Akureyri
Þar sem það er ekki nema hálft ár í niðurpökkun og brottför og við að sjálfsögðu ekki þekkt fyrir skipulagsleysi, erum við farin að líta í kringum okkur á fasteignasölusíðurnar. Við erum reyndar með harðduglegan einkasölumann sem er sífellt að stinga að okkur eignum, og ekkert nema gott um það að segja, nema að helst myndum við vilja ákveða í hvaða hverfi við ætlum að planta okkur.
Það var fyrir löngu ákveðið að stefnan væri tekin á Akureyri, nálægðin við fjölskylduna (og fjöllin) hefur þar mesta aðdráttaraflið og þar eru sennilega bestu möguleikarnir á ágætis starfi utan höfuðborgarsvæðisins með húsnæðisverðinu stillt í hóf. Svo höfum við verið að velta fyrir okkur hverfunum, þau sem helst heilla eru Giljahverfi og Naustahverfi. Þar sem við höfum eiginlega ekki kynnst þessum hverfum persónulega að neinu ráði væri gaman að heyra í einhverjum sem búa þar og fá að heyra nokkurn vegin kosti og galla þessara hverfa að ykkar áliti... eða hvort maður á að kíkja eitthvert annað (innan póstnúmers 600/603)?
Flokkað sem heimilið. Þar eru 66 færslur.
/ Álit
sædís guðný:
erum við ekki bara að tala um innbæinn?? held að það sé málið í dag:D:D
freyja:
Mér líður ótrúlega vel í Naustahverfinu. Það er mikið í gangi hérna, hverfin að taka á sig mynd og við erum nú alls ekki langt frá bænum´.... ég var t.d tæpan hálftíma að labba heim úr vinnunni í gær. Það var bara fínt.... Eldsnögg að bregða þér á flugvöllinn og skotstund að bruna í bæinn (ef þú tekur skautasvellsgötuna... ) og bara allt í sómanum hérna... Ný hús og bráðum verða verslanir og þjónustan hér komin í gang.
Naustahverfi: 1 stig
Takk fyrir innleggin stelpur! Ég verð örugglega tíður gestur í innbænum Sædís mín.. þó svo ég ætli kannski ekki að búa þar, enda eru húsin þar með þeim fallegustu á landinu!
Freyja, það er frábært að heyra að þú ert ánægð í Naustahverfinu, ég hallast svolítið mikið að því vegna þess að ég hef heyrt svo góða hluti um leikskólann þar, aldrei að vita nema við verðum nágrannar... aftur :)
eva:
Ég hef heyrt góða hluti um mjög Giljaskóla, bæði í gegnum frænku mína sem er að kenna þar og þegar ég var að vinna á sambýlum í hverfinu. Stutt í alls kyns útivist og alltaf hægt að skíða heim úr fjallinu.

