jólakort - oft spretta hugmyndir úr ósiðum
Mér finnst gaman að skrifa á jólakort, ég undirbý kortin nokkuð vel fyrir tímann og síðan Danni fæddist hefur mér nánast þótt skylda að hafa mynd af honum til að senda ættingjum, eingöngu vegna þess að mér finnst sjálfri svo gaman að fá myndir í jólakortum. Á danskann mælikvarða er jólakortalistinn minn nokkuð langur, um 70 kort því dönsk vinkona mín missti út úr sér augun þegar ég sagði henni fjöldann.
Í raun er þetta alveg stórkostlegur ósiður, þrátt fyrir að það sé gaman að fá opna og lesa jólakort uppi í sófa umkringdur fjölskyldunni og konfektinu, þá er álagið akkúrat á þessum tíma við að flokka og dreifa algjör vitleysa. Fyrir utan að það kostar slatta bæði í sendingargjaldi, ljósmyndinni og kortinu sjálfu.
Margir ákveða þessvegna að senda engar kveðjur eða kort heldur styrkja gott málefni og það er stórgott og blessað, ég hef samt verið að hugsa hvað getur komið í staðinn fyrir þessa stemmningu eða athöfn að fá jólakveðju frá vinum og vandamönnum þar sem fjölskyldan sameinast við að hlusta á persónulegar kveðjur. Það er auðvitað hægt að senda vefkort, eða jafnvel sms, en hvorutveggja er áreiti sem á ekki við þegar maður tekur á móti skilaboðunum og þau fara yfirleitt ekki lengra en til eins úr fjölskyldunni.
Best af öllu væri ef flatskjárinn í stofunni myndi taka við öllum kveðjunum sem berast á heimilið, hvenær sem þær berast, og ganga úr skugga um að þær sé ekki hægt að opna fyrr en á aðfangadagskvöld. Flatskjárinn í stofunni er jú altari heimilisins.
Þannig er hægt að senda myndir, texta, video, heilu ræðurnar, ágrip ársins eða bara hefðbundna árs og friðar kveðju að hætti Gerðar G. Bjarklind.
Auðvitað myndi skjárinn ekki geyma kveðjuna, heldur væri hún á vefnum sem gagnvirka sjónvarpið hefði aðgang að.
Held að þetta sé alveg málið, spurning hvort maður nái að græja þetta fyrir næstu jól... heh ;)
Flokkað sem hugmyndir. Þar eru 7 færslur. / hönnun. Þar eru 162 færslur. / tækni. Þar eru 60 færslur.
/ Álit
Áhugaverð hugmynd, einmitt daginn sem ég fékk í hendurnar póstkort frá DK ;)
mamma:
Góð hugmynd, en ég vil fyrst að einhver finni upp lítin skjá á stærð við venjulegt myndaalbúm sem hægt er að setja disk inní til að skoða myndir, núna eru allit komnir með myndirnar sínar inn í tölvuna og engin leið að skoða þær í fljótheitum eins og gömlu albúmin. ;)
já, ég er reyndar orðin aðeins of sein með að koma með þá hugmynd því það er allt morandi í þessu, (ansans að vera búin að senda jólagjöfina þína mamma!) Til dæmis hérna einn flottur frá Kodak og svo fullt á Amazon en ég hef ekki fundið neina áhugaverða hérna í dk en ég skal kíkja ef þú vilt :)
jahhám þetta er bara frábær hugmynd og hérna er ein önnur sem kom frá vini mínum: í framtíðinni munum við geta sett usb lykil í gagnaugun á okkur og horft á myndir.. ;)

