hrós dagsins
Við fengum nokkur auka slög í gær þegar það uppgötvaðist að við gleymdum að sækja um LÍN í sumar fyrir haustönnina sem var að ljúka. Starfsfólkið hjá LÍN kom af fjöllum þegar við sendum þeim staðfestingu á námsárangri og sögðu að við ættum að sækja um fyrst.
A rush of blood to the head, i might say.
Svo við sóttum um í gær, eftirá, og það gekk allt í gegn á einum degi. Þvílík snilld.
Sé það fyrir mér gerast hérna í þurrpappírsríkinu Danmörku þar sem við þurfum að fara að huga að því að segja öllu dótinu upp (íbúð, sími, banki osfr), sem allt þarf að gerast SKRIFLEGA með margra mánaða fyrirvara.
Ein pæling, borgar sig ekki bara að ávaxta námslánin á hærri vöxtum en við borgum af þeim..
Flokkað sem skólinn. Þar eru 11 færslur.
/ Álit
Víkingur:
Tja, svo lengi sem þú freistast ekki til að fjárfesta í alþjóðlega hlutabréfasjóðnum eins og sumir "lentu í" og notar þetta sem húsnæðislán.

