hitt og þetta og jólin

Ég ætla ekkert að vera að afsaka þetta bloggleysi undanfarið. Ég er búin að vera á kafi í verkefnavinnu í skólanum undanfarið.. alveg til klukkan þrjú á daginn, að hugsa sér! en það sér fyrir endann á því, skil á fimmtudag eftir viku. Þetta er hópverkefni og hópurinn sem ég er í er alveg frábær þannig að við plömmum þetta vel.


Það er alveg magnað að þessi tvö ár höfum við alltaf náð að sækja Danna í leikskólann milli þrjú og hálf fjögur, enda finnst mér það eðlilegur tími. Heima vorum við yfirleitt ekki komin heim fyrr en um fimm og þá er ekkert eftir af deginum. En svona er nú það.


Það er ótrúlega stutt til jóla en jólastemmningin er ekki alveg komin í hús, það vantar eitthvað og ég held að það sé jólageðveikin.. það er ákveðin stemmning í henni en ég hélt að hún hefði ekki svona mikil áhrif. Allar gjafir eru náttúrulega fyrir lifandislöngu komnar í íslensk hús, eiginlega alltof snemma en náðu þó fyrir rokið, og ég á bara eftir græja handa mínum heittelskaða. Góður hausverkur fyrir þorláksmessukvöld... (nema það að auðvitað verður ekkert opið á þorláksmessukvöld, allir heima í sínu danska hygge!).
Það var því ákaflega næs að fara niður í miðbæ eftir skóla í dag (já, Óli er búinn að vera heima undanfarið, "bara" að undirbúa ritgerðina, svo að ég koma að nýskúruðum kofanum í dag, hversu yndislegt er það?) og rölta um og skoða jólaljósin. Óli fór nefnilega með tveggjalítra flösku niður í eitthvað brugghús í miðbænum til að láta fylla jólakranabjór á fyrir JólaKidda sem er haldinn í kvöld (Bjórklúbburinn Kiddi er félagsskapur drengjanna í hverfinu, sem hittast til að sötra öl og slúðra).
Það er þögult samkomulag í gangi um að ég segi ekki orð um öldrykkju mannsins á meðan hann fylgist viljandi ekki með því hvernig yfirborðið lækkar smámsaman í Macintosh bauknum uppi á hillu (lækkar reyndar ískyggilega hratt). Þið getið rétt ímyndað ykkur hvernig við verðum í laginu þegar við komum heim!


Ég kíkti aðeins inn í Magasin á meðan Óli var að láta fylla á bjórflöskuna og verslaði smá jólaskraut, Georg Jensen jólaskrautið er komið á útsölu og ég keypti topp á jólatréð sem bíður inni í geymslu (já, 100kr fyrir 2m tré, er það ekki ágætur díll?), sömuleiðis Royal Copenhagen jólakúlur. Orðrómurinn á götunni segir nefnilega að jólaskrautinu sé pakkað niður á þorláksmessu og ekki sjens að komast á útsölu á því eftir áramót. Þar sem þetta eru fyrstu og síðustu jólin í DK langaði mig til að eiga eitthvað sem væri nokkuð veglegt og eigulegt.
Ég var nú reyndar ekki búin að segja frá því í bloggleysinu en ég fékk glaðning frá RC um daginn fyrir að skrá mig á póstlista, önnur verðlaun, kassi fullur af jólaskrauti að andvirði rúmlega 1000dkr. :)


Það gengur líka ágætlega að jólasveinast, Danni er farinn að spá aðeins meira í þetta en ég held að hann sé samt ekkert að trúa þessu, enda er þetta lygilegt að það sé einhver gaur sem nenni að koma kvöld eftir kvöld og setja eitthvað misgáfulegt í skóinn.. hann var reyndar hæstánægður með klementínuna fyrsta morguninn og örlítið vonsvikinn að fá ekki klementínu aftur næsta morgun heldur bara eitthvað læknisdót (Baddý er nefnilega að koma bráðum í heimsókn og þá þarf að impressa hana örlítið ;) ) Svo er náttúrulega ekki hægt að trúa því að jólasveinninn sé að fylgjast með manni þannig að þetta agatæki er ekki alveg að virka eins og það gæti best, sumum finnst það bara ekkert tiltökumál þó það kæmi kartafla í skóinn... ekkert að kartöflum, en þegar ég viðraði það við hann að það gæti komið LAUKUR í skóinn, þá var það ekkert sérstaklega spennandi umræðuefni.


Allavegana, ég vona að þessi litli pistill bæti upp bloggleysi undanfarinna daga, allavega er mér sjálfri smávegis létt.


Föstudagur 14. desember 2007 kl. 23:36
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 238 færslur.

/ Álit

baddy:

þannig að maður á ekki sjéns í að næla sér í georg jensen jólaskraut á útsölum... það er meira hvað danirnir eru fljótir að pakka niður! jólaútsölur og jólaskraut bara allt farið þegar við komum! jahérna hér... vonandi verður þá bara komið eitthvað flott vetrardót í staðinn, held nefnilega að lín ætli að heiðra mig fyrir góðan námsárangur þetta árið..verst að maður þarf að borga tilbaka!

18.12.07 23:51