin fagurfræði er í fyrirrúmi. Ég skoða alltaf grunnteikningar sem ég sé af íbúðum og reyni að ferðast um þær í huganum til að fá tilfinningu fyrir rými og afstöðu.


Allavegana, skipulagið í þessum íbúðum í Sporatúni er alveg ótrúleg óaðlaðandi; miklir og dimmir gangar, lítið eldhús og aflöng stofa þannig að ef maður situr fyrir framan sjónvarpið og dyrabjallan hringir þá eru 18 metrar frá sófanum að hurðinni. Svolítið langt til að öskra "kom'inn!"
Auk þess pirrar mig alltaf að hafa eldhús og stofu svona mikið samliggjandi, mér finnst að fjölskyldurýmið eigi að vera þannig að maður geti skipt um umhverfi og ég þoli ekki að hafa steikingarlykt inni í stofu. But maybe that's just me.


En auðvitað á maður ekki að gagnrýna svona nema benda á það sem er betra. Ég breytti því teikningunni þannig að með því að færa eitt herbergi (rífa tvo gifsveggi og setja upp einn) og færa nokkrar leiðslur fyrir eldhúsið, bjó ég til rými sem ég held að sé mun vistlegra; stærra og fjölbreyttara fjölskyldurými, stærra eldhús (meira bekkjar/skápapláss), minni tilfinning fyrir ofurlengdinni og minna pláss sem fer í óþarfa dimma ganga. Einn helsti gallinn við það er að það eru þá núna 18 metrar frá hjónarúminu að barnaherberginu sem gætu orðið nokkrir kílómetra yfir hverja nóttu.


Báðar íbúðirnar, sú upprunalega til vinstri og mín tillaga til hægri, eru hér:

sporatun_teikning.gif


Ég er nú ekki beint að segja að við ætlum að skella okkur á þetta en þetta er samt áhugaverður möguleiki og gaman að láta sig dreyma :)

Föstudagur 29. febrúar 2008 kl. 22:55 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem hönnun / 0

fréttir dagsins..

...eru í boði Danna.

Föstudagur 22. febrúar 2008 kl. 22:57 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem uppeldi / 8

Hetjur hvunndagsins

Í gær horfði ég á alveg sláandi viðtal við hana Erlu konuna hans Jonna bekkjarbróður úr LHÍ. Þau eiga strák sem er jafnaldri Danna. Hún greindist núna nýlega með krabbamein í kviðarholi og er á leið til USA í mjög stóra aðgerð eftir nokkra daga. Viðtalið var alveg ótrúlegt því hún stóð sig svo vel og var svo yfirveguð og sterk að ég var alveg eftir mig.
Ég vona og bið að þeim gangi eins vel og mögulegt er, ég á eftir að hugsa þvílíkt mikið til þeirra.

Föstudagur 22. febrúar 2008 kl. 22:24 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem fólk / 0

Frederik í X-factor

Ég er ferlega skúffuð núna, uppáhalds keppandinn minn í danska x-factor var sendur heim í kvöld,..og keppnin í sjónvarpssal er eiginlega bara rétt að byrja... algjör skandall. :/

Hérna er hann Frederik í síðustu viku, ofursvalur, ég held svei mér þá að ég verði bara að gera mér ferð til Köben til að sjá hann á Strikinu þar sem hann stendur yfirleitt með gítarinn sinn og hundinn.

Föstudagur 15. febrúar 2008 kl. 21:27 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem video / 0

* Leopard *

Ég pantaði loksins uppfærslu á stýrikerfinu í fallegu tölvunni minni, núna er Leopard kominn inn og snýr vélina ákaflega smurt. Næsta mál á dagskrá er að ná í nýja Candybar sem gefur manni meiri völd í því að breyta lúkkinu eftir eigin höfði.

Tölvunarfræðingurinn á heimilinu er náttúrulega þvílíkt öfundsjúkur, yfir því í fyrsta lagi hvað þetta er ótrúlega smooth og fallegt ferli. Hann reyndar hneyklaðist á því að ég væri að kaupa uppfærslur á stýrikerfinu þar sem hann uppfærir sitt Ubuntu alveg frítt og náði í, af þessu tilefni, einhverja ferlega grafíska útfærslu á gluggakerfinu sínu þar sem hann getur dregið gluggann svona wobble gobble... það heillaði mig ekki mikið.
Annars er það nú bara gott mál að kaupa hugbúnað á sanngjörnu verði, ég er búin að gera alveg ótrúlega mikið af því síðan ég eignaðist makkann og það hafa aldrei verið neitt háar upphæðir, yfirleitt um $20-50, og yfirleitt af litlum hugbúnaðarsmiðjum sem gera sérhæfan hugbúnað.

Í tilefni af þessari nördafærslu set ég hérna mynd af (vinnu)stofunni sem við sitjum í allan daginn og reynum að gera eitthvað af viti.

vinnustofan.jpg

Miðvikudagur 13. febrúar 2008 kl. 12:06 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem tækni / 3

Opið bréf til Biskups

Jóhanna systir mín sendi mér tengil á opið bréf til Biskups, sem fjallar um fjölskyldu séra Péturs heitins í Laufási og tilraunum kirkjunnar til að bola þeim burt af heimili sínu. Ég vona að því verði svarað á farsælan veg fyrir alla, því það væri ótrúlegt að hugsa til þess að skriffinnska standi ofar manngæsku, hjá sjálfri þjóðkirkjunni.

Fimmtudagur 07. febrúar 2008 kl. 11:02 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem fólk / 0