önnin búin, uppskeran góð

Jæja.. ekkert að frétta?

Ég er nú reyndar við það að leggjast í leti, önnin búin sl. fimmtudag og uppskeran tvær tveggja stafa tölur, skalinn sem var tekinn í notkun í haust er reyndar stórfurðulegur; 12, 10, 7, 4, 02, 00, -3. Reyndar var hann nógu furðulegur fyrir þannig að hann skiptir kannski ekki öllu máli, mér er bara spurn hvað varð um hundraðshlutfallið?.. 1-10, undir 5 er fall og allir happy. Ég veit ekki alveg hvernig maður á að reikna meðaltal í þessu nýja kerfi þar sem það er ekki gert ráð fyrir að tölurnar í milli séu hreinlega til.
Allavega, einkunir eru hættar að skipta máli þegar maður er orðinn svona gamall.


Annars er lífið nokkuð ljúft í Danaveldi, ég þarf oft að minna mig á að það sé í raun janúar þar sem vorið leikur í loftinu. Danir eru líka alveg sokknir í handboltann þessa dagana og svo ótrúlega stoltir af "strákunum sínum", þó svo leiklýsendurnir þeirra séu alveg steindauðir. Miðað við milliriðilinn sem við lentum í sé ég ekki fyrir mér að Íslendingar eigi eftir að gera einhverjar gloríur í þessari keppni, Danir ekki heldur.


Sunnudagur 20. janúar 2008 kl. 22:04
Flokkað sem danmörk. Þar eru 73 færslur.

/ Álit

tengdamamma:

Til hamingju með árangurinn, Dagný mín, Ég er nú ekki mikið inni í danskri einkunnagjöf, en sýnist samt sem áður árangurinn glæsielgur. Njóttu þess vel og slappaðu vel af í vorinu í Danaveldi. Kær kveðja úr snjó og frosti, tengdam.

21.01.08 13:43


dagný:

takk, góðar kveðjur sömuleiðis :)

21.01.08 15:26