ekki svo mikið nörd..
Núna tekur við í skólanum nokkurs konar sérhæfingatími (specialization) fram í lok mars, þar sem við megum kafa ofaní ákveðið efni og styrkja okkur í því. Það sem ég lagði alltaf upp með í þessu námi var að vera betri vefhönnuður og kannski aðeins öflugri í forritun. Þess vegna ákvað ég að styrkja mig aðeins betur í php forritun umfram þann litla kúrs sem við fengum í haust. En núna hef ég verið að spá, hvort ég græði nokkuð á því að auka við mig örlítilli þekkingu, þar sem mínar sterkari hliðar liggja annarsstaðar en í hard core forritun og það þyrfti svolítið mikið til svo ég gæti sagt að ég sé eitthvað fær í PHP vefforritun.
Svo að ég er aðeins að skipta um gír, og ætla næstu vikur að skoða "Smarty" sem er svokallað "template engine" eða tól/forritunarmál til að setja upp útlit án þess að vera nokkuð háður innihaldi, þ.e.a.s býr til alla virkni og útlit þó svo á bak við séu flókin samskipti við gagnagrunn. Í einföldu málið þýðir það að ég sem útlitshönnuður gæti þá sett upp alla útlitseiginleika og forritarinn þyrfti ekkert að pæla í framsetningunni. Einhvernvegin held ég að ég græði meira á því að kunna það heldur en eitthvað flóknara tækni-smækni dót.
Framtíðarpælingar
Ég var að lesa áhugaverða áramótagrein frá fyrrverandi deildarstjóranum mínum í LHÍ, þar sem hann fjallar um hvernig stefnir í að framtíðin komi til með að þróast miðað við það sem á undan hefur gengið. Áhugavert já.
hrós dagsins
Við fengum nokkur auka slög í gær þegar það uppgötvaðist að við gleymdum að sækja um LÍN í sumar fyrir haustönnina sem var að ljúka. Starfsfólkið hjá LÍN kom af fjöllum þegar við sendum þeim staðfestingu á námsárangri og sögðu að við ættum að sækja um fyrst.
A rush of blood to the head, i might say.
Svo við sóttum um í gær, eftirá, og það gekk allt í gegn á einum degi. Þvílík snilld.
Sé það fyrir mér gerast hérna í þurrpappírsríkinu Danmörku þar sem við þurfum að fara að huga að því að segja öllu dótinu upp (íbúð, sími, banki osfr), sem allt þarf að gerast SKRIFLEGA með margra mánaða fyrirvara.
Ein pæling, borgar sig ekki bara að ávaxta námslánin á hærri vöxtum en við borgum af þeim..
umferðaröryggi my ass..
Maður fer að verða ýmsu vanur þegar maður skutlar drengnum á leikskólann á morgnana. Það er ekki óalgengt að sjá krakka, 3-5 ára, sitjandi í framsætinu þó oftast með upphækkunarpúða undir sér og í belti. Mér finnst það reyndar alveg nógu áhættusamt og myndi aldrei gera það sjálf, sérstaklega ef það er loftpúði fyrir framan, sem ég kíkti líka alltaf eftir og sá í nokkur skipti.
Í sumar sá ég hins vegar krakka sem sat óspennt og ekki í með púða framsætinu þegar það kom á leikskólann, og var þar að auki með snuð í munninum.. semsagt ekki mjög gamalt.
Dálítið sjokkerandi!
En í morgun sprakk allur skalinn þegar einn kom með krakkann sinn á VESPU! Keyrði sömu umferðagötur og við og krakkinn, ekki eldri en Danni, sat framaná hjá honum að sjálfsögðu ekki með hjálm en reyndar var ökumaðurinn með hjálm. Krakkinn hélt bara í stýrið eins og hann!
Ég hugsaði bara til Herdísar Storgaard þegar ég sá þetta. Hvað er fólk eiginlega að pæla?!
Kannski er maður orðinn einhver pjúrítanisti með aldrinum, meina, við "teikuðum" stundum bíla á hjólinu til að fá far heim úr vinnunni, eða sátum/stóðum uppi á bílpalli styttri vegalengdir.. en það var á Hauganesi.. og maður var orðinn sæmilega þroskaður.
Fróðleiksmoli dagsins: Að meðaltali deyja 52 danskir hjólreiðamenn á ári (meðaltal 1997-2006) semsagt einn á viku, og uþb 11% fullorðinna hjólreiðamanna nota hjálm.
Akureyri
Þar sem það er ekki nema hálft ár í niðurpökkun og brottför og við að sjálfsögðu ekki þekkt fyrir skipulagsleysi, erum við farin að líta í kringum okkur á fasteignasölusíðurnar. Við erum reyndar með harðduglegan einkasölumann sem er sífellt að stinga að okkur eignum, og ekkert nema gott um það að segja, nema að helst myndum við vilja ákveða í hvaða hverfi við ætlum að planta okkur.
Það var fyrir löngu ákveðið að stefnan væri tekin á Akureyri, nálægðin við fjölskylduna (og fjöllin) hefur þar mesta aðdráttaraflið og þar eru sennilega bestu möguleikarnir á ágætis starfi utan höfuðborgarsvæðisins með húsnæðisverðinu stillt í hóf. Svo höfum við verið að velta fyrir okkur hverfunum, þau sem helst heilla eru Giljahverfi og Naustahverfi. Þar sem við höfum eiginlega ekki kynnst þessum hverfum persónulega að neinu ráði væri gaman að heyra í einhverjum sem búa þar og fá að heyra nokkurn vegin kosti og galla þessara hverfa að ykkar áliti... eða hvort maður á að kíkja eitthvert annað (innan póstnúmers 600/603)?
yesterdays news
Mikið var það ánægjulegt fyrir Árna MM að framsókn í borginni hafi tekið af honum ljóskastarann, þetta þýðir að dómaraskandallinn hans er orðinn "yesterdays news" og komið í skúffuna merkt "geymt og sennilega örugglega líklega gleymt" ásamt samráði matvöruverslana, olíufélaga og kreditkortafyrirtækja og öðrum dægurskandölum sem þjóðin lætur ganga yfir sig.
Það er náttúrulega ansi hentugt að framkvæmdavaldið geti valið sér dómara, þvert á ráðleggingar til þess skipaðrar nefndar, á svæði þar sem virkjanir hafa og eiga líklega eftir að verða umdeildar sem og jarðaupptökur ríkisins.
Það yrði nú aðeins öðruvísi upplitið á okkur ef við kæmumst að því að þýski þjálfarinn hefði sjálfur mátt velja þýskan dómara til að dæma handboltaleikinn okkar gegn Þjóðverjum, þó svo dómarinn sé sjálfur drengur góður og hafi staðið sig vel í öðrum leikjum. Það er sama hvernig leikurinn hefði þróast, við værum búin að tapa honum frá upphafi þó ekki nema bara móralskt séð.
önnin búin, uppskeran góð
Jæja.. ekkert að frétta?
Ég er nú reyndar við það að leggjast í leti, önnin búin sl. fimmtudag og uppskeran tvær tveggja stafa tölur, skalinn sem var tekinn í notkun í haust er reyndar stórfurðulegur; 12, 10, 7, 4, 02, 00, -3. Reyndar var hann nógu furðulegur fyrir þannig að hann skiptir kannski ekki öllu máli, mér er bara spurn hvað varð um hundraðshlutfallið?.. 1-10, undir 5 er fall og allir happy. Ég veit ekki alveg hvernig maður á að reikna meðaltal í þessu nýja kerfi þar sem það er ekki gert ráð fyrir að tölurnar í milli séu hreinlega til.
Allavega, einkunir eru hættar að skipta máli þegar maður er orðinn svona gamall.
Annars er lífið nokkuð ljúft í Danaveldi, ég þarf oft að minna mig á að það sé í raun janúar þar sem vorið leikur í loftinu. Danir eru líka alveg sokknir í handboltann þessa dagana og svo ótrúlega stoltir af "strákunum sínum", þó svo leiklýsendurnir þeirra séu alveg steindauðir. Miðað við milliriðilinn sem við lentum í sé ég ekki fyrir mér að Íslendingar eigi eftir að gera einhverjar gloríur í þessari keppni, Danir ekki heldur.
Sjötti dagur nýs árs og sá síðasti í jólum.
* Gleðilegt nýtt ár! *
Ég er búin að vera að fjarlægja jólaskrautið og vinna á síðustu ummerkjum jólanna nefnilega macintoshbauknum í morgun á meðan feðgar skelltu sér í sund í Hinnerup. Jólatréð stendur reyndar enn í stofunni, kviknakið og orðið dálítið þurrt. Svolítið absúrd að horfa á risavaxið tré í stofunni svona rétt eins og skógurinn hafi komið inn til manns.
Í gær kvöddum við góða gesti en mamma, pabbi og systur mínar tvær eru búin að vera hjá okkur síðan fyrir áramót, alveg dásamlegt að hafa þau og sérstaklega fyrir þann yngsta, hann naut þess í botn að geta valið úr fórnfúsum leikfélögum.
Árið 2008 fer því hægt en afskaplega vel af stað og eitthvað segir mér að það eigi eftir að verða þónokkuð viðburðaríkara en það sem er nýliðið. Áramótaheitin eru reyndar enn þau sömu, lítið breyst á þeim bæ.
1



RSS veita