Sjötti dagur nýs árs og sá síðasti í jólum.

* Gleðilegt nýtt ár! *
Ég er búin að vera að fjarlægja jólaskrautið og vinna á síðustu ummerkjum jólanna nefnilega macintoshbauknum í morgun á meðan feðgar skelltu sér í sund í Hinnerup. Jólatréð stendur reyndar enn í stofunni, kviknakið og orðið dálítið þurrt. Svolítið absúrd að horfa á risavaxið tré í stofunni svona rétt eins og skógurinn hafi komið inn til manns.
Í gær kvöddum við góða gesti en mamma, pabbi og systur mínar tvær eru búin að vera hjá okkur síðan fyrir áramót, alveg dásamlegt að hafa þau og sérstaklega fyrir þann yngsta, hann naut þess í botn að geta valið úr fórnfúsum leikfélögum.
Árið 2008 fer því hægt en afskaplega vel af stað og eitthvað segir mér að það eigi eftir að verða þónokkuð viðburðaríkara en það sem er nýliðið. Áramótaheitin eru reyndar enn þau sömu, lítið breyst á þeim bæ.


2007

Árið hófst í Sunnubrautinni á Dalvík þar sem við héldum íslensk jól og áramót. Eftir áramót tók við ferðalag aftur heim til Árósa, 15 tíma ferðalag.. ekkert eðlilegt! Janúar leið hjá nokkuð hljóðlega og fór aðallega í verkefnavinnu og próf.
Í febrúar fögnuðum við hjónaleysin 10 ára samvistarafmæli, og ég fór á virkilega góða tónleika með Pétri Ben. Í skólanum var eitthvað fjallað um markaðsfræði og Experience Economy sem féll heldur betur að hugmyndum Framtíðarlandsins sem ég drakk í mig af miklum þorsta.
Mars leið hjá nokkuð átakalaus og í apríl héldum við uppá tvenn afmæli í annars fyrirferðalitlum mánuði.
Í maí kom Baddý systir í sína fyrstu ferð til Árósa og við fórum einn fyrsta rúntinn í Tivolí friheden og Legoland. Í lok maí kvaddi Hulda amma mín þennan heim svo í byrjun júní fórum við mæðginin einu ferð sumarsins norður í land til að vera viðstödd jarðaförina sem var bæði falleg og hlý að hætti ömmu. Við dvöldum í nokkra daga í júní á Íslandi þar sem Óli kom á eftir okkur til að halda uppá 10 ára stúdentinn. Um miðjan júní fórum við svo til baka til að klára prófin og njóta danska sumarsins.
Einmitt, danska sumarið!
Dagana sem ég var á Íslandi var yfir 30 stiga hiti en restina af sumrinu rigndi. Í lok júní fengum við góða heimsókn frá Lilju systur Óla og fjölskyldu og það var hreint út sagt ömulegt veður. Við reyndum samt að gera gott úr því og áttum góða daga saman.
Í júlí vorum við aðeins að vinna ásamt því að ferðast svolítið; fórum í útilegu upp til Skagen, í Playmo garð í Nurnberg í Suður-Þýskalandi og helgarferð til Barcelona í ágúst. Í ágúst fengum við líka góða gesti en foreldrar Óla komu í skemmtilega heimsókn og sonurinn byrjaði á leikskóla sem var langþráð stund þrátt fyrir góða tíma hjá dagmömmunni.
Bestu kaup ársins voru gerð í september þegar við keyptum nýja myndavél, Canon EOS 30D, snilldargræja sem ég er auðvitað enn að reyna að ná tökunum á, en frábært leiktæki. Verstu kaup ársins gerðust líka í september þegar ég keypti andabringur á góðu verði en fékk alveg ógeðslega magapínu í kaupbæti sem varði í nokkrar vikur og mér finnst ég jafnvel enn vera að jafna mig á. shit.
September og október voru ofur venjulegir, kvöldunum var eytt í heimildamynda gláp og byrjað á jólaundirbúningi, meðal annars verslunarferð til Þýskalands. Nóvember leið mjög hratt í verkefnavinnu og desember sömuleiðis.
Árið var því nokkuð látlaust og í raun viðburðalítið. Vonbrigði ársins voru svo sannarlega sumarveðrið enda eina sumarið sem við ætlum að eyða í Danaveldi en hápunktarnir sennilega að fá allt þetta góða fólk í heimsókn og ferðalögin sem við lögðumst í.
Takk fyrir árið.

Sunnudagur 06. janúar 2008 kl. 11:25
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 238 færslur.

/ Álit

tengdamamma:

Sömuleiðis takk fyrir árið, Dagný mín. Ég er strax farin að hlakka til að fá ykkur heim aftur.

10.01.08 12:49


hanna sys:

Öss... eftir ár skrifaru pistil þar sem þú veist varla hvar þú átt að byrja því að lífið á Íslandi er svo ótrúlega viðburðarríkt og æðislegt :) Hlakka alveg óótrúlega til að fá ykkur til landsins, og þakka þúsund sinnum fyrir frábæra dvöl hjá ykkur! Ég bíð með Kana spilin og nammibannið byrjar á morgun! Íííík hehe

14.01.08 00:09